Þórarinn Þórarinsson

Nýjustu greinar eftir höfund

Skálm­öld stígur ölduna í héraðs­dómi

Aðal­með­ferð hófst fyrir Héraðs­dómi Reykja­víkur í dag í máli þunga­rokks­hljómsveitarinnar Skálmaldar gegn Alda Music ehf. en tekist er á um út­gáfurétt á plötunni með upp­tökum frá tón­leikum Skálmaldar og Sin­fóníu­hljómsveitar Ís­lands.

Sjálfs­mark með „sjúk­lega sam­fylkingar­legu“ kjöt­vöru­banni

Ekki er laust við að borgar­full­trúinn Líf Magneu­dóttir fagni því sem hún kallar „sjálfs­mark“ þegar hún vekur at­hygli á Face­book-færslu Viðreisnar­odd­vitans Bjargar Magnús­dóttur þar sem hún segir „bara svo sjúk­lega sam­fylkingar­legt“ að banna unnar kjöt­vörur í skólum borgarinnar.

Ó­vænt öku­ferð að ógleyman­legu augna­bliki

„Við Manuel erum ótrú­lega þakk­lát fyrir að pabbi hans hafi náð að vera viðstaddur fæðingu hans,“ segir Sidoni­e Schmitt sem vissi ekki hvaðan á hana stóð veðrið þegar hún var í miðri fæðingu, fyrir tæpum fjórtán árum, þegar fjórir ungir menn dúkkuðu óvænt upp með barns­föður hennar rétt áður en drengurinn kom í heiminn.

Ei­líf glötun bíður ekki endi­lega bóka í ruslagámum

„Þótt þitt ein­tak af bók fari í ruslið þá glatast hún ekki að eilífu,“ segir Kristjana Mjöll Jóns­dóttir Hjörvar, fag­stjóri hjá Lands­bóka­safninu, sem í kjölfar um­ræðu um fagur­bók­menntir í Sorpu­gámum telur rétt að minna á lög um skyldu­skil sem mögu­lega geti friðað sam­visku fólks sem þarf að henda bókum.

Bílar bíta grasið við bakka Vestur­bæjar­laugar

„Einu sinni notuðum við hesta sem átu gras. Nú eru bílarnir farnir að gera það,“ segir Vestur­bæingurinn Örn Úlfar Sævars­son sem um ára­bil hefur háð ein­hvers konar eins manns varnar­baráttu fyrir gras­balanum við Vestur­bæjar­laug sem miskunnar­lítið er notaður sem bílastæði.

Engin vettlinga­tök hjá Röggu þegar Mummi sökk í jökul­vatn

„Maður gerir bara það sem maður þarf að gera þegar maður lendir í svona aðstæðum,“ segir Ragn­heiður Samúels­dóttir, sem tókst með snörum hand­tökum að draga sinn reynda fjalla­mann, Krist­mund Þóris­son, á þurrt eftir að snjós­leðar beggja höfnuðu í jökul­vatni við Fúlu­kvísl um páskana.

Ás­grímur Halldórs­son slapp með skrekkinn frá ofsanum í Dave

„Danirnir höfðu engar áhyggjur af þessu. Það er það eina sem ég veit,“ segir Ægir Birgis­son, skip­stjóri Ás­gríms Halldórs­sonar, nýs upp­sjávar­skips, sem er í smíðum á Skagen í Dan­mörku og slitnaði frá bryggju þegar stormurinn Dave gekk með látum yfir Jót­land á páska­dag.

Ljós­myndarinn lifir ekki á „tagginu“ einu saman

Þolin­mæði ljós­myndarans Her­manns Helgu­sonar er þrotin og út­lit fyrir að hann neyðist til að höfða mál á hendur ferðaþjónustu­fyrir­tækjum sem hik­laust og ítrekað skreyta markaðs­efni sitt með lands­lags­myndum sem teknar eru ófrjálsri hendi af sam­félags­miðlum hans.

Mót­efni gegn af­mennskun og kúgun

Gus­Gus ætlar að sprengja sumarið í gang í lok maí með heil­mikilli dansveislu sem Biggi Veira lýsir sem ákveðnu viðbragði við af­mælistón­leikum síðasta árs þar sem miklu færri en vildu komust að þegar bandið reif stemninguna í Höllinni í tætlur.

Förgun bóka á­þekk því að lóga gælu­dýrum

Þær notuðu bækur sem Bjarni bók­sali Harðar­son í Bóka­kaffinu tekur við í tonna­tali komast, eðli málsins sam­kvæmt, ekki allar í endur­sölu og enda í Sorpu­gámum. Með Bjarna sem milli­lið friðar fólk þó sam­viskuna enda segir hann förgun bóka ekki ósvipaða því að að lóga gælu­dýrum.

Sjá meira