Fréttamaður

Sigurgeir Þorkelsson

Sigurgeir er fréttamaður á fréttastofu Sýnar.

Nýjustu greinar eftir höfund

Þyrlan sótti slasaðan göngumann við Glym

Kallað var til aðstoðar þyrlu Landhelgisgæslunnar um klukkan fjögur síðdegis vegna slasaðs göngumanns í nágrenni við Glym fyrir botni Hvalfjarðar. Svæðið þar sem maðurinn slasaðist er með öllu ófært bílum.

Efna til söfnunar í minningu Hennings

Blásið hefur verið til söfnunar fyrir ungt fólk með fíknivanda á Norðurlandi. Foreldrar ungs manns sem sjálfur glímdi við fíknivanda segjast hafa fengið að finna sárt úrræðaleysið á eigin skinni.

Það er jóker í spilinu

Skoðanakannanir síðustu vikna virðast benda til þess að sífellt fleiri kjósendur séu búnir að gera upp hug sinn fyrir komandi þjóðaratkvæðagreiðslu eftir því sem hlutfall óákveðinna fer lækkandi. Þá virðist einnig sem hægt og rólega saxist á það forskot sem já-hliðin naut þegar mælingar hófust fyrst eftir að tilkynnt var um þjóðaratkvæðið.

Brotist inn í Barnaloppuna

Brotist var inn í verslun Barnaloppunnar að Köllunarklettsvegi í nótt og þurfti að seinka opnun hennar í morgun á meðan rannsóknarstarf lögreglu fór fram.

Hunter Schafer al­sæl eftir Ís­lands­för

Bandaríska stjarnan Hunter Schafer var stödd hér á landi á dögunum. Miðað við myndir hennar hefur dvöl hennar hérlendis verið ævintýri líkust og leikkonan virðist lítið hafa kippt sér upp við það þótt veðrið hafi ekki alltaf leikið við hana meðan á dvöl hennar stóð.

Fagnað á götum Kabúl

Ríkisstjórn Talíbana í Afganistan fagnaði því í dag að fimm ár eru liðin frá því að höfuðborg landsins, Kabúl, var hertekin. Brynvarðir bílar skreyttir fánum keyrðu um stræti og fulltrúar ríkisstjórnarinnar tjáðu sig fjálglega um árangur hennar.

Fjöldi öku­manna á von á kæru

Lögregluþjónar á Lögreglustöð 3, sem sinnir Kópavogi og Breiðholti, áfengismældu ökumenn í dag. Þá var kallað var eftir aðstoð lögreglu miðsvæðis í Reykjavík þegar farþegi leigubifreiðar neitaði að greiða far sitt en hann má eiga von á kæru fyrir fjársvik eftir athæfi sitt. 

Dorrit sendir rabbínanum tóninn

Dorrit Moussaieff, fyrrum forsetafrú, sendir rabbínanum Shmuley Boteach tóninn í færslu á samfélagsmiðlinum Threads.

Sjá meira