Verðlag

Fréttamynd

„Skýrar og síendur­teknar hótanir í garð verkalýðs­hreyfingarinnar“

Vilhjálmur Birgisson er ekki ánægður með skilaboð Seðlabanka Íslands til launafólks en seðlabankastjóri og varaseðlabankastjóri sögðu í morgun að bankinn myndi ekki hika við að hækka stýrivexti ef laun hækka. Sérstaklega var minnst á brugðist yrði við ef forsenduákvæði kjarasamninga yrði beitt í september. Það mælir fyrir um að rifta megi samningum ef verðbólga mælist yfir fimm prósentum í ágúst. „Ef forsendur kjarasamninga standast ekki í september þá ber að segja þeim upp,“ segir Vilhjálmur.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Seðla­bankinn ó­sam­mála Daða Má

Í nýju riti Peningamála Seðlabanka Íslands segir að nýlegt verðbólguskot sé fyrst og fremst að rekja til hækkunar á opinberum gjöldum og þjónustu um áramót. Fjármála- og efnahagsráðherra hefur aftur á móti vísað slíku á bug og sagt verðbólguaukningu tilkomna vegna álagningar annarra en ríkisins.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Vöxtum haldið ó­breyttum og spennan í þjóðar­búinu er „horfin“

Þrátt fyrir aukningu í verðbólgu að undanförnu þá er hún talin vera tímabundin og því hafa verðbólguhorfur til lengri tíma lítið breyst, að sögn peningastefnunefndar Seðlabankans, sem heldur vöxtum óbreyttum í samræmi við væntingar flestra hagfræðinga. Samkvæmt nýrri spá er spennan í þjóðarbúinu horfin en samt útlit fyrir lítillega meiri hagvöxt í ár en áður var talið.

Innherji
Fréttamynd

Bein út­sending: Kynna vaxtaákvörðun og Peninga­mál

Ásgeir Jónsson, seðlabankastjóri og formaður peningastefnunefndar, og Þórarinn G. Pétursson, varaseðlabankastjóri og staðgengill formanns peningastefnunefndar, kynna yfirlýsingu nefndarinnar klukkan 09:30. Karen Áslaug Vignisdóttir, framkvæmdastjóri sviðs hagfræði og peningastefnu og aðalhagfræðingur bankans kynnir nýja útgáfu Peningamála. Beina útsendingu af kynningunni má sjá hér að neðan.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Við látum stjórnast af sértrú í peninga­málum

Með einni vel skiljanlegri og óhrekjanlegri forsendu ásamt reikningi sem við öll lærðum í barnaskóla má sýna fram á að helsta haldreipi Seðlabanka Íslands og Hagfræðideildar Háskóla Íslands, verðtryggingin, er lítið annað en snara um háls alþýðu Íslands.

Skoðun
Fréttamynd

Allt að 120 prósenta hækkun verðskrár

Pósturinn hefur birt nýja verðskrá sem tekur gildi þann 1. mars næstkomandi. Mesta verðhækkunin er á sendingum eins til tveggja kílóa smápakka til Evrópulanda annarra en Norðurlanda, sem hækka um 120 prósent.

Neytendur
Fréttamynd

Hlé á vaxtalækkunarferlinu þar til skýr merki um verðbólgu­hjöðnun birtast

Mikil aukning verðbólgunnar að undanförnu, einkum vegna hækkunar bifreiðaverðs í kjölfar vörugjaldabreytinga, kallar á hlé á vaxtalækkunarferlinu þar frekari vísbendingar um hjöðnun fara að birtast, að sögn aðalhagfræðings Kviku. Verðbólgumælingin í janúar setur peningastefnunefnd í óþægilega stöðu en verðhækkanir á fremur breiðum grunni staðfesta sumpart áhyggjur hennar af kostnaðarþrýstingi af völdum mikilla launahækkana.

Innherji
Fréttamynd

Líkurnar á lækkun „mjög litlar“

Daði Már Kristófersson fjármála- og efnahagsráðherra segist ekki ætla að spá fyrir um ákvörðun peningastefnunefndar um stýrivexti en nefndin kynnir ákvörðun sína á miðvikudag.

Innlent
Fréttamynd

„Mjög á­huga­verð um­ræða“

Olíufélögin hafa brugðist illa við málflutningi ríkisstjórnarinnar sem hefur sagt þau bera að ábyrgðar vegna aukinnar verðbólgu. Framsetningin sé villandi og standist ekki skoðun. 

Innlent
Fréttamynd

Hitni undir olíu­fé­lögum sem þurfi að passa sig

Forsætisráðherra segir að ríkisstjórnin hafi búist við meiri lækkunum á eldsneytisverði hjá olíufélögunum samfara því að eldsneytisgjöld og vörugjöld á bensíni voru felld niður um áramótin. Þau þurfi að passa sig. Ríkisstjórnin ætli að ná hallalausum fjárlögum til að ná tökum á verðbólgunni.

Innlent
Fréttamynd

Súkkulaðisnúðurinn segir sann­leikann

Þegar ég var polli voru súkkulaði snúðar mikið uppáhald. Hvað er betra en snúður og köld mjólk? Á góðum degi, gat ég reddað mér pening fyrir einum snúð, og á bestu dögum átti ég fyrir nokkrum 10 aura kúlum líka. Ég er komin fast að sjötugu, svo þetta var rétt fyrir um 60 árum síðan.

Skoðun
Fréttamynd

„Tókst að kynda undir verðbólgu­bálið“ og út­séð um vaxtalækkanir á næstunni

Með skattkerfisbreytingum stjórnvalda um áramótin „tókst heldur betur að kynda undir verðbólgubálið“ en vísitala neysluverðs hækkaði margfalt meira í janúar en meðalspá greinenda gerði ráð fyrir. Verðbólguvæntingar á skuldabréfamarkaði hafa rokið upp og peningastefnunefnd Seðlabankans getur gert lítið annað en „legið á bæn og vonað það besta“, segja sérfræðingar ACRO.

Innherji
Fréttamynd

Daði Már kennir olíu­fé­lögunum um

Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, segir aukningu verðbólgu mikið áhyggjuefni. Hann vísar því á bug að aukningin skýrist af gjaldahækkunum ríkisstjórnarinnar og segir olíufélög og bílaumboð bera ábyrgðina.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Óttast vaxta­hækkanir vegna sleggjunnar sem stjórn­völd „fengu í trýnið“

Verðbólga mælist 5,2% en hún hefur aukist úr 4,5 prósentum frá því í desember. Verðbólgan mælist umfram svörtustu spár viðskiptabankanna. Framkvæmdastjóri félags atvinnurekenda segir kaldhæðnislegt að ríkisstjórnin - sem telur sitt meginverkefni að lækka vexti - sé nú megin verðbólguvaldurinn og að nú sé hætta á að stýrivextir hækki á ný.

Innlent
Fréttamynd

„Menn voru hér með ein­hverja sleggju“

Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfsgreinasambandsins, segir fregnir af verulega aukinni verðbólgu hafa slegið hann kylliflatan í morgun og nánast steinrotað. Aukning verðbólgu sé í andstöðu við markmið hinna svokölluðu stöðugleikasamninga, sem hafi átt að byggja á því að allir reru í sömu átt til þess að ná verðbólgu niður. „Það sem er sorglegast í þessu öllu saman er að það eru opinberir aðilar sem bera ábyrgð á þessu,“ segir hann og vísar til hækkunar gjalda sem tóku gildi um áramót.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Miklar hækkanir í lágvöruverðsverslunum í byrjun árs

Miklar hækkanir urðu á gosdrykkjum og brauðmeti um áramótin, að því er verðlagseftirlit ASÍ leiðir í ljós. Samkvæmt því hækkaði Bónus og Krónan verð talsvert meira en Prís en þó Prís sé langódýrasta matvöruverslunin þá hækkaði verðlag þar meira árið 2025 en í Bónus og Krónunni. Segir að hækkanirnar komi fyrr fram en í janúar í fyrra.

Neytendur
Fréttamynd

Kaldar vinnu­markaðstölur „tala með“ vaxtalækkun en ó­víst hvort það dugi til

Þegar litið er á þróun atvinnuleysis miðað við árstíðabundna leitni þá sýnir hún að vinnumarkaðurinn er að kólna hraðar en hefðbundnar atvinnuleysistölur gefa til kynna, að sögn hagfræðinga Arion banka. Þrátt fyrir að öll tölfræði vinnumarkaðarins „tali með“ frekari vaxtalækkunum er ólíklegt að það dugi til þegar peningastefnunefnd kemur saman í febrúar.

Innherji
Fréttamynd

„Blasir við að ís­lenskt launa­fólk var svikið“

Formaður Starfsgreinasambandsins segir blasa við að launafólk hafi verið svikið með gjaldskrár- og verðlagshækkunum, þvert á gefin loforð í síðustu kjarasamningsviðræðum. Veitur hafa hækkað fastagjald hitaveitu um nærri fimmtíu prósent á einu ári.

Innlent
Fréttamynd

Stöðugleikasamningarnir gætu sprungið strax í haust

Verðbólga gæti sprengt hina svokölluðu „stöðugleikasamninga“ strax í haust. Í lok árs mældist verðbólga 4,5 prósent og Landsbankinn spáir verðbólgu upp á 5,1 prósent í janúar og Arion spaír 4,9 prósent. Forsenduákvæði kjarasamninganna sem skrifað var undir 2024 miða við 4,7 prósent.

Innlent