Verðlag
1 2 3 4 5 6 … 39 ›
Því lengur sem verðbólgan er yfir markmiði því meira rýrnar trúverðugleikinn Með hliðsjón af verðbólguskoti síðustu mánaða og væntingum um betri hagvaxtarhorfur í ár þá kom mjúkur tónn í yfirlýsingu peningastefnunefndar á óvart, að sögn efnahagsráðgjafa IFS. Miðað við verri verðbólguhorfur til skamms tíma telja sumir hagfræðingar sennilegt að bíða þurfi fram í ágúst eftir næstu vaxtalækkun. Innherji 4.2.2026 15:57
„Skýrar og síendurteknar hótanir í garð verkalýðshreyfingarinnar“ Vilhjálmur Birgisson er ekki ánægður með skilaboð Seðlabanka Íslands til launafólks en seðlabankastjóri og varaseðlabankastjóri sögðu í morgun að bankinn myndi ekki hika við að hækka stýrivexti ef laun hækka. Sérstaklega var minnst á brugðist yrði við ef forsenduákvæði kjarasamninga yrði beitt í september. Það mælir fyrir um að rifta megi samningum ef verðbólga mælist yfir fimm prósentum í ágúst. „Ef forsendur kjarasamninga standast ekki í september þá ber að segja þeim upp,“ segir Vilhjálmur. Viðskipti innlent 4.2.2026 13:55
Vandamálið að „verðbólgan hættir ekkert“ Peningastefnunefnd Seðlabankans hefur ákveðið að halda stýrivöxtum óbreyttum í 7,25 prósentum. Seðlabankastjóri segir aukna verðbólgu ekki gefa tilefni til hækkunar. Laun hækki þó of hratt sem hefur mikil áhrif á efnahaginn. Viðskipti innlent 4.2.2026 12:21
Seðlabankinn ósammála Daða Má Í nýju riti Peningamála Seðlabanka Íslands segir að nýlegt verðbólguskot sé fyrst og fremst að rekja til hækkunar á opinberum gjöldum og þjónustu um áramót. Fjármála- og efnahagsráðherra hefur aftur á móti vísað slíku á bug og sagt verðbólguaukningu tilkomna vegna álagningar annarra en ríkisins. Viðskipti innlent 4.2.2026 10:53
Vöxtum haldið óbreyttum og spennan í þjóðarbúinu er „horfin“ Þrátt fyrir aukningu í verðbólgu að undanförnu þá er hún talin vera tímabundin og því hafa verðbólguhorfur til lengri tíma lítið breyst, að sögn peningastefnunefndar Seðlabankans, sem heldur vöxtum óbreyttum í samræmi við væntingar flestra hagfræðinga. Samkvæmt nýrri spá er spennan í þjóðarbúinu horfin en samt útlit fyrir lítillega meiri hagvöxt í ár en áður var talið. Innherji 4.2.2026 09:10
Bein útsending: Kynna vaxtaákvörðun og Peningamál Ásgeir Jónsson, seðlabankastjóri og formaður peningastefnunefndar, og Þórarinn G. Pétursson, varaseðlabankastjóri og staðgengill formanns peningastefnunefndar, kynna yfirlýsingu nefndarinnar klukkan 09:30. Karen Áslaug Vignisdóttir, framkvæmdastjóri sviðs hagfræði og peningastefnu og aðalhagfræðingur bankans kynnir nýja útgáfu Peningamála. Beina útsendingu af kynningunni má sjá hér að neðan. Viðskipti innlent 4.2.2026 09:00
Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að halda stýrivöxtunum óbreyttum og verða þeir því áfram 7,25 prósent. Viðskipti innlent 4.2.2026 08:30
„Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Hagfræðingur og greinandi telur langt þangað til stýrivextir verði lækkaðir á nýjan leik. Afnám verðtryggingar sem forsætisráðherra hefur boðað sé engin töfralausn þó að margt sé jákvætt við áformin. Viðskipti innlent 3.2.2026 20:32
Við látum stjórnast af sértrú í peningamálum Með einni vel skiljanlegri og óhrekjanlegri forsendu ásamt reikningi sem við öll lærðum í barnaskóla má sýna fram á að helsta haldreipi Seðlabanka Íslands og Hagfræðideildar Háskóla Íslands, verðtryggingin, er lítið annað en snara um háls alþýðu Íslands. Skoðun 2.2.2026 15:15
Allt að 120 prósenta hækkun verðskrár Pósturinn hefur birt nýja verðskrá sem tekur gildi þann 1. mars næstkomandi. Mesta verðhækkunin er á sendingum eins til tveggja kílóa smápakka til Evrópulanda annarra en Norðurlanda, sem hækka um 120 prósent. Neytendur 2.2.2026 14:40
Hlé á vaxtalækkunarferlinu þar til skýr merki um verðbólguhjöðnun birtast Mikil aukning verðbólgunnar að undanförnu, einkum vegna hækkunar bifreiðaverðs í kjölfar vörugjaldabreytinga, kallar á hlé á vaxtalækkunarferlinu þar frekari vísbendingar um hjöðnun fara að birtast, að sögn aðalhagfræðings Kviku. Verðbólgumælingin í janúar setur peningastefnunefnd í óþægilega stöðu en verðhækkanir á fremur breiðum grunni staðfesta sumpart áhyggjur hennar af kostnaðarþrýstingi af völdum mikilla launahækkana. Innherji 2.2.2026 13:47
Líkurnar á lækkun „mjög litlar“ Daði Már Kristófersson fjármála- og efnahagsráðherra segist ekki ætla að spá fyrir um ákvörðun peningastefnunefndar um stýrivexti en nefndin kynnir ákvörðun sína á miðvikudag. Innlent 1.2.2026 12:52
„Mjög áhugaverð umræða“ Olíufélögin hafa brugðist illa við málflutningi ríkisstjórnarinnar sem hefur sagt þau bera að ábyrgðar vegna aukinnar verðbólgu. Framsetningin sé villandi og standist ekki skoðun. Innlent 30.1.2026 22:25
Ríkisstjórnin rugli og olíufélögin ekki sökudólgurinn „Það er beinlínis villandi fyrir neytendur að benda á olíufélögin sem sökudólg fyrir aukinni verðbólgu. Ekki aðeins var öllu olíugjaldinu skilað til neytenda heldur hefur álagning á eldsneyti N1 haldist óbreytt frá síðasta ári.“ Innlent 30.1.2026 14:38
Hitni undir olíufélögum sem þurfi að passa sig Forsætisráðherra segir að ríkisstjórnin hafi búist við meiri lækkunum á eldsneytisverði hjá olíufélögunum samfara því að eldsneytisgjöld og vörugjöld á bensíni voru felld niður um áramótin. Þau þurfi að passa sig. Ríkisstjórnin ætli að ná hallalausum fjárlögum til að ná tökum á verðbólgunni. Innlent 30.1.2026 13:05
Súkkulaðisnúðurinn segir sannleikann Þegar ég var polli voru súkkulaði snúðar mikið uppáhald. Hvað er betra en snúður og köld mjólk? Á góðum degi, gat ég reddað mér pening fyrir einum snúð, og á bestu dögum átti ég fyrir nokkrum 10 aura kúlum líka. Ég er komin fast að sjötugu, svo þetta var rétt fyrir um 60 árum síðan. Skoðun 30.1.2026 07:03
„Mér þykir leiðinlegt að þetta gangi ekki betur“ Daði Már Kristófersson, fjármálaráðherra, segir að sér þyki leiðinlegt að ekki gangi betur að ná niður verðbólgu og vöxtum. Hann muni leggja sig allan fram og ekki hvílast fyrr en árangri hafi verið náð. Innlent 29.1.2026 20:46
Segir ekkert náttúrulögmál að bílasalar þurfi að velta hækkunum út í verðlagið Ríkisstjórnin hefði mátt bíða með breytingar á opinberum gjöldum þar til verðbólgan myndi hjaðna. Þetta segir hagfræðingur Íslandsbanka. Formaður VR segir það ekki náttúrulögmál að fyrirtæki velti öllu út í verðlagið. Kjarasamningar springi í haust velji fyrirtækin að fara þá leið. Innlent 29.1.2026 19:29
„Tókst að kynda undir verðbólgubálið“ og útséð um vaxtalækkanir á næstunni Með skattkerfisbreytingum stjórnvalda um áramótin „tókst heldur betur að kynda undir verðbólgubálið“ en vísitala neysluverðs hækkaði margfalt meira í janúar en meðalspá greinenda gerði ráð fyrir. Verðbólguvæntingar á skuldabréfamarkaði hafa rokið upp og peningastefnunefnd Seðlabankans getur gert lítið annað en „legið á bæn og vonað það besta“, segja sérfræðingar ACRO. Innherji 29.1.2026 12:58
Daði Már kennir olíufélögunum um Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, segir aukningu verðbólgu mikið áhyggjuefni. Hann vísar því á bug að aukningin skýrist af gjaldahækkunum ríkisstjórnarinnar og segir olíufélög og bílaumboð bera ábyrgðina. Viðskipti innlent 29.1.2026 12:10
Óttast vaxtahækkanir vegna sleggjunnar sem stjórnvöld „fengu í trýnið“ Verðbólga mælist 5,2% en hún hefur aukist úr 4,5 prósentum frá því í desember. Verðbólgan mælist umfram svörtustu spár viðskiptabankanna. Framkvæmdastjóri félags atvinnurekenda segir kaldhæðnislegt að ríkisstjórnin - sem telur sitt meginverkefni að lækka vexti - sé nú megin verðbólguvaldurinn og að nú sé hætta á að stýrivextir hækki á ný. Innlent 29.1.2026 11:35
„Menn voru hér með einhverja sleggju“ Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfsgreinasambandsins, segir fregnir af verulega aukinni verðbólgu hafa slegið hann kylliflatan í morgun og nánast steinrotað. Aukning verðbólgu sé í andstöðu við markmið hinna svokölluðu stöðugleikasamninga, sem hafi átt að byggja á því að allir reru í sömu átt til þess að ná verðbólgu niður. „Það sem er sorglegast í þessu öllu saman er að það eru opinberir aðilar sem bera ábyrgð á þessu,“ segir hann og vísar til hækkunar gjalda sem tóku gildi um áramót. Viðskipti innlent 29.1.2026 11:12
Miklar hækkanir í lágvöruverðsverslunum í byrjun árs Miklar hækkanir urðu á gosdrykkjum og brauðmeti um áramótin, að því er verðlagseftirlit ASÍ leiðir í ljós. Samkvæmt því hækkaði Bónus og Krónan verð talsvert meira en Prís en þó Prís sé langódýrasta matvöruverslunin þá hækkaði verðlag þar meira árið 2025 en í Bónus og Krónunni. Segir að hækkanirnar komi fyrr fram en í janúar í fyrra. Neytendur 29.1.2026 10:28
Verðbólga eykst umfram svartsýnustu spár Verðbólga mælist nú 5,2 prósent, miðað við 4,5 prósent í desember. Vísitala neysluverðs, miðuð við verðlag í desember 2025, er 668,3 stig og hækkar um 0,38 prósent frá fyrri mánuði. Verðbólga eykst umfram spár viðskiptabankanna. Viðskipti innlent 29.1.2026 09:00
Fasteignagjöld hækki í krónum þrátt fyrir lækkun fasteignaskatts Fasteignaskattprósenta lækkaði hjá meirihluta sveitarfélaga milli áranna 2025 og 2026. Hjá rúmlega þriðjungi sveitarfélaga er fasteignaskattasprósenta óbreytt milli ára en ekkert sveitarfélag hækkar. Þrátt fyrir það hækka fasteignagjöldin í langflestum tilvikum í krónum talið vegna hærra fasteignamats. Viðskipti innlent 26.1.2026 14:57
Kaldar vinnumarkaðstölur „tala með“ vaxtalækkun en óvíst hvort það dugi til Þegar litið er á þróun atvinnuleysis miðað við árstíðabundna leitni þá sýnir hún að vinnumarkaðurinn er að kólna hraðar en hefðbundnar atvinnuleysistölur gefa til kynna, að sögn hagfræðinga Arion banka. Þrátt fyrir að öll tölfræði vinnumarkaðarins „tali með“ frekari vaxtalækkunum er ólíklegt að það dugi til þegar peningastefnunefnd kemur saman í febrúar. Innherji 22.1.2026 15:11
„Blasir við að íslenskt launafólk var svikið“ Formaður Starfsgreinasambandsins segir blasa við að launafólk hafi verið svikið með gjaldskrár- og verðlagshækkunum, þvert á gefin loforð í síðustu kjarasamningsviðræðum. Veitur hafa hækkað fastagjald hitaveitu um nærri fimmtíu prósent á einu ári. Innlent 19.1.2026 11:06
Matarverðbólgan stafar núna „aðallega af innlendum þáttum“ Verðbólga í matvælum og drykkjarvörum stafar núna að stórum hluta af innlendum þáttum, sem meðal annars skýrir miklar verðhækkanir á landbúnaðarafurðum, á meðan við erum að sjá innfluttar vörur hækka almennt lítið í verði, að sögn forstjóra stærsta smásölufyrirtækis landsins. Innherji 18.1.2026 13:10
Stöðugleikasamningarnir gætu sprungið strax í haust Verðbólga gæti sprengt hina svokölluðu „stöðugleikasamninga“ strax í haust. Í lok árs mældist verðbólga 4,5 prósent og Landsbankinn spáir verðbólgu upp á 5,1 prósent í janúar og Arion spaír 4,9 prósent. Forsenduákvæði kjarasamninganna sem skrifað var undir 2024 miða við 4,7 prósent. Innlent 18.1.2026 11:47
Álagning aldrei hærri: Eldsneytisverð hefði átt að lækka enn frekar Álagning olíufélaganna hefur aldrei verið hærri en núna. Eldsneytisverð lækkaði um tæplega 97 krónur við ármótin þegar kílómetragjaldið tók gildi sem er í samræmi við væntingar Alþýðusambandsins. Eldsneytisverð hefði þó mátt lækka enn frekar að mati ASÍ. Neytendur 17.1.2026 15:48