Innlent

„Jón Gnarr er ein mesta príma­donna Ís­lands­sögunnar“

Elísabet Inga Sigurðardóttir skrifar
Össur Skarphéðinsson segir að hlusta verði á Jón Gnarr.
Össur Skarphéðinsson segir að hlusta verði á Jón Gnarr. vísir/vilhelm

Össur Skarphéðinsson segir Jón Gnarr eina mestu prímadonnu íslenskra stjórnmála. Hann hafi verið í einu versta hlutverki sem stjórnmálamaður kemst í, fyrir utan það hlutverk að vera í minnihluta borgarstjórnar Reykjavíkur. Össur segist enn aðdáandi Ólafs Ragnars Grímssonar þó hann sé ekki lengur formaður aðdáendaklúbbsins.

Össur Skarphéðisson, fyrrverandi formaður Samfylkingarinnar og utanríkisráðherra ræddi málefni Viðreisnar í Sprengisandi á Bylgjunni í morgun. Sagði hann nauðsynlegt að flokksforysta hverju sinni sé í nánum tengslum við þingmenn og til að vita hvað grasrót flokka hugsi hverju sinni sé ráð að tala við þingmennina sem eru úti um allar koppagrundir.

„Þar fyrir utan vitum við það auðvitað að Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar, allavega í stjórnmálum Íslendinga á síðustu 100 árum. Hann er prímadonna og öllum þykir vænt um hann. Hann er allt öðruvísi einstaklingur og þingmaður heldur en allir aðrir.“

Viðreisn hafi gengið á eftir því að fá Jón í framboð fyrir flokkinn og segir Össur að hann hafi töluvert verið notaður í auglýsingum.

„Þorgerður Katrín hafði líka notað hann og ég hef notað það orð. Hún brúkaði hann í auglýsingum með sér vegna þess að hann hefur sitt pólitíska og persónulega „constitution“ ef ég má sletta pínulítið.“

Hlusta má viðtal Páls Magnússonar við Össur í spilaranum.

Jón hafi bara verið atkvæði

Þegar Össur var formaður Samfylkingarinnar hafi hann lagt mikla áherslu á að vera í tengslum við sína þingmenn, enda geti alls konar mál komið upp.

„Sérstaklega þegar þú ert með mann eins og Jón Gnarr. Fyrir utan hans persónulegu sérkenni þá er hann í þeirri stöðu sem að ég hef stundum sagt að sé versta staðan sem hægt er að vera í sem stjórnarliði. Hann hafði ekkert sérstakt embætti, hann var ekki formaður nefndar, hann var ekki formaður þingflokks, hann var bara atkvæði og þú þarft að sinna slíku fólki sérstaklega því það er svo erfitt að vera í þessu hlutverki. Það er bara eitt hlutverk sem er verra, sem ég hef verið í líka, að vera í minnihluta í borgarstjórn Reykjavíkur.“

Össur segist taka mark á Jóni og greinilegt að honum hafi verið ofboðið.

„Hann sem að varð síðar einn af þeim sem var notaður til þess að draga fylgi að okkur sem studdum já-ið í Evrópusambandskosningunum. Ég meina, það var gerð róttæk stefnubreyting á plani ríkisstjórnarinnar og dagsetningu kosninga breytt, sem ég tel algjörlega fráleitt og hafi verið sjálfsmark og átt mikinn þátt í því hvernig fór... en hann fær ekki einu sinni að vita af því. Honum er ekki sagt frá því, hann heyrir það í fréttum. Ókei, menn geta dregið í efa, er Jón Gnarr að segja satt? Já, það eru vitni. Það eru vitni sem hafa leitt sjálfa sig fram.“

Dagsetningin sjálfsmark og Össur dýróður

Össur segir að tímasetning þjóðaratkvæðagreiðslunnar hafi verið afleidd.

„Dagsetningin var afburðaheimskuleg. Og eins og ég sagði, ég tel að hún hafi átt mikinn þátt í ósigrinum vegna þess að hún kemur þarna beint ofan í sveitarstjórnarkosningar.“

Frámunalega illa hafi verið staðið að kosningabaráttu Já-liða.

„Forsætisráðherrann fór eftir því plani sem fyrir hana var lagt af einhvers konar kosningastjórn. Það veit ég vegna þess að ég var auðvitað einn af þeim sem var dýróður yfir því hvernig þessi kosningabarátta, hvernig henni vatt fram.“

Gamall og ríkur jálkur ekki beðinn um peninga

Það sem best hafi verið rekið í baráttunni fyrir já-inu var að mati Össurar slagorðið: Já til að sjá.

„Kosningabaráttan „by the way“ var þannig rekin að ég meina... ég var ekki einu sinni beðinn um peninga. Ég er orðinn gamall jálkur og nóg af peningum fyrir mig að leggja þannig að ég þurfti nokkrum dögum fyrir kosningarnar, ég og Kristján Möller, að leita uppi: Hvar getum við látið hundrað þúsund kallinn okkar, skilurðu? Enginn sem bað um.“

„Vík milli vina“ segir Össur.Vísir/Vilhelm

Ekki lengur formaður aðdáendaklúbbsins

Össur segir að Nei-hreyfingunni hafi tekist að stilla upp óvæntu fólki og nefnir hann Ólaf Ragnar Grímsson sem að mati Össurar hafi þó verið með ósvífinn málflutning.

Varst þú ekki formaður í aðdáendaklúbbi Ólafs Ragnars?

„Orðum það svo að ég er ekki formaður lengur í þeim klúbbi en ég er aðdáandi Ólafs Ragnars Grímssonar. Ég tel að hann hafi verið yfirburðastjórnmálamaður á minni tíð en það verður vík milli vina og það var náttúrulega hann sem kenndi mér að aldrei láta neinu ósvarað og alltaf hjóla. Og þegar enginn hjólaði í vitleysuna úr honum þegar hann hélt því fram, sem var það lágkúrulegasta í þessari kosningabaráttu, að Kristrún Frostadóttir og eftir atvikum Þorgerður ætluðu ekki að standa við það að setja samninginn í þjóðaratkvæði, þá þegar enginn svaraði því þá var það ég sem síst skyldi sem varð heitt.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×