Hundrað þúsund bóka múrnum rústað á Bókamarkaðnum Þórarinn Þórarinsson skrifar 11. mars 2026 09:17 Bryndís Loftsdóttir hjá Bókamarkaði Félags íslenskra bókaútgefenda er vígreif á nýjum stað enda sölumet síðasta árs kolfallið þegar fimm dagar eru eftir. Vísir/Vilhelm „Staðan eftir þennan dag er þannig að seldar bækur eru 103.997 á móti 102.216 í fyrra og enn eru fimm dagar eftir,“ sagði Bryndís Loftsdóttir, framkvæmdastjóri Bókamarkaðar Félags íslenskra bókaútgefenda, eftir lokun í gær þegar ljóst var að sölumet síðasta árs verði bætt hressilega. „
Síðustu tvö ár höfum við selt yfir 100.000 bækur. Fyrst 100.426 og svo 102.216 og akkúrat erum við komin 1781 bók yfir metið í fyrra og förum þá væntanlega langt yfir það,“ heldur Bryndís áfram. „Það er bara eitthvað í loftinu og það hlýtur bara að vera einhver svona blússandi lestrarbylgja í gangi.“ Bryndís er að vonum hæstánægð með nýja staðsetningu markaðarins sem er nú haldinn í nýlegri verslun Garðheima við Álfabakka. „Þetta er í fyrsta skipti sem bókamarkaðurinn er í póstnúmeri 109, Seljahverfinu. Það er bara alltaf notalegt hérna og þrátt fyrir ýmsar hrakspár í upphafi um að þetta væri nú ekki góður staður þá virðist þetta bara vera besti staðurinn sem við höfum verið á í áraraðir,“ segir hún og bætir við að svo virðist sem stóísk ró færist yfir mannskapinn eftir að hafa gengið í gegnum blómadeildina. Rétt áðan uppi í rjáfri Þegar talið berst að vinsælustu titlunum á markaðnum segir Bryndís sölulistana um margt áhugaverða enda séu þeir allt öðruvísi en þessir venjulegu. Þannig tróni til dæmis Illugi Jökulsson efstur á listanum yfir íslensk skáldverk með kverið sitt Rétt áðan. Bryndís segir skiptingu sölunnar milli flokka eindregið benda til þess að þau fullorðnu þurfi að herða sig í lestrinum og mælir með bóka- eða hurðamerki Bókamarkaðarins sem ákjósanlegu hjálpartæki í þeirri viðleitni. Mynd/Aðsend „Hún hefur náttúrlega gengið mjög vel, bókin hans Illuga, og er mest selda íslenska skáldverkið. Hvorki meira né minna. Það er magnað. Hún fékk ágæta dóma en flaug ekkert svakalega hátt en hér er hún bara uppi í rjáfri gróðurhússins,“ segir Bryndís og útilokar ekki að fögur orð sem Kolbrún Bergþórsdóttir lét falla um bókina í Kiljunni hafi eitthvað með velgegnina að gera. Glæpadrottningin Eva Þegar Bryndís tók saman mest seldu glæpasögurnar kom í ljós að Eva Björg Ægisdóttir „á bara listann“, eins og Bryndís orðar það. „Hún er bæði með nýjar og gamlar og á, ef ég man rétt, sex af tíu mest seldu íslensku glæpasögunum.Sömu sögu er að segja af matreiðslubókalistanum sem Nanna Rögnvaldardóttir drottnar yfir. „Það er mjög sérstakt. Hún á líka sex af tíu eins og Eva í glæpasögunum. Eva Björg Ægisdóttir hefur nánast slegið eign sinni á listann yfir mest seldu íslensku glæpasögurnar frá 19. febrúar til 9. mars.Mynd/Aðsend Í íslensku skáldsögunum eru það svo Illugi, Salka Valka og Heimsljós. Þá kemur Merking Fríðu Ísberg, Hið heilaga orð, eftir Sigríði Hagalín Björnsdóttur, og Love Star eftir Andra Snæ,“ segir Bryndís. „Þetta eru svona öðruvísi metsölulistar og bara skemmtilegt. Þetta er annar heimur.“ Gagn og gaman toppar allt Mest selda bókin kemur ef til vill úr nokkuð óvæntri átt en vinsældir hennar gætu verið vísbending um að íslensk heimili ætli að segja slökum árangri í PISA-könnunum stríð á hendur. „Segja má að mest selda bókin til þessa dags sé Gagn og gaman. Það er bara þannig,“ segir Bryndís um endurútgáfu lestrarkennslubókarinnar fornfrægu. „Gaman og gaman 1 og 2 voru gefin út saman í einni bók þannig að það eru góð kaup og það hlýtur að mega lesa út úr þessu að fólk ætli sér greinilega að kenna öllum að lesa. Aðdáendur Ævars Þórs Benediktssonar, rithöfundar og „vísindamanns", tóku sínum manni fagnandi þegar hann mætti til að árita bækur sínar.Mynd/Aðsend Fólk grípur til gamalla vopna og það er Gagn og gaman og svo eru það Litlir lærdómshestar – Stafir,“ heldur Bryndís áfram og telur þarna annarri stoð rennt undir kenningu sína um að í gangi sé einhvers konar almennt, óformlegt átak í lestrarkennslu. Sólon gerði allt vitlaust Sveitabærinn með Sólon er mest selda barnabókin í flokki 0-6 ára og toppar þar ekki ómerkari góðkunningja uppkominna yngri kynslóða en H.C. Andersen, litlu gulu hænuna, Einar Áskel og Snúð og Snældu.„Sólon er týpa sem er, ef ég man rétt, í Sjónvarpi Símans, og enginn veit hver er sem ekki á barn undir fimm eða sex ára aldri eða eitthvað svoleiðis,“ segir Bryndís sem tilheyrði flokki hinna fáfróðu þar til Sólon varð á vegi hennar á bókahátíð í Hörpu.„Þá var ég næstum búin að skófla honum út þegar hann mætti í gallanum sínum og ég hélt bara að það væri eitthvert dimmisjónblæti í gangi,“ segir Bryndís og hlær. „Maður með eitthvað svona púngbindi eða eitthvað. Þetta var mjög furðulegur búningur. Svo sá ég bara að maðurinn var umkringdur börnum og þetta var bara algjör stjarna.“ Sólon gerði stormandi lukku á Bókamarkaðnum og athygli vakti hversu vel fór á með honum og bókmenntadrottningunni Kolbrúnu Bergþórsdóttur. Mynd/Aðsend Sólon var því aufúsugestur þegar hann mætti á Bókamarkaðinn, áritaði bók sína og gerði að sögn Bryndísar allt vitlaust. Börnin til fyrirmyndar Þegar Bryndís reynir að lesa í hvernig salan á markaðnum skiptist í flokka segir hún blasa við að salan í barnabókum sé gríðarleg. „Enda er úrvalið af barnabókum náttúrlega frábært og ég held að börn hljóti að lesa margfalt meira en við fullorðna fólkið. Ég held að við þurfum að fara að líta til þeirra sem fyrirmyndar því að ég myndi alveg vilja sjá svona fullorðinsbókasölu.“Bryndís segir hlutföllin þarna á milli hafa breyst mjög á þeim tíu árum sem haldið hefur verið jafn nákvæmlega utan um þessa tölfræði. „Þannig að það er stóraukin barnabókasala en við fullorðna fólkið þurfum að fara í einhvers konar lestrarbata. Við þurfum eiginlega bara að taka frá stund, láta hvorki símann né aðra fjölskyldumeðlimi trufla okkur, og lesa þó ekki væri nema í tíu mínútur.“Bókamarkaðurinn er opinn til klukkan 19 alla daga þar til yfir lýkur á sunnudaginn. „ Já, þessu er að ljúka og það setur að manni svolítinn trega.“
Bókaútgáfa Reykjavík Mest lesið Hvetur karlmenn til að leggja sig meira fram Tíska og hönnun Skíðaferðin til Sviss endaði á spítala á fyrsta degi Lífið Höfundur Fíusólar svarar reiðum mæðrum eftir ákall um bókabrennu Lífið Lýsir yfir stuðningi við Hafdísi Lífið Íslensk ungmenni fá sendar nektarmyndir í hefndarskyni Lífið Stikla úr Jóhönnu af Örk Bíó og sjónvarp Hundrað þúsund bóka múrnum rústað á Bókamarkaðnum Menning Djammið lifir á Prikinu Lífið „Enn önnur ömurlega lygasagan um mig“ Lífið Hafdís stígur fram vegna Kleina Lífið Fleiri fréttir Fá rödd Guðna lánaða Hundrað þúsund bóka múrnum rústað á Bókamarkaðnum Fræjum framtíðar sáð í gamlar bókasafnsbækur Gjöfull trekantur Þessi hljóta tilnefningu til Myndlistarverðlauna Ástin blómstraði á sýningu Tolla „Sorglegt að sjá svona flottan feril“ á þessum stað Eva Rún og Jón Kalman tilnefnd til bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs Andrew á Louvre Kinký bangsar og leðurklæddir kroppar „Ósmekkleg“ meðferð á eldri leikurum og álagið keyrt upp Forsetinn, fjölmiðlaskvísur og kempur í Borgarnesinu Fimm frækin fylltu Landsbankahúsið „Ný sýn, nýr heimur“ Metnaðarfull Mamma Mia í Hafnarfirðinum Seldu upp og undirrituðu samning til 666 ára Alaska og Birnir sigursæl Vetrarhátíðin sjaldan verið stærri Ólöf og Magnús ástfangin á frumsýningu Hestastelpa úr sveit og sjóðheitur hönnuður Pétur Gunnarsson sæmdur heiðursdoktorsnafnbót „Ljúfsárt og svolítið erfitt að kveðja kvikmyndahúsin“ Sjá meira