„Svívirðileg svik“ Þingkona demókrata í Michigan-ríki í Bandaríkjunum hefur lýst yfir stuðningi við frambjóðanda Repúblikana í öldungadeildarkosningunum í ríkinu. Ákvörðunin kemur í kjölfar harðvítugra deilna við frambjóðanda eigin flokks en spennan fyrir þingkosningarnar í Bandaríkjunum á morgun nálgast nú suðupunkt. 2.11.2026 06:34
Skattlagning á erlenda tæknirisa enn til skoðunar Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra segir að verið sé að meta hvaða aðgerðir myndu raunverulega skila árangri þegar kemur að skattlagningu alþjóðlegra tæknifyrirtækja. Aðgerðaleysi ríkisstjórnar í málinu hefur verið gagnrýnt en ráðherra segir að unnið verði að málinu í vetur. 2.11.2026 06:32
Skoða tengsl milli gerenda og fórnarlambsins í Breiðholti Meðal þess sem til rannsóknar er í manndrápsmálinu í Breiðholti eru möguleg tengsl á milli aðila málsins. Eftir því sem lögregla kemst næst þekktust gerendur og þolendur en að sögn yfirlögregluþjóns á rannsóknarsviði er sá þáttur málsins áfram til skoðunar. 1.11.2026 17:01
„Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Mjög miklar líkur eru á að Demókratar vinni sigur í báðum þingdeildum í Bandaríkjunum í kosningum á þriðjudag að sögn sérfræðings um bandarísk stjórnmál. Fari svo þá blasi við að stofnaðar verði rannsóknanefndir sem muni skoða embættisaðgerðir Trump Bandaríkjaforseta og ríkisstjórnar hans. 1.11.2026 14:32
„Það var engu bætt inn í samninginn sem sneri að tölulegum þáttum“ Formaður Kennarasambandsins segir afar mikilvægt að samkomulag hafi náðst í deilu kennara og sveitarfélagana. Skrifað var undir samkomulag í gærkvöldi, rétt áður en frestur rann út til að virkja forsenduákvæði í kjarasamningum sem hefði þýtt að kjarasamningar yrðu mögulega lausir í mars. 1.11.2026 13:02
Björguðu hamsatólginni: „Ég er algjörlega að stökkva út í djúpu laugina“ Hjónin Þórhildur Jónsdóttir og Jónas Sigmarsson ætla að sjá til þess að hamsatólgin þjóðþekkta muni áfram fást í verslunum landsins. Reksturinn mun flytjast til Húsavíkur og segist Þórhildur vera að stökkva í djúpu laugina og að hún muni þurfa að ráða starfsfólk til vinnu við framleiðsluna. 31.10.2026 17:32
Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Ríkissáttasemjari hefur lagt fram tillögu í virðismatsdeilu kennara og sveitarfélaga. Hafa aðilarnir tíma til miðnættis til að taka afstöðu til tillögunnar en þá rennur út frestur til að virkja forsenduákvæði í kjarasamningi. 31.10.2026 16:39
Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara Kennarar voru boðaðir á fund hjá ríkissáttasemjara skömmu fyrir hádegi en í kvöld rennur út frestur til að virkja forsenduákvæði í kjarasamningum kennara og Sambands íslenskra sveitarfélaga vegna viðræðna um virðismat. 31.10.2026 13:03
„Miður að við séum komin á þennan stað“ Formaður Félags íslenskra atvinnuflugmanna segir miður að „menn séu komnir á þennan stað“ eftir að Icelandair sendi póst beint á félagsmenn með samningstillögum í kjaraviðræðum. Engin samskipti hafa verið á milli félagsins og Icelandair í kjölfarið. 31.10.2026 12:35
„Það er bara mjög sorglegt“ Stjórnarmaður Samtakanna 78 segir það skringilega nálgun að líta svo á að hinseginn fáninn sé útilokandi fyrir þá sem ekki tilheyra hinsegin samfélaginu. Engin þörf sé að að færa slíka umræðu inn í íslenskt samfélag eða pólitík. 31.10.2026 12:19