Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur

Fréttamynd

Ekki mót­fallin aðildarviðræðum væru samnings­mark­mið skýrari

Heiðrún Lind Marteinsdóttir framkvæmdastjóri SFS segir samtökin vilja skýrari samningsmarkmið og að rauð lína verði lögð um eignarhald á fiskveiðiauðlind áður en haldið er í samningsviðræður við Evrópusambandið. Sé það gert setji SFS og sjávarútvegsgrein sig ekki á móti því að það verði haldið áfram með viðræður.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Vill að vinnu við gerð á­hættu­mats verði flýtt

Kristín María Birgisdóttir, Grindvíkingur, fyrrverandi bæjarfulltrúi, kallar eftir því að vinnu við áhættumat í Grindavík verði flýtt. Hún segir Grindvíkinga sem vilja flytja heim ekki geta beðið lengur í óvissu. Leikskólar séu þegar opnir og skólahald að hefjast í grunnskóla.

Innlent
Fréttamynd

Óttast að stefni í kreppuverðbólgu

Formenn sex stéttarfélaga vara við því að aukið atvinnuleysi vegna hávaxtastefnu Seðlabankans skapi kreppuverðbólgu sem geti orðið erfitt að vinda ofan af. Þeir hóta því að segja upp kjarasamningum ef stjórnvöld og atvinnurekendur axli ekki ábyrgð á stöðunni.

Innlent
Fréttamynd

Muni hlusta og taka væntingar, þrár og á­hyggjur til greina

Forsætisráðherra vill að þjóðin komi sameinuð út úr þjóðaratkvæðagreiðslunni þann 29. ágúst, sama hvernig fer. Hún hefur skipulagt ferð um landið í þeim tilgangi að hlusta á væntingar, þrár og áhyggjur fólks í sambandi við atkvæðagreiðsluna.

Innlent
Fréttamynd

Troð­fullur strætó ók fram hjá Krist­rúnu sem fékk ekki pláss

Mikið álag var á Strætó á höfuðborgarsvæðinu í dag, enda stefndu margir á miðbæ Reykjavíkur þar sem Gleðigangan fór fram. Í Háaleitishverfinu ók troðfullur strætó án þess að nema staðar og hleypa inn farþegum á stoppistöð, en samkvæmt sjónvarvotti var Kristrún Frostadóttir, forsætisráðherra, á meðal þeirra sem komst ekki í vagninn.

Innlent
Fréttamynd

ESB vill „skapandi lausnir“ fyrir ís­lenskan sjávar­út­veg

Stækkunarstjóri Evrópusambandsins vill finna „skapandi lausnir“ fyrir báðar hliðar í hugsanlegum aðildarviðræðum vegna sérstöðu Íslands í sjávarútvegi og landbúnaði. Framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi segir samt að „skapandi lausnir“ séu ekki endilega það sama og varanlegar undanþágur. 

Innlent
Fréttamynd

Ís­land í þeirri sjald­gæfu stöðu að geta í raun á­kveðið hvaða hag­vöxt við viljum

Forstjóri eins stærsta fjárfestingafélags landsins brýnir stjórnvöld til að taka forystu í að breyta umræðu um efnahagsmál og rekstur fyrirtækja og segir tal um „ofsagróða“ á villigötum heldur hafi þvert móti arðsemi og samkeppnisstaða fyrirtækja „átt undir högg að sækja,“ einkum vegna aukinnar gjaldtöku hins opinbera, hárra launa og hás vaxtastigs. Hann segir að vegna tækifæranna sem felast í auðlindum landsins þá sé Ísland í þeirri sjaldgæfu stöðu meðal þjóða að geta í raun ákveðið hvaða hagvöxt við viljum hafa næstu árin.

Innherji
Fréttamynd

Orð Jóns Sigurðs­sonar eigi við um bar­áttuna í dag

Neikvæð mynd er dregin upp af áhrifum aðildaviðræðna og mögulegri inngöngu Íslands í Evrópusambandið á landbúnað hér á landi, í nýrri skýrslu sem Búnaðarþing lét gera. Framkvæmdastjóri Bændasamtakanna telur að aðild fæli í sér valdaafsal og líkir málinu við sjálfstæðisbaráttu Íslendinga á 19. öld.

Innlent
Fréttamynd

Á­hættu­mat byggir ekki lengur bara á vísinda­legu mati

Pétur Markan, bæjarstjóri Grindavíkur, segist ánægður með endurskoðun á gerð áhættumats fyrir þéttbýli í Grindavík. Nýja nálgunin felur í sér að áhættumatið byggi ekki aðeins á vísindalegu mati, heldur taki einnig mið af reynslu og gildismati þeirra sem búa og starfa við langvarandi óvissu.

Innlent
Fréttamynd

Halla­laus fjár­lög ekki í spákortum AGS fyrr en árið 2031

Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn væntir þess að það takist ekki að skila afgangi á rekstri ríkissjóðs fyrr en á árinu 2031, samkvæmt spá sjóðsins, en núgildandi fjármálaáætlun stjórnvalda gerir hins vegar ráð fyrir hallalausum fjárlögum strax á næsta ári. Sjóðurinn horfir aðeins til aðgerða sem þegar er búið að leggja fram fyrir Alþingi og segir markmið stjórnvalda í ríkisfjármálum vera „hæfilega metnaðarfull.“

Innherji
Fréttamynd

51 prósent sé nóg

Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra segist ekkert geta fullyrt um hvort að Ísland fái undanþágur í mögulegum aðildarviðræðum við Evrópusambandið. Ísland yrði stærsta fiskveiðiþjóð sambandsins og fara þurfi inn í viðræðurnar, sem eigi að kosta um tvo milljarða, með stolti. Segi 51 prósent kjósenda nei verði niðurstaðan virt.

Innlent
Fréttamynd

Krist­rún sat fyrir svörum og ræddi við hlust­endur

Kristrún Frostadóttir var gestur Bítisins á Bylgjunni í morgun. Þar sat hún fyrir svörum um komandi þjóðaratkvæðagreiðslu, stöðuna í efnahagsmálunum og margt fleira. Þá var opnað fyrir símann og hlustendur fengu tækifæri til að ræða við forsætisráðherra.

Innlent
Fréttamynd

Ekki á dag­skrá að opna bók­haldið

Lítið sem ekkert eftirlit er með fjármögnun þeirra félagasamtaka sem heyja nú kosningabaráttu í kringum atkvæðagreiðslu 29. ágúst um aðildarviðræður við Evrópusambandið. Þar sem þau eru ekki skilgreind stjórnmálasamtök er ekkert þak á fjárframlögum til samtakanna og ekki þarf að birta bókhald þeirra opinberlega. 

Innlent
Fréttamynd

„Sá spyr sem ekki veit“

„Ég er döpur yfir því hve hatrömm orðaskipti maður hefur séð og ómakleg. Það kemur mér rosalega á óvart hvað lýðræðinu er sýnd mikil lítilsvirðing. Við erum búin að berjast í hundrað ár fyrir fullveldinu okkar og síðan fáum við lýðveldið okkar 1944. Fyrst og síðast byggir það á svipuðu þegar við erum að kjósa okkur valdhafa, í þetta skipti erum við að gefa þjóðinni kost á að segja já eða nei við samningaviðræðum.“ 

Innlent
Fréttamynd

„Hverjir eru á bak við það?“

Dómsmálaráðherra segir komu tugþúsunda manna til spænska landsvæðisins Ceuta ekki hafa ógnað Schengen-svæðinu. Sérstakar reglur gilda um svæðið og nær allir sem komu þangað hafa snúið aftur til Marokkó. 

Erlent
Fréttamynd

Vill breyta lögum um .is

Til stendur að breyta lögum um lénið .is samkvæmt nýbirtum áformum um breytingu á lögum um íslensk landshöfuðlén sem innviðaráðuneytið birti í samráðsgátt stjórnvalda. Markmiðið sé að stuðla að auknu öryggi.

Innlent
Fréttamynd

Aldrei liðið að öryggi sjó­manna sé ógnað

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra segir aðgerðir Landhelgisgæslunnar og sérsveitar Ríkislögreglustjóra í gærkvöldi sem beindust að Bandero, sem hrelldi hvalveiðiskipið Hval 9 í gærkvöldi, ekki snúast um afstöðu fólks til hvalveiða, heldur um öryggi þeirra sem sækja sjóinn við Íslandsstrendur.

Innlent
Fréttamynd

Dregur úr á­nægju með frammi­stöðu ríkis­stjórnar­flokkanna

Ánægja með frammistöðu stjórnarflokkana virðista hafa minnkað, ef marka má nýja skoðanakönnun Maskínu. Alls þykja 34 prósentum Samfylkingin hafa staðið sig vel á þingvetrinum sem liðinn er, samanborið við 46 prósent í fyrra og 28 prósentum þykja Viðreisna hafa staðið sig vel, samanborið við 43 prósent í fyrra.

Innlent
Fréttamynd

Kíkti í kaffi til kanslarans

„Ég átti þar leið hjá og nýtti tækifærið,“ segir Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra Íslands í færslu, en hún hitti Friedrich Merz kanslara Þýskalands í vikunni.

Lífið
Fréttamynd

„Mér finnst þetta mjög vel gert hjá henni“

Þekkt er að, forðum daga, fékk Andrés nóg eftir þrjú tonn af sandi. Hæstvirtur forsætisráðherra er þó greinilega engin sandhrúga því nafnarnir Andrés og Andrés fá ekki nóg af Kristrúnu Frostadóttur eftir frammistöðu hennar í hlaðvarpsviðtali hjá The rest is politics. Hlaðvarpið er breskt og þykir eitt hið virtasta á sínu sviði.

Innlent
Fréttamynd

„Fólk er ekki heimskt“

Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra segir nú góðan tíma fyrir inngöngu Íslands í Evrópusambandið en það njóti góðs af stöðu heimsmála. Hún segist hafa áhyggjur af gangi mála í Evrópu og að ásælni Bandaríkjaforseta í Grænland sé mikið áhyggjuefni. Markmiðið sé að fá já þann 29. ágúst en sjálf sé hún gagnrýnin á Evrópusambandið.

Innlent