Sævar Atli skorað 73 prósent marka Leiknis í sumar Nýliðar Leiknis Reykjavíkur hafa komið verulega á óvart í Pepsi Max deild karla í knattspyrnu. Eftir sigur liðsins á Víkingum – sem voru taplausir fyrir leikinn - er liðið komið með 11 stig að loknum 10 leikjum og situr í 9. sæti. 30.6.2021 08:00
Hollenskur varnarmaður upp á Skaga og Ísak Snær segist ætla að vera áfram Botnlið Pepsi Max deildar karla hefur sótt hollenska varnarmanninn Wout Droste. Þá segist Ísak Snær Þorvaldsson ætla að vera áfram í herbúðum ÍA en lánssamningur hans á að renna út á næstu dögum. 29.6.2021 17:01
Jamaíka falast eftir kröftum Mason Greenwood Knattspyrnusamband Jamaíka hefur undanfarið gert hosur sínar grænar fyrir fjölda leikmanna sem eiga ættir að rekja til eyjunnar í Karíbahafinu. 29.6.2021 16:32
Vonarstjarna Stjörnunnar gleymdi hvað hann var gamall og sagðist eiga fleiri trikk í pokahorninu Eggert Aron Guðmundsson nýtti svo sannarlega tækifærið er hann kom inn af bekknum í leik KR og Stjörnunnar í Pepsi Max deildinni. Þessi 17 ára gamli táningur gerði sér lítið fyrir og skoraði sigurmarkið ásamt því að ógna sífellt með hraða sínum og krafti. 29.6.2021 16:00
Sjáðu mörkin úr endurkomum Keflavíkur og Stjörnunnar sem og mörkin sem sökktu Víkingum í Breiðholti Alls voru 10 mörk skoruð í leikjunum þremur sem fram fóru í Pepsi Max deild karla í gærkvöld. 29.6.2021 15:17
Lof og last 11. umferðar: Sævar sýndi snilli sína, vonarstjarna skaut upp kollinum og slakt gengi á heimavelli Elleftu umferð Pepsi Max deildar karla í knattspyrnu lauk í gærkvöld samkvæmt vef KSÍ. Það hefur mikið gengið á síðustu tvo daga og hér að neðan má sjá hvað á skilið lof og hvað á skilið last. 29.6.2021 13:31
Völdu Kára og Hannes Þór besta til þessa | Blikar geta ógnað toppliði Vals Farið var yfir víðan völl í Stúkunni að loknum leikjum dagsins í Pepsi Max deild karla í knattspyrnu í gærkvöld. Voru nokkur málefni rætt í lok þáttar en ásamt Kjartani Atla Kjartanssyni, þáttastjórnanda, voru þeir Máni Pétursson og Jón Þór Hauksson. 29.6.2021 12:31
Spá Englandi og Svíþjóð áfram í 8-liða úrslit Drengirnir úr Æði halda áfram að spá í spilin fyrir leikina á Evrópumótinu í knattspyrnu. Þeir spá því að England og Svíþjóð fari áfram í dag þó ást þeirra á Berlín sé mikil. 29.6.2021 12:00
Telur líklegt að Saka byrji og Southgate stilli upp í 3-4-3 leikkerfi Hinn áreiðanlegi David Ornstein hjá The Athletic hefur stillt upp því sem hann telur líklegt byrjunarlið Englands í leiknum gegn Þýskalandi í 16-liða úrslitum Evrópumótsins í knattspyrnu í dag. 29.6.2021 10:01
Messi fór á kostum er hann varð leikjahæsti leikmaður í sögu Argentínu Það eru fá met sem Lionel Messi á eftir að slá en hann náði þó einu er Argentína lagði Bólivíu 4-1 í Suður-Ameríkukeppninni. Hann lék þá sinn 148. landsleik á ferlinum og varð þar með leikjahæsti landsliðsmaður Argentínu frá upphafi. 29.6.2021 09:01