Hafnarfjörður

Hafnarfjörður

Mannfjöldi: 31.525 (2025). Flatarmál: 174 ferkílómetrar.

Fréttamynd

Leggja niður 4. bekk vegna pláss­leysis og kynjahalla

Barnaskólinn í Hafnarfirði, Hjallastefnuskólinn, hefur ákveðið að leggja niður 4. bekk skólans frá og með næsta skólaári og mun því aðeins vera fyrir börn í fyrsta til þriðja bekk. Foreldrar hafa verið boðaðir til fundar vegna málsins á mánudag. Hafnarfirði var tilkynnt um breytinguna fyrir mánuði síðan.

Innlent

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Ekið á skólarútu

Eitthvað var um meiðsli að sögn lögreglu eftir að ekið var á skólarútu í umdæmi lögreglustöðvar tvö sem sinnir verkefnum í Hafnarfirði og Garðabæ.

Innlent
Fréttamynd

Skóla­stjórinn um­deildi snýr ekki aftur

Dagný Kristinsdóttir, skólastjóri Víðistaðaskóla í Hafnarfirði, snýr ekki aftur til starfa í skólanum. Hún var send í leyfi í nóvember á meðan ráðist var í úttekt á stjórnunarháttum í skólanum. Úttekt sem kostaði 3,9 milljónir króna.

Innlent
Fréttamynd

Endur­spegli aukna hörku í garð launa­fólks hjá Hafnar­fjarðar­bæ

Verkalýðsfélagið Hlíf leitar nú starfsfólks hjá Hafnarfjarðarbæ sem hefur ekki fengið greidda desember-eða orlofsuppbót samkvæmt kjarasamningi. Verkalýðsfélagið stefndi bænum vegna vangoldinna persónuuppbóta starfsmanna og vann málið í júní í fyrra. Verkalýðsfélagið segir bæinn hundsa dóminn og ætlar með fleiri slík mál fyrir dómstóla.

Innlent
Fréttamynd

Gular við­varanir á suð­vestur­horninu

Spáð er austan og suðaustan 13-20 m/s sunnan- og vestantil í dag og fer að snjóa þar upp úr hádegi en von á rigningu eða slyddu síðdegis. Vindur verður hægari og úrkomulítið um landið norðaustanvert. Veður fer hlýnandi og hiti víða núll til átta stig síðdegis, hlýjast sunnan heiða.

Veður
Fréttamynd

Tók rúma þrjá tíma að slökkva eldinn

Allt tiltækt slökkvilið á höfuðborgarsvæðinu var kallað út á öðrum tímanum í dag vegna elds sem kom upp í iðnaðarhúsnæði að Brekkutröð í Hafnarfirði. Eldurinn var slökktur rétt eftir klukkan fimm.

Innlent
Fréttamynd

Guð­mundur Árni leiðir á­fram listann

Framboðslisti Samfylkingarinnar í Hafnarfirði var samþykktur á félagsfundi flokksins í dag. Guðmundur Árni Stefánsson leiðir áfram listann og Stefán Már Gunnlaugsson, Árni Rúnar Þorvaldsson og Hildur Rós Guðbjargardóttir eru þar jafnframt ofarlega. Elín Anna Baldursdóttir sálfræðingur vermir fjórða sætið.

Innlent
Fréttamynd

Meiri­hlutinn hafnar eigin til­lögu um byggingu í­búða fyrir eldra fólk

Á síðasta bæjarstjórnarfundi Hafnarfjarðarbæjar lögðum við bæjarfulltrúar Samfylkingarinnar fram tillögu um að hefjast handa um byggingu íbúða fyrir eldri borgara í Hafnarfirði. Tillagan byggir á niðurstöðum starfshóps sem lauk störfum í lok síðasta árs þar sem gert er m.a. ráð fyrir íbúðum fyrir eldri borgara á Sólvangssvæðinu og við Heiðvang/Vesturvang í Norðurbæ.

Skoðun
Fréttamynd

Lest í stað Borgarlínu?

Umræða um samgöngur á höfuðborgarsvæðinu hefur á undanförnum árum snúist að verulegu leyti um Borgarlínu. Það er skiljanlegt.

Skoðun
Fréttamynd

Vilja borgarlest í stað borgarlínu

Bæjarstjóri Reykjanesbæjar og oddviti sjálfstæðismanna í Hafnarfirði vilja skoða að tengja frekar miðborg Reykjavíkur við Hafnarfjörð með lest en fyrirhugaðri borgarlínu. Slík borgarlest yrði mikilvægasta samgöngubót í sögu þjóðarinnar.

Innlent