Deilur um skotsvæðið á Álfsnesi

Fréttamynd

Skotíþróttamenn lang­eygir eftir starfs­leyfi

Umsókn Skotfélags Reykjavíkur um starfsleyfi á Álfsnesi er enn til afgreiðslu hjá Reykjavíkurborg. Forsvarsmenn félagsins segja iðkendur skotíþrótta orðna langeyga eftir því að borgaryfirvöld taki af skarið og sjái til þess að skotsvæðið verði opnað. Opna verði svæðið til að þjóna ýmsum nauðsynlegum verkefnum.

Innlent
Fréttamynd

Starfs­leyfi skot­vallar á Álfs­nesi enn á ný fellt úr gildi

Úrskurðarnefnd hefur fellt úr gildi ákvörðun Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur að samþykkja starfsleyfi fyrir skotvelli á Álfsnesi sem lengi hefur verið deilt um. Heilbrigðiseftirlitið er sagt hafa átt að krefjast þess að hljóðmælingar færu fram á vellinum áður en það tók afstöðu til leyfisins.

Innlent
Fréttamynd

Skot­svæðinu á Álfs­nesi lokað enn á ný

Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur hefur stöðvað alla starfsemi á skotsvæðinu á Álfsnesi. Þetta er gert eftir úrskurð úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála þar sem starfsemin er metin ólögleg útfrá ákvæðum um landnotkun í aðalskipulagi Reykjavíkurborgar.

Innlent
Fréttamynd

Hver á að bera skaðann?

Enn á ný hefur skotfélögunum á Álfsnesi verið gert að skella í lás og hætta allri starfsemi án fyrirvara með tilheyrandi fjárhagslegum skaða fyrir skotfélögin og þá aðila sem hafa greitt félagsgjöld og afnotagjöld fyrir skotsvæðin. Í þetta skipti er það elsta íþróttafélags íslands, Skotfélag Reykjavíkur, sem er gert að loka án fyrirvara.

Skoðun
Fréttamynd

Borgin gefur út enn eitt starfs­­leyfið fyrir skot­­svæðið á Álfs­nesi

Heilbrigðisnefnd Reykjavíkurborgar hefur ákveðið að veita Skotveiðifélagi Reykjavíkur nýtt starfsleyfi til tveggja ára á Álfsnesi. Deilur hafa staðið um starfsemina um árabil og segir formaður nefndarinnar að með ákvörðuninni sé verið að reyna að koma til móts við báða aðila. Ljóst sé að skotsvæðið mun á endanum fara.

Innlent
Fréttamynd

Starfs­leyfi vegna skot­svæðisins á Álfs­nesi fellt úr gildi

Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála hefur fellt úr gildi ákvörðun Heilbrigðiseftirlitsins í Reykjavík frá síðasta sumri um að gefa út starfsleyfi til Skotveiðifélags Reykjavíkur og nágrennis til reksturs skotvallar á Álfsnesi. Svæðinu hefur því verið lokað.

Innlent
Fréttamynd

Fá að skjóta á Álfs­nesi á ný

Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur hefur gefið út nýtt starfsleyfi fyrir æfingaaðstöðu Skotveiðifélags Reykjavíkur og nágrennis. Svæðinu var lokað fyrirvaralaust í september í fyrra.

Innlent
Fréttamynd

Málið strandi á skriffinsku, ekki vilja

Borgaryfirvöld vinna að því hörðum höndum að starfsemi Skotfélags Reykjavíkur geti haldið áfram í Álfsnesi. Starfsleyfið var óvænt fellt úr gildi í síðustu viku.

Innlent
Fréttamynd

Skotsvæðið Álfsnesi

Á Álfsnesi hafa tvö íþróttafélög verið með sína æfingar aðstöðu í yfir tíu ár. Áframhaldandi starfsleyfi fyrir Skotfélag Reykjavíkur gaf Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur út í vor. Leyfið var allt annað en það leyfi sem fyrir var og verulega dregið úr þeim tíma sem hægt var að hafa skotsvæðið opið.

Skoðun
Fréttamynd

Skot­svæðinu í Álfs­nesi lokað fyrir­vara­laust

Skotfélagi Reykjavíkur var í dag gert að stöðva alla starfsemi á skotvelli félagsins í Álfsnesi þegar í stað. Úrskurðarnefnd umhverfis og auðlindamála hefur fellt úr gildi starfsleyfi sem gefið var út í mars síðastliðnum.

Innlent