Afturkölluð tilnefning grunsamlegri eftir misvísandi svör Tónlistarkonan Ásta Kristín Pjetursdóttir segist hafa fengið svo misvísandi svör frá aðstandendum Íslensku tónlistarverðlaunanna að óhjákvæmilega læðist að henni grunur um að til hafi staðið að tilnefna hana en sú ákvörðun einhverra hluta vegna verið dregin til baka. Hún þrýstir því áfram á um skýr og gagnsæ svör. 15.3.2026 16:00
Hrönn og Þórir hafna helstu ávirðingum á RIFF Stjórnendur Alþjóðlegu kvikmyndahátíðarinnar í Reykjavík segjast ekkert kannast við launagreiðslur undir lágmarki, misnotkun á úrræðum Vinnumálastofnunar og fleiri ávirðingar sem bornar voru á hátíðina í fréttaskýringaþættinum Þetta helst á Rás 1. 13.3.2026 12:40
Gísli Marteinn rís upp í krafti sýklalyfja „Það styttist samt í upprisu,“ segir Gísli Marteinn Baldursson sem, með hjálp sýklalyfja, er að hrista af sér flensu og lungnabólgu sem hafa í sameiningu haldið honum í tvær vikur fjarri góðu sjónvarpsgamni í spjallþættinum sem við hann er kenndur á Rúv. 12.3.2026 09:00
Lyfin stundum of dýr en ekki hægt að stökkva á ódýrasta kostinn Erla Gerður Sveinsdóttir, sérfræðilæknir í offitumeðferð, segir kostnaðinn sem fylgi þyngdarstjórnunarúrræðum sem nú standi til boða því miður reynast sumum ofviða. Þá sé eðlismunurinn á þyngdarstjórnunarlyfjum slíkur að ekki geti allir stokkið á ódýrustu lausnina í þeim efnum. 12.3.2026 06:47
Hundrað þúsund bóka múrnum rústað á Bókamarkaðnum „Staðan eftir þennan dag er þannig að seldar bækur eru 103.997 á móti 102.216 í fyrra og enn eru fimm dagar eftir,“ sagði Bryndís Loftsdóttir, framkvæmdastjóri Bókamarkaðar Félags íslenskra bókaútgefenda, eftir lokun í gær þegar ljóst var að sölumet síðasta árs verði bætt hressilega. 11.3.2026 09:17
Þúfan veltir þungu flatbökuhlassi Þegar hinn rómaði flatbökustaður La Colina í Borgarnesi hætti sáu vinkonurnar Rannveig Rögn Leifsdóttir og Agnes Hjaltalín Andradóttir sér leik á borði og hafa opnað veitingastaðinn Þúfuna í húsinu við Hrafnaklett. Undirtektirnar eru svo góðar að þangað streymir fólk þótt ekki hafi einu sinni gefist ráðrúm til að hengja upp skilti staðarins. 11.3.2026 06:47
Fræjum framtíðar sáð í gamlar bókasafnsbækur „Bókasöfn eru staðir ímyndunaraflsins en það á sér ekki aðeins stað í bókum heldur einnig í höndum okkar, í því sem við sköpum og við kjósum að gera,“ segir Fanny Sissoko sem ásamt Martynu Daniel heldur utan um Framtíðarfestivalið á Borgarbóksafninu þetta árið. 10.3.2026 14:00
Einn á sjúkrahús eftir árekstur á Hringbraut Miklar tafir eru á umferð um Hringbraut eftir árekstur við Hlíðarfót. Einn var fluttur með sjúkrabíl til skoðunar og slökkvilið er á vettvangi með dælubíl. 10.3.2026 10:20
Gríðarlegur verðmunur á þyngdarstjórnunarlyfjum Ríflega tvöfaldur verðmunur, eða allt að 140 prósenta munur, er á á dýrasta og ódýrasta þyngdarstjórnunarlyfinu hér á landi. Samkvæmt upplýsingum frá Lyfjastofnun mega hinsvegar ekki hvaða læknar sem er ávísa ódýrasta lyfinu auk þess sem það er skilgreint sem ávana- og fíknilyf. 7.3.2026 20:00
Segir hvorki Jesú, Múhameð né Þór hafna yfir lög Goðar Ásatrúarfélagsins fordæma ummæli kanslara kaþólsku kirkjunnar á Íslandi, um samkynhneigða. Kjalnesingagoðinn Jóhanna Harðardóttir segir um sjálfsagt viðbragð að ræða enda séu engir guðir hafnir yfir landslög, fyrir utan að mikið er um samkynhneigt fólk í hópi íslenskra heiðingja. 7.3.2026 07:01