Salómonsdómur í deilu um pinnahælaför í parketi Kærunefnd húsamála hefur gert leigusala, sem vildi ráðstafa tryggingafé til viðgerðar á parketi vegna skemmda eftir pinnahæla, að endurgreiða fyrrverandi leigjendum sínum tæpan helming tryggingarinnar með vöxtum. 8.5.2026 08:03
Astró og Bix í góðu lagi en Norðquist hafnað Mannanafnanefnd hefur undanfarið meðal annarra lagt blessun sína yfir eiginnöfnin Jósmundur, Ván, Cameron og Bix en hafnað beiðnum um eiginnöfnin Viborg eða Norðquist. 7.5.2026 10:34
Fyrsta jarðarförin í Flatey í 69 ár varð undursamlegt ævintýri „Jafnvel þótt það væri mikið tilstand og fyrirhöfn þá vildi ég flytja hana aftur heim,“ segir Gunnar Hnefill Örlygsson um ömmu sína, Emilíu Sigurjónsdóttur, sem var til moldar borin á æskuslóðum sínum í Flatey á Skjálfanda í liðinni viku þegar jarðsungið var frá Flateyjarkirkju í fyrsta sinn í 69 ár. 2.5.2026 07:03
Bubbi komst ekki í jarðarför Bjögga „Ég veit það bara að Ari getur ekki brugðist mér. Það er bara svoleiðis,“ segir Bubbi Morthens sem gat ekki verið viðstaddur jarðarför Björgvins Halldórssonar en segja má að með sígildri eftirhermu hafi Ari Eldjárn farið nærri því að fylla skarð hans. 30.4.2026 10:27
Rifjaði upp erfitt augnablik frá 1994 til að skjóta á mótherja Regnbogafánar og lausaganga flokksgæðinga komu við sögu þegar oddvitar flokkanna sex sem bjóða fram fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í Hafnarfirði mættust í fjörugum umræðum við kosningapallborð fréttastofu Sýnar, Vísis og Bylgjunnar í gær. Skotið var á oddvita fyrir brotthvarf úr ráðherrastól fyrir rúmlega þrjátíu árum. 30.4.2026 07:00
Andar sig reyklaus í gegnum kosningabaráttuna „Það eru komnir átta dagar og ég finn fyrir ofboðslegu frelsi og er að springa úr monti,“ segir Birna Gunnlaugsdóttir, menntunarfræðingur og frambjóðandi Sósíalista, sem eftir tæplega hálfa öld hefði sjálfsagt getað valið betri tíma til að hætta að reykja en ætlar að hugleiða og anda sig í gegnum kosningabaráttuna. 28.4.2026 15:27
Jón Pétur segir enga feðraveldisrembu í „árþúsunda náttúruvali“ Jón Pétur Zimsen, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, segist með færslu sinni á X um geðheilbrigði ungra, íslenskra kvenna alls ekki vera að leggja til að kynjahlutverkin verði færð aftur um 100 ár með orðum sínum um að ómögulegt sé að bæla „niður árþúsunda náttúruval vegna skoðana framsækinna háskólamanna af hugvísindadeildum.“ 27.4.2026 16:51
Jónas upplifði pot Ásdísar ekki sem árás „Ég upplifði þetta pot ekki sem mikla árás,“ segir Jónas Már Torfason, oddviti Samfylkingarinnar í Kópavogi, sem tók ekki eftir því þegar Ásdís Kristjánsdóttir, bæjarstjóri og oddviti Sjálfstæðisflokks, ýtti tvisvar við honum þegar þau tókust á um orðið í heitum umræðum á Sprengisandi í gær. 27.4.2026 10:34
Hátindur Netflix réttur staður fyrir Baltasar Fyrstu viðbrögð gagnrýnenda við Netflix-myndinni Apex eftir Baltasar Kormák eru almennt jákvæð og hann sagður hafa skilað traustum óbyggðatrylli með hryllingsívafi. Þá uppskera Charlize Theron og Taron Eggerton mikið lof fyrir frammistöðu sína í myndinni. 24.4.2026 14:35
Gunnar Smári rís upp úr „rotnandi holdi“ í sumar Gunnar Smári Egilsson, fjölmiðlamaður og prímus mótor Samstöðvarinnar, glímir enn við afleiðingar þeirra alvarlegu veikinda sem hafa í tvígang lagt hann inn á hjartadeild. Þeim sem í sumarbyrjun forvitnast um líðan hans segist hann hafa það „skítt og lagó“ en hann verði góður í sumar. 24.4.2026 11:55