Perutertan lifir af inngildingu heilsufæðis á Alþingi Styggð kom að sælkerum á Alþingi við nýlega inngildingu heilsufæðis í þinghúsinu. Sumir hverjir óttuðust um sögufræga tertuhefð í þinghúsinu og vildu kenna þingflokksformanni Samfylkingarinnar um meinta aðför að kræsingunum. Hann kannast þó hvorki við að hafa slíkt áhrifavald né stæka andúð á kökum. 28.3.2026 07:03
Of stór biti að kyngja án íbúakosningar „Ég er mjög óánægður með þá ákvörðun meirihluta sveitarstjórnar Skagafjarðar að veita ekki íbúum möguleika á að kjósa um menningarhús,“ segir Daniel Þór Gunnarsson sem hugðist með undirskriftasöfnun þrýsta á um íbúakosningu sem sveitarstjórn Skagafjarðar sló út af borðinu á miðvikudag. 27.3.2026 15:19
Fall Vals í Afríku ætlar að reynast dýrkeypt „Það sem ég hélt að væri tognun reyndist vera þvagsýrugigt sem leyndi fótbroti sem þróaðist út í æðatappa,“ skrifaði Valur Gunnarsson, rithöfundur og sagnfræðingur með meiru þegar hann sendi út hjálparbeiðni á Facebook í dag. 27.3.2026 14:34
Menningarhúsið fer ekki í íbúakosningu Einar Einarsson, forseti sveitarstjórnar Skagafjarðar, lét á fundi hennar í gær færa til bókar að það verði „gleðidagur“ þegar starfsemi hefst í fyrirhuguðu menningarhúsi á Sauðárkróki. Meirihlutinn felldi síðan tillögu um íbúakosningu um bygginguna sem Einar segir að verði „glæsileg menningarmiðstöð.“ 26.3.2026 11:10
Kolin hitna undir menningarhúsinu á Króknum Sveitarstjórn Skagafjarðar fjallar í dag um fyrirhugaða undirskriftasöfnun vegna byggingar umdeilds menningarhúss á Sauðárkróki. Jóhanna Ey Harðardóttir, fulltrúi Byggðalista, segist vona að söfnunin verði samþykkt átakalaust. 25.3.2026 13:03
Gunnar Smári lagstur í sjúkrarúm Maríu Lilju Gunnar Smári Egilsson, höfuðpáfi Samstöðvarinnar, segir mikið á þann litla vinnustað lagt þar sem hann er aftur lagstur inn á hjartadeild Landspítalans og nú í sama rúm og vinnufélagi hans, María Lilja Ingveldar-Þrastardóttir Kemp, losnaði úr nýlega. 25.3.2026 10:09
Skálmöld gæddi sér á hráefni sögulegs „ógeðsdrykkjar“ Skálmaldarmönnunum Snæbirni Ragnarssyni og þó helst Þráni Árna Baldurssyni leiðist ekki að borða mat sem fólki býður oftar en ekki við. Þeir komust því heldur betur í feitt þegar þeim var boðið til alvöru „súrströmming-veislu“ á Akureyri. Þar sporðrenndu þeir glaðir aðalhráefninu í sögulegasta ógeðsdrykk 70 mínútna. 24.3.2026 07:32
Íbúakosning væri einföld sáttaleið í Skagafirði „Ég hef fulla trú á því að niðurstaða kosninga muni leiða í ljós andstöðu við Menningarhúsið í núverandi mynd,“ segir Sauðkrækingurinn Daniel Þór Gunnarsson, vongóður um að undirskriftasöfnun geti þrýst á lausn harkalegrar deilu um nýtt menningarhús í Skagafirði með íbúakosningu samhliða sveitarstjórnarkosningunum í maí. 23.3.2026 06:42
Deila um menningarhús skekur Skagafjörð Allt stefnir í að harðnandi átök um fyrirhugaða byggingu menningarhúss á Sauðárkróki verði að funheitu kosningamáli í Skagafirði. Gráa silfrið sem andstæðar fylkingar elda nálgast suðumark en fulltrúi Byggðalista vill íbúakosningu um málið sem oddviti Framsóknar lýsir aftur á móti sem stormi í vatnsglasi. 22.3.2026 10:03
Afsalar sér verðlaunum fyrir Sykurbað „Ég hef tekið þá ákvörðun að afsala mér Íslensku tónlistarverðlaununum og öllum þeim tilnefningum sem ég hef hlotið,“ segir tónlistarkonan Ásta Kristín Pjetursdóttir og þar með hafi hún sagt sitt síðasta í málinu sem hófst með „til- og fránefningu“ hennar til verðlaunanna í ár. 19.3.2026 08:56