Fréttamaður

Silja Rún Sigurbjörnsdóttir

Silja Rún er fréttamaður á fréttastofu Sýnar.

Nýjustu greinar eftir höfund

Fengu ekki bætur þrátt fyrir ó­hreint her­bergi

Kærunefnd vöru- og þjónustukaupa telur fimm manna hóp ekki eiga rétt á bótum frá ferðaskrifstofu eftir að hótelgistingu þeirra reyndist ábótavant. Hópurinn taldi sig eiga rétt á bótum og sagði hótelíbúðina hafa verið óhreina, ýmis tæki biluð, gat hafi verið á hurðinni og ljósaperur vantaði í mörg ljós.

Stefna á að af­lýsa öllum flug­ferðum

Að öllu óbreyttu verða allar flugferðir með Icelandair frá landinu dagana 23. og 24. september felldar niður vegna yfirvofandi verkfalls flugvirkja. Farþegum stendur til boða að breyta bókuðum ferðum en eru þær breytingar háðar sætaframboði.

Loka Kennedy-miðstöðinni eftir að Trump fékk ekki nafn sitt á bygginguna

Donald Trump Bandaríkjaforseti gaf út í dag að ef nafn hans yrði ekki sett upp á byggingu Kennedy-listamiðstöðvarinnar mættu fyrirhugaðar endurbætur á byggingunni ekki fara fram. Byggingunni var lokað nokkrum klukkustundum eftir að dómari kvað upp að hann mætti ekki endurnefna miðstöðina.

Ingólfur leysir Baldur af

Ferjan Baldur fer í slipp í Hafnarfirði þann 6. október og verður farþegabátnum Ingólfi siglt í stað Baldurs. 

Amanda Seyfried og Thomas Sadoski skilin

Leikarahjónin Amanda Seyfried og Thomas Sadoski hafa sagt það gott eftir níu ára hjónaband. Saman eiga þau tvö börn en segja skilnaðinn hafa verið það besta fyrir fjölskylduna.

Gátu ekki gefið skýr svör um mögu­legt ástar­sam­band

Maður og kona hafa hlotið fimm og þriggja mánaða skilorðsbundinn fangelsisdóm fyrir peningaþvætti hér á landi. Bæði eru þau erlendir ríkisborgarar sem fyrir dómara og lögreglu gátu ekki sammælst um hvort þau ættu í ástarsambandi eða ekki.

Tvö al­var­leg at­vik hjá dagforeldri skráð

Gerðar voru athugasemdir um að aðbúnaði barna væri ábótavant á starfsstöð dagforeldris 35 sinnum árið 2025. Í tveimur tilfellum var barn talið í hættu statt. Farið var í óboðaðar eftirlitsheimsóknir á árinu.

„Það kom babb í bátinn í Hafnarfjarðarhöfn“

Stjórnarformaður Tækniskólans telur að Hafnarfjarðarbær þurfi að standa undir tjóni sem verður af því að skólinn fékk ekki lóð í Hafnarfirði. Fjölmörg sveitarfélög hafa boðað fram aðstoð, þar á meðal Reykjavíkurborg.

„Við höfum ekki séð svona frá­bærar tölur í háa herrans tíð“

Mannekla er minni í leikskólum, grunnskólum og frístund í Reykjavík í ár miðað við fyrri ár. Sviðsstjóri segist ekki hafa séð svo góðar tölur í mörg ár. Í tilkynningu frá Reykjavíkurborg kemur fram að 67 prósent leikskólanna annaðhvort fullmannaðir eða nálægt því að vera fullmannaðir. 

Ekkert verður af kaupum Heklu á Bílson

Ekkert verður af kaupum Heklu á Bílson ehf. eftir að seljendurnir töldu það fyrirsjáanlegt að Samkeppniseftirlitið myndi ekki samþykkja samrunann.

Sjá meira