Liðin á bakvið ofurdeildina skuldug upp fyrir haus Í gærkvöld birtu tólf knattspyrnufélög drög að stofnun svokallaðrar ofurdeildar Evrópu. Þótt ástæðan sé sögð vera jákvæð fyrir framþróun fótboltans í heild sinni er ljóst að liðin munu hagnast gríðarlega. 19.4.2021 11:01
Pepsi Max-spáin 2021: Suðuramerískur dans við falldrauginn Íþróttadeild Vísis og Stöðvar 2 Sports spáir Leikni 12. sæti Pepsi Max-deildarinnar í sumar. 19.4.2021 10:04
Yfirgefa liðið eftir fall úr efstu deild Landsliðsmarkvörðurinn Elín Jóna Þorsteinsdóttir og Steinunn Hansdóttir munu ekki leika með danska handknattleiksliðinu Vendsyssel á næstu leiktíð. Liðið féll á dögunum úr efstu deild og er ljóst að margir leikmenn liðsins hugsa sér til hreyfings. 19.4.2021 06:01
Tólf knattspyrnufélög hafa staðfest að þau ætli sér að stofna ofurdeild Evrópu Orðrómar dagsins reyndust sannir. Í kvöld var staðfest að tólf lið séu svokallaðir „stofnmeðlimir“ í því sem á að verða ofurdeild Evrópu í knattspyrnu. 18.4.2021 23:04
Fyrsta sinn í rúman áratug sem Celtic endar tímabilið án titils Rangers sló erkifjendur sína í Celtic út úr skoska bikarnum í knattspyrnu fyrr í dag. Það þýðir að Celtic endar tímabilið án titils en það hefur ekki gerst síðan árið 2010. 18.4.2021 23:00
Óttar Magnús meiddur og spilar ekki meira á þessari leiktíð Framherjinn Óttar Magnús Karlsson er með brotið bein í rist og mun því ekki leika meira með Venezia í ítölsku B-deildinni í knattspyrnu á þessari leiktíð. 18.4.2021 22:45
Flautukarfa hjá Miami, framlengt í New York og Capela með stórleik Þrír leikir fóru fram í NBA-deildinni í körfubolta í kvöld. New York Knicks vann New Orleans Pelicans eftir framlengingu [122-112], Atlanta Hawks lagði Indiana Pacers [129-117] og Miami Heat vann Brooklyn Nets þökk sé flautukörfu Bam Adebayo [109-107]. 18.4.2021 22:10
Varamaðurinn Icardi hélt titilvonum PSG á lífi Þó Paris Saint-Germain sé komið í undanúrslit Meistaradeildar Evrópu þá hafa yfirburðir þeirra heima fyrir dvínað og er liðið sem stendur í 2. sæti frönsku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu. 18.4.2021 21:45
Real missteig sig gegn Getafe Spánarmeisturum Real Madrid mistókst að sækja þrjú stig er liðið mætti Getafe í kvöld. Lokatölur 0-0 á Coliseum Alfonso Perez-vellinum. 18.4.2021 21:15
Ajax bikarmeistari í 20. sinn eftir dramatískan sigur Ajax varð í kvöld hollenskur bikarmeistari í knattspyrnu í 20. sinn eftir 2-1 sigur á Vitesse í úrslitum í kvöld. Sigurmarkið kom í uppbótartíma leiksins. 18.4.2021 21:00