Fréttamaður

Smári Jökull Jónsson

Smári Jökull er fréttamaður á fréttastofu Sýnar.

Nýjustu greinar eftir höfund

„Fræða en ekki hræða“

Sviðsstjóri almannavarnarsviðs ríkislögreglustjóra segir ekki markmiðið að hræða almenning þegar hvatt er til þess að fólk efli viðbúnað sinn en í dag var gefinn út bæklingurinn „Verum viðbúin“ sem meðal annars er ætla að styrkja seiglu samfélagsins.

Hafnað með af­gerandi hætti

Tillaga um að Elisabeth Thand Ringqvist verði næsti forsætisráðherra Svíþjóðar var felld í sænska þinginu með afgerandi hætti nú eftir hádegið. Ljóst var fyrir atkvæðagreiðsluna að Ringqvist væri ekki með meirihluta þingmanna á bak við sig og færast Svíar sífellt nær þeim möguleika að kjósa þurfi upp á nýtt.

Ís­lendingur dæmdur fyrir dreifingu barnaníðs­efnis í Kanada

Dómstóll í Abbotsford í Kanada hefur dæmt Íslendinginn Jóhann Sveinsson í eins og hálfs árs fangelsi fyrir dreifingu og vörslu barnaníðsefnis. Jóhann játaði sök í desember fyrir tæpum tveimur árum eftir að hafa flúið réttvísina um nokkurt skeið þar á undan.

Yfir hundrað pró­senta munur á verði fyrir um­felgun

Miklu munar í verði á umfelgun bíla samkvæmt verðlagseftirliti ASÍ þar sem verð á umfelgun og dekkjaskiptum var skoðað fyrir ólíkar felgu- og bílastærðir. Fyrir bíl á 22 tommu dekkjum er hæsta verð nærri þrefalt hærra en það lægsta.

Rússar hnýta í Þor­gerði Katrínu vegna um­mæla um skrif Heimis Más

Rússneska sendiráðið á Íslandi segist afar undrandi á orðum Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur utanríkisráðherra á Alþingi í gær þar sem hún sagði tíst Ólafs Ragnars Grímssonar hafa verið alvarlegri en skrif Heimis Más Péturssonar framkvæmdastjóra þingflokks Flokks fólksins. Rússar skrifa þó að orð Þorgerðar Katrínar gefi ástæðu til varlegrar bjartsýni.

Rússar gerðu á­rás á sjúkra­hús í Kharkív

Að minnsta kosti 73 eru særðir eftir árás Rússa á sjúkrahús í Kharkív í nótt. Flytja þurfti yfir tvö hundruð sjúklinga á önnur sjúkrahús en samkvæmt ríkissaksóknara Úkraínu var árásin gerð á gang sem tengir saman byggingar sjúkrahússins.

Fram­tíð Trump í húfi á kjör­degi í Banda­ríkjunum

Bandaríkjamenn ganga að kjörborðinu í dag í kosningum sem gætu haft mikil áhrif á seinni tvö ár kjörtímabils Donalds Trump. Samkvæmt könnunum hafa kjósendur mestar áhyggjur af auknum kostnaði í samfélaginu en kosningarnar koma á erfiðum tíma fyrir Repúblikanaflokkinn.

Mann­dráps­mál, elti­hrellir og sögu­leg kaup

Feðgar voru úrskurðaðir í gæsluvarðhald í gærkvöldi í tengslum við manndráp í Breiðholti aðfaranótt sunnudags. Lögreglan staðfestir að málið tengist einhvers konar uppgjöri en sonurinn er grunaður um að hafa stungið tvo menn með þeim afleiðingum að annar þeirra lést.

Kælar mat­vöru­verslana hakkaðir á ný

Tölvuþrjótar réðust gegn matvöruverslunum í Svíþjóð í morgun með þeim afleiðingum að hitastig í kælum og frystiskápum rauk upp úr öllu valdi. Árás af svipuðum toga var gerð í Frakklandi á dögunum og brugðust íslensk fyrirtæki við í kjölfarið.

Sjá meira