Erlent

Hinn grunaði með geð­klofa og fluttur á geð­deild

Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar
Emmanuel Macron Frakklandsforseti lagði leið sína í Yvelines-hérðað eftir árásina.
Emmanuel Macron Frakklandsforseti lagði leið sína í Yvelines-hérðað eftir árásina. EPA

Maður sem grunaður er um að hafa hafið skothríð í bæ í grennd við París hefur verið fluttur úr gæsluvarðhaldi á geðdeild. Einn lést í árásinni og slösuðust fimm, þar á meðal tólf ára gömul stúlka sem liggur þungt haldin.

Árásin átti sér stað á föstudag í Yvelines-héraði sem er rétt vestan við París í Frakklandi. Hinn grunaði á að hafa ekið um bæinn Trappes og skotið út um gluggann. Árásin er talin vera byggð á kynþáttafordómum.

Maðurinn var handtekinn tveimur klukkustundum síðar. Degi síðar voru þrír fjölskyldumeðlimir hans einnig handteknir. Í dag var maðurinn síðan látinn laus og fluttur á geðdeild en hann reyndist vera með geðklofa. Hann var einnig undir áhrifum kókaíns og kannabiss á meðan árásin stóð yfir.

„Þessi athugun mun leiða í ljós hvort geðheilsa hans leyfir að yfirheyrslum verði haldið áfram,“ hefur Ouest-France eftir fulltrúa embættis saksóknara.

Fimm urðu fyrir skotum mannsins, þar á meðal tólf ára gömul stúlka sem var alvarlega slösuð. Hún er enn á sjúkrahúsi. Maðurinn sem lést hét Pengo Bossio Wangi og var 26 ára gamall.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×