KA

KA

Fréttir af Knattspyrnufélagi Akureyrar, KA, frá Akureyri.

Fréttamynd

KA slítur sam­starfinu við Þór

KA og Þór hafa um árabil staðið saman að rekstri kvennaknattspyrnu á Akureyri í 3. flokki, 2. flokki og meistaraflokki kvenna en nú hefur verið ákveðið að slíta samstarfinu.

Sport

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Þriðjungur til Þórs og KA en rúmt pró­sent í menninguna

Fulltrúi Samfylkingarinnar í umhverfis- og mannvirkjaráði Akureyrarbæjar er hugsi yfir því hve miklir peningar hins opinbera fara í uppbyggingarverkefni tveggja íþróttafélaga bæjarins. Hún stingur upp á því að félögin deili keppnisvelli, líkt og þekkist í töluvert stærri deildum en efstu og næstefstu deild á Íslandi.

Innlent
Fréttamynd

„Ömur­leg niður­staða“

„Maður er dofinn og á erfitt með að hugsa skýrt í augnablikinu, mjög sár og svekktur. Þetta er bara ömurlegt. Þetta er ömurleg niðurstaða að við höfum farið niður,“ sagði Hallgrímur Jónasson, þjálfari KA eftir að fall liðsins úr Bestu deildinni var staðreynd þrátt fyrir 5–1 sigur á ÍBV.

Sport
Fréttamynd

Kær­kominn sigur KA/Þór

KA/Þór vann sinn fyrsta leik á tímabilinu í Olís deild kvenna í handbolta í dag þegar liðið hafði betur gegn Stjörnunni á heimavelli. Lokatölur 32-28 KA/Þór í vil.

Handbolti
Fréttamynd

„Kyngjum þessum leik og klárum hann sem fyrst“

KA mátti þola 4-1 tap gegn Val á Hlíðarenda í dag í næstsíðustu umferð neðri hluta Bestu deildar karla. Tapið reyndist dýrkeypt því með sigri Þórs gegn Stjörnunni er KA komið í fallsæti þegar aðeins ein umferð er eftir.

Sport
Fréttamynd

Upp­gjörið: Valur - KA 4-1 | Brekkan brött fyrir KA

Valur sigraði 4-1 í næstsíðustu umferð neðri hluta Bestu deildar karla í dag. Brekkan er því ansi brött fyrir lokaumferðina þar sem KA þarf bæði að ná hagstæðum úrslitum í sínum leik og treysta á úrslit Þórsara falli þeim í hag til að halda sæti sínu í deildinni.

Íslenski boltinn
Fréttamynd

KA-menn brotlentu í Garða­bæ

Stjörnumenn unnu frábæran sigur gegn heitum KA-mönnum í kvöld, 35-33, í 6. umferð Olís-deildar karla í handbolta. Þetta var annar sigur Stjörnunnar og annað tap KA sem situr í 3. sæti.

Handbolti
Fréttamynd

Bjarni Jó hættur

Reynsluboltinn Bjarni Jóhannsson er hættur þjálfun og yfirgefur sviðið sem leikjahæsti þjálfari Íslandssögunnar til þessa. 

Íslenski boltinn
Fréttamynd

Stjarnan - KA 0-3 | Halda sér ofan fallsvæðis

KA vann öruggan þriggja marka sigur á Stjörnunni á Samsungvellinum í Garðabæ í Bestu deild karla í dag. Hallgrímur Mar Steingrímsson og Adam Ægir Pálsson skoruðu í fyrri hálfleik áður en varamaðurinn Valdimar Logi Sævarsson innsiglaði sigurinn eftir að heimamenn misstu mann af velli. KA er áfram í fjórða sæti neðri hlutans með 26 stig, tveimur stigum fyrir ofan Þór sem er í fallsæti á meðan Stjarnan situr enn í öðru sæti neðri hlutans með 31 stig.

Íslenski boltinn
Fréttamynd

Sjáðu mörkin sem felldu Víking og Val

Tveir leikir voru á dagskrá í lokaumferð neðri hluta Bestu deildar kvenna í gær þar sem þrjú lið börðust um að forðast tvö fallsæti. Þór/KA hélt sér uppi með sigri í Víkinni og felldi þar með Víking og Val.

Íslenski boltinn
Fréttamynd

,,Mikið í gangi í hausnum núna”

Arna Sif Ásgrímsdóttir, fyrirliði Þórs/KA, sagðist hafa fundið fyrir miklum létti eftir tveggja marka sigur á Víkingi sem tryggði liðinu áframhaldandi veru í Bestu deild kvenna. Hún var stolt af viðbrögðum liðsins eftir tap í síðustu umferð en sagði vonbrigði með tímabilið einnig hafa verið ofarlega í huga.

Íslenski boltinn
Fréttamynd

Upp­gjörið: Víkingur R - Þór/KA 0-2 | Björguðu sér og sendu bæði Víking og Val niður um deild

Þór/KA tryggði sæti sitt í Bestu deild kvenna með tveggja marka sigri á Víkingi í Víkinni í lokaumferðinni. María Dögg Jóhannesdóttir og Erin Flurey skoruðu mörk norðankvenna á síðustu tuttugu mínútum leiksins eftir markalausan fyrri hálfleik. Úrslitin þýddu að Víkingur spilar á næsta tímabili í Lengjudeildinni ásamt Val en Þór/KA heldur sínu sæti í Bestu deildinni á næsta tímabili.

Íslenski boltinn
Fréttamynd

Sveppi og mamma hans gætu séð tvö lið falla

Þrjú lið berjast um síðasta örugga sætið í Bestu deild kvenna í fótbolta í kvöld. Valskonur gætu fallið í fyrsta sinn og þurfa að treysta á jafntefli í Víkinni á milli Víkings og Þórs/KA sem bæði eiga á hættu að falla.

Íslenski boltinn