Fréttamaður

Lovísa Arnardóttir

Lovísa er fréttamaður á fréttastofu Sýnar.

Nýjustu greinar eftir höfund

Líta stöðuna í Varm­á mjög al­var­legum augum

Umhverfis- og orkustofnun, UOS, lítur það mjög alvarlegum augum að set frá jarðborun Veitna í Skammadal hafi borist í Varmá. Stofnunin telur að Veitur hefðu mátt koma í veg fyrir þetta með betri og faglegri undirbúningi áður en framkvæmdin hófst en segir Veitur hafa fylgt öllum leiðbeiningum um úrbætur. UOS sinnir eftirliti vegna borana Veitna við Varmá.

Vilja verja pláss ís­lenskra sjó­manna

Hásetar og bátsmenn í Sjómannafélagi Íslands hófu á mánudag ótímabundið verkfall á þremur skipum Eimskips sem stendur enn. Eimskip segir það miður að ekki hafi náðst samningar og ekki liggi fyrir umfang tjóns af aðgerðum. Unnið hafi verið að því að lágmarka áhrif verkfallsins á viðskiptavini.

Beina því til Storytel að gæta var­úðar í markaðs­setningu

Samkeppniseftirlitið beinir því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu og verðtilboðum á viðkvæmum tíma þegar nýr aðili reynir fyrir sér á markaði, Sagnaland. Ekki hefur verið tekin bráðabirgðaákvörðun um málið en Samkeppniseftirlitið segir ekki útilokað að það verði gert síðar.

Advania lýkur kaupum á Evolv

Advania hefur nú lokið kaupum á íslenska hugbúnaðarfyrirtækinu Evolv sem sérhæfir sig í sjálfvirknivæðingu. Í tilkynningu kemur fram að Samkeppniseftirlitið hafi ekki gert athugasemdir við samruna fyrirtækjanna og hafi lokið meðferð málsins.

Vilja fresta ESB-atkvæðagreiðslu þar til í októ­ber

Umræðum um þingsályktunartillöguna um þjóðaratkvæðagreiðslu í ágúst verður fram haldið á þingfundi í dag klukkan þrjú. Stjórnarandstaða leggur til að atkvæðagreiðslunni verði seinkað og að gerðar verði frekari breytingar á spurningunni. 

Skúrir víða um land með strekkingi en lægir í kvöld

Í dag er spáð suðvestlægri átt, 5-13 m/s en hvassari norðvestanlands í fyrstu. Skúrir víða um land, en bjart með köflum og þurrt austantil. Spáð er snjókomu og slyddu til fjalla norðaustantil á landinu á morgun. 

Í­búar miður sín og fugla­líf nær allt farið

Landvernd og heilbrigðiseftirlit Mosfellsbæjar hafa miklar áhyggjur af mengun í Varmá. Veitur eru nú við leit að heitu vatni í Skammadal í Mosfellsbæ og hefur leitin valdið litabreytingum á vatninu. Alls verða boraðar fjórar vinnsluholur á svæðinu fram á haust og eru tvær vikur eftir af vinnu í þeirri holu sem nú er verið að bora.

Hver prjónuð peysa sendi skýr skila­boð til þol­enda of­beldis

Kvennaathvarfið hefur hleypt af stokkunum nýrri fræðslu-, vitundar- og fjáröflunarherferð undir yfirskriftinni Rjúfum mynstrið. Táknmynd herferðarinnar er sérhönnuð íslensk prjónauppskrift sem ber nafnið SKJÓL og rennur allur ágóði af sölu hennar óskertur til Kvennaathvarfsins.

Sjá meira