Þórarinn Þórarinsson

Nýjustu greinar eftir höfund

Síminn búinn að glamra í fjóra ára­tugi

Sofin og vakin hafa hjónin Jóna Björg Óskars­dóttir og Víglundur Jón Gunnars­son sett mark á bæjar­braginn í Nes­kaups­stað með fjöl­breyti­legum og persónu­legum verslunar­rekstri í rúm 40 ár. Nú er þó mál að linni, Víglundur hefur staðið sína síðustu vakt í bygginga­vöru­versluninni PAN og fram undan er langt og langþráð frí.

Flóttinn frá Dúbaí gengur vel

Kærustu­parið Davíð Guðlaugs­son og Lovísa Ósk Davíðs­dóttir lentu í Jedda í Sádi-Arabíu í gærkvöld. Þaðan áttu þau svo bókað flug til London í morgun og því allt út­lit fyrir að áætlun þeirra um að forða sér frá Dúbaí á eigin vegum ætli að ganga upp.

Fót­brotinn og fé­vana í Afríku

Valur Gunnarsson, rithöfundur og sagnfræðingur með meiru, hefur undanfarið dvalið við skriftir í Naíróbí í Kenía þar sem hann situr nú fastur, fótbrotinn með lokað greiðslukort og langar heim, eins og hann orðar það í stöðufærslu á Facebook í dag.

Ís­lenskt par flýr Dúbaí á eigin vegum

„Það er er enginn sem hjálpar okkur eitt né neitt hérna,“ segir Davíð Guðlaugsson, sem hefur setið fastur í Dúbaí ásamt unnustu sinni, Lovísu Ósk Davíðsdóttur. Þau undrast ráðaleysi borgaraþjónustu utanríkisráðuneytis og ætla í nótt að freista þess að komast til Óman á eigin vegum.