Bubbi komst ekki í jarðarför Bjögga Þórarinn Þórarinsson skrifar 30. apríl 2026 10:27 Bubbi gat ekki verið viðstaddur jarðarför Bjögga en hefur frétt af því að Ari Eldjárn hafi skilað nærveru hans með sígildum sóma. Vísir/Samsett „Ég veit það bara að Ari getur ekki brugðist mér. Það er bara svoleiðis,“ segir Bubbi Morthens sem gat ekki verið viðstaddur jarðarför Björgvins Halldórssonar en segja má að með sígildri eftirhermu hafi Ari Eldjárn farið nærri því að fylla skarð hans. „
Ég bara gat ekki mætt,“ segir Bubbi sem var búinn að bóka sig annars staðar með löngum fyrirvara. „Og það var ekki hægt að laga það en ég sendi honum kveðju í gærmorgun og skrifaði auðvitað minningargrein um hann líka.“ Ari Eldjárn hélt minningarræðu um Björgvin í jarðarförinni og kryddaði hana með eftirhermum sínum af þeim Bjögga og Bubba sem, þrátt fyrir að hafa því miður ekki verið á staðnum, efast ekki um að Ari hafi skilað honum með sama sóma og endranær. „Ari er búinn að herma eftir mér lengi og ég veit það bara að Ari getur ekki brugðist mér. Það er bara svoleiðis. Hann er bara frábær, hann er engum líkur. Það eru margir búnir að hringja í mig og segja mér hvað þetta hefði verið gaman. Þannig eiga nú jarðarfarir í flestum tilfellum að vera, allt yfir fimmtugt á að vera gaman,“ segir Bubbi og þvertekur þó fyrir að Ari sé jafnvel betri en frummyndin. „Nei, aldrei. Hann á ekki breik í frummyndina. Nei, nei, nei. En hann er samt afbragð. Hann er algjörlega lygilegur, sko. Hann er með guðs gjöf en það er ekki nóg að hafa gjöfina, þú þarft að hafa ástríðuna, agann og viljann til þess að mastera það sem þú ert að gera og það tekur enginn neitt frá Ara. Hann er bestur. Ari er æðislegur. Mér þykir undurvænt um hann og hans fólk.“ Bubbi víkur síðan að sögunni af þeim Bjögga sem Ari rakti með leikrænum tilþrifum í minningarorðum sínum. „Þegar ég fékk Björgvin loksins til að samþykkja að gera tónleika með mér þá stakk ég upp á að Ari yrði kynnir,“ segir hann. Þar sem Ari var þá búinn að herma eftir Bubba í mörg ár var næsta víst að hann myndi taka enn einn snúning á honum á tónleikunum og þá hafi vitaskuld ekki annað komið til greina en að hann grínaðist einnig með Bjögga.„Ég held að hann hafi verið að segja þessa sögu í jarðarförinni og búið til skemmtilegan skets í kringum það að hann hefði verið svona með okkur, hvorn á sinni öxlinni, að falast eftir því að ef hann gerði grín að einum okkar þá yrði hann líka að gera grín að hinum. Eitthvað svona fallegt, sko,“ segir Bubbi. „En Björgvin, hann hefði nú ekki sætt sig við það að það yrði bara gert grín að Morthens en ekki honum. Björgvin var alveg kostulegur með svona hluti. Það var alveg metnaður hjá honum.Einhvern tímann var ég að tala um einhver veikindi og þá dobblaði hann það sko: „Já, já, já. Ég er búinn að vera miklu veikari.“ Ég held að það eina sem Björgvin gat ekki dobblað mig í hafi verið bara ástundun í líkamsræktinni. Annars var hann alveg kostulegur.“ Útförin var í beinni útsendingu á Sýn og Vísi. Upptöku má sjá að neðan.
Andlát Björgvins Halldórssonar Tónlist Hallgrímskirkja Mest lesið Leiðir skilja hjá Ólafi Ragnari og Dorrit Lífið Dregur sig í hlé: „Þessi aumingja kona er að deyja beint fyrir framan okkur“ Lífið Dó ekki ráðalaus þegar filippseyska löggan mætti Tónlist Líkamlega lemstruð og fötin í rúst en vel þess virði Lífið „Ég vil vera bestur í öllu“ Lífið Gummi Google selur glæsihús á Grímshaga Lífið Opnar sig um þunglyndi og depurð Lífið Stjörnulífið: Heiðdís Rós komin heim Lífið Fyrsta platan í tuttugu ár Lífið Vill skapa staðinn sem sonur hennar þurfti en fann aldrei Lífið Fleiri fréttir Líkamlega lemstruð og fötin í rúst en vel þess virði Leiðir skilja hjá Ólafi Ragnari og Dorrit „Ég vil vera bestur í öllu“ Dregur sig í hlé: „Þessi aumingja kona er að deyja beint fyrir framan okkur“ Opnar sig um þunglyndi og depurð Gummi Google selur glæsihús á Grímshaga Fyrsta platan í tuttugu ár Stjörnulífið: Heiðdís Rós komin heim Myndaveisla: Stjörnufans fyrir norðan á Einni með öllu „Ég er svolítið svífandi á bleiku skýi“ Sló pabba út með að kasta sér yfir línuna Vill skapa staðinn sem sonur hennar þurfti en fann aldrei Innipúki er ekki það sama og fýlupúki „Við getum ekki kvartað undan veðrinu“ Klukkutíma bröns getur kostað marga daga í rúminu Krakkatía vikunnar: Hungurleikar, biskup og geirfuglinn Big Pussy er látinn Fréttatía vikunnar: Vasaþjófar, KFC og morðhótanir Fiðrildi og flugeldar í maganum í Herjólfsdal Selur aflátsbréf fyrir forsjálustu syndgara helgarinnar Loðinn laumufarþegi sníkti far frá Úlfarsfelli Þjóðhátíð sett í blíðviðri í Eyjum Hættur í Jesus Christ Superstar eftir útgáfu lags til stuðnings Ísrael Ískaldur töffari, skapstór snillingur og afkastamikill vinnuþjarkur Árið sem skytturnar fjórar kvöddu Sam Smith trúlofað Halla Hrund og uglurnar þrjár Útför Megasar Gerði sátt við aðstoðarkonuna sem sakaði hann um nauðgun „Þegar við sáum kastalann var ekki aftur snúið“ Sjá meira