Ramos veitti Shakiru verðlaun fyrir lagið sem gagnrýnir Pique Sergio Ramos og Gerard Piqué grófu stríðsöxina er þeir spiluðu með spænska landsliðinu en öllu jafna voru þeir óvinir innan vallar sem utan. Ramos spilaði lengi vel með Real Madríd og Piqué með Barcelona. Þó Piqué sé hættur að spila tókst Ramos að eiga síðasta höggið. 19.11.2023 07:02
Dagskráin í dag: Ísland mætir Portúgal ytra, Formúla í Vegas og margt fleira Það er svo sannarlega nóg um að vera á rásum Stöðvar 2 Sport í dag. 19.11.2023 06:01
Vinícius Júnior frá keppni þangað til á næsta ári Brasilíski framherjinn Vinícius Júnior, leikmaður Real Madríd, verður frá keppni þangað til á næsta ári eftir að meiðast á læri í 2-1 tapi Brasilíu gegn Kólumbíu. 18.11.2023 23:00
Vladan semur við nýliða Vestra og tekur að sér markmannsþjálfun Markvörðurinn fyrrverandi Vladan Djogatovic er nýr markmannsþjálfari Vestra. Liðið mun leika sem nýliða í Bestu deild karla í knattspyrnu sumarið 2024. 18.11.2023 22:30
Frakkar skoruðu fjórtán og settu met Frakkland vann einstaklega þægilegan sigur á Gíbraltar í undankeppni EM. Gestirnir misstu menn af velli snemma leiks og þó staðan hafi þá þegar verið 3-0 var ekki hægt að sjá fyrir hvað myndi gerast í París. 18.11.2023 21:47
Viktor Gísli öflugur í sigri Landsliðsmarkvörðurinn Viktor Gísli Hallgrímsson átti góðan leik þegar Nantes lagði Nimes með fimm marka mun í frönsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld. 18.11.2023 21:35
Elvar Már öflugur í sigri Elvar Már Friðriksson átti góðan leik þegar PAOK lagði Aris í grísku úrvalsdeildinni í körfubolta. 18.11.2023 21:01
Emilía á skotskónum og markahæst í Danmörku Emilía Kiær Ásgeirsdóttir skoraði eitt marka Nordsjælland í 3-0 sigri á AaB í dönsku úrvalsdeild kvenna í knattspyrnu. Emilía Kiær er markahæst í deildinni með átta mörk. 18.11.2023 20:30
Mögnuð Sandra allt í öllu hjá Metzingen Sandra Erlingsdóttir var hreint út sagt mögnuð í útisigri Metzingen á Wildungen í þýsku úrvalsdeild kvenna í handbolta, lokatölur 32-37. Þá vann Flensborg sannfærandi sigur á Rhein-Neckar Löwen í þýsku úrvalsdeild karla í handbolta, lokatölur 33-25. 18.11.2023 20:01
Króatar nálgast sæti á EM 2024 Króatía vann Lettland 2-0 í D-riðli undankeppni EM karla í knattspyrnu sem fram fer í Þýskalandi næsta sumar. Króötum dugir stig í lokaleik undankeppninnar til að tryggja sér sæti á mótinu. 18.11.2023 19:36