Þingkosningar í Bandaríkjunum

Fréttamynd

Trump hafi nú engu að tapa

Prófessor í stjórnmálafræði segir niðurstöður þingkosninganna í Bandaríkjunum frekar afhroð Repúblikana í stað sigurs Demókrata. Ákveðið frost gæti verið fram undan á þinginu. Bandaríkjaforseti hafi nú engu að tapa.

Erlent
Fréttamynd

Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á loka­metrunum

Demókratinn Abdul El-Sayed sigraði Repúblikanan Mike Rogers í baráttunni um annað öldungadeildarsæti Michigan í þingkosningunum í gær. Hann vakti mikla athygli í kosningabaráttunni og er talinn einn af kyndilberum nýrrar kynslóðar Demókrata og vinstri arms flokksins sem sá framboð hans sem prófraun í einu mikilvægasta sveifluríki landsins.

Erlent
Fréttamynd

Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn banda­mönnum sínum

Donald Trump Bandaríkjaforseti lét gamminn geisa á samfélagsmiðli sínum um það leyti sem kosninganiðurstöður og spár fóru að birtast í gær. Ríkisstjórn hans hefur verið sökuð um að reyna að grafa undan trúverðugleika kosninganna en forsetinn segist nú ætla að viðurkenna niðurstöðuna sem hefur verið lýst sem algerum ósigri.

Erlent
Fréttamynd

Sögu­legir sigrar í Banda­ríkjunum

Keisha Lance Bottoms verður fyrsta svarta konan til að gegna ríkisstjóraembætti í Bandaríkjunum eftir nýafstaðnar kosningar í Georgíu. Hún verður um leið fyrsti Demókratinn til að sitja í ríkisstjórabústað þessa mikilvæga barátturíkis í yfir 25 ár.

Erlent
Fréttamynd

Draumur Demó­krata að rætast

Demókrataflokkurinn er sagður hafa tryggt sér meirihluta í báðum deildum bandaríska þingsins eftir kosningar sem margir álíta dóm á störf Donalds Trump forseta. Dæmi eru um að fulltrúar Demókrata hafi náð markverðum árangri í mörgum höfuðvígum Repúblikanaflokksins.

Erlent
Fréttamynd

Bein út­sending: Tölur berast frá kjör­stöðum vestan­hafs

Milljónir Bandaríkjamanna hafa greitt atkvæði í þingkosningum í dag, sem munu hafa mikil áhrif á síðustu tvö ár Donalds Trump í embætti forseta. Líklegt er að Demókratar nái meirihluta í fulltrúadeildinni, ef marka má kannanir.  Einnig eru líkur á því að þeir nái meirihluta í öldungadeildinni, fari allt á besta veg fyrir Demókrata.

Erlent
Fréttamynd

Fram­tíð Trump í húfi á kjör­degi í Banda­ríkjunum

Bandaríkjamenn ganga að kjörborðinu í dag í kosningum sem gætu haft mikil áhrif á seinni tvö ár kjörtímabils Donalds Trump. Samkvæmt könnunum hafa kjósendur mestar áhyggjur af auknum kostnaði í samfélaginu en kosningarnar koma á erfiðum tíma fyrir Repúblikanaflokkinn.

Erlent
Fréttamynd

Ríkin sem barist er um: Blá flóð­bylgja eða smáskvetta?

Bandarískir kjósendur ganga að kjörborðinu á morgun, þriðjudag, í kosningum sem bera þess merki að geta markað svokallaða bláa flóðbylgju. Demókratar eru með byr undir báðum vængjum fyrir kosningarnar, ef marka má kannanir, og má meðal annars rekja þennan meðbyr til sögulegra óvinsælda Donalds Trump.

Erlent
Fréttamynd

„Svívirði­leg svik“

Þingkona demókrata í Michigan-ríki í Bandaríkjunum hefur lýst yfir stuðningi við frambjóðanda Repúblikana í öldungadeildarkosningunum í ríkinu. Ákvörðunin kemur í kjölfar harðvítugra deilna við frambjóðanda eigin flokks en spennan fyrir þingkosningarnar í Bandaríkjunum á morgun nálgast nú suðupunkt.

Erlent
Fréttamynd

„Rannsóknar­nefndir verða stofnaðar“

Mjög miklar líkur eru á að Demókratar vinni sigur í báðum þingdeildum í Bandaríkjunum í kosningum á þriðjudag að sögn sérfræðings um bandarísk stjórnmál. Fari svo þá blasi við að stofnaðar verði rannsóknanefndir sem muni skoða embættisaðgerðir Trump Bandaríkjaforseta og ríkisstjórnar hans.

Erlent
Fréttamynd

„Þú ert ó­geðs­legur, komdu þér í form“

Donald Trump hætti í gær við að fara á tvo kosningafundi í Iowa og Kansas um helgina. Kannanir benda til þess að jafnt sé á milli frambjóðenda í báðum ríkjum og er stjórn Repúblikanaflokksins á öldungadeildinni í óvissu. Þrátt fyrir það sögðu leiðtogar Repúblikanaflokksins að hætt hefði verið við kosningafundina vegna þess að frambjóðendum flokksins vegnaði svo vel þar og að Trump þyrfti því ekki að heimsækja ríkin.

Erlent
Fréttamynd

Biskupar sjá eftir bæna­stund með Trump

Tveir kaþólskir biskupar harma heimsókn sína í Hvíta húsið til Bandaríkjaforseta eftir að myndband af bænastund þeirra fór í dreifingu. Heimsóknin hafi ekki verið til stuðnings forsetanum né hans stefnu og saka þeir stjórn hans um að nýta sér heimsóknina í pólitískum tilgangi í aðdraganda þingkosninga.

Erlent
Fréttamynd

Nóg sé komið af Trump

Barack Obama, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, gagnrýndi núverandi Bandaríkjaforseta harðlega á kosningafundi í Ohio í gær í aðdraganda þingkosninga. Donald Trump gæti engum kennt nema sjálfum sér um hátt verðlag og nú væri nóg komið.

Erlent
Fréttamynd

Styður Repúblikana með tugum milljarða

Forsvarsmenn tveggja pólitískra aðgerðanefnda (super PAC) vestanhafs eru að draga úr aðstoð sinni við að minnsta kosti tvo frambjóðendur Repúblikanaflokksins. Repúblikanar hafa mikið forskot á Demókrata þegar kemur að peningum, þótt staða þeirra þyki ekki góð. Elon Musk, auðugasti maður heims, er sagður hafa gefið Repúblikönum um 44,7 milljarða króna fyrir kosningarnar í næsta mánuði.

Erlent
Fréttamynd

Vance biðlar til ungra reiðra manna

Af þeim hópum kjósenda sem skiptu hvað mestu máli við að koma Donald Trump aftur til valda voru ungir menn meðal þeirra áhrifamestu. Margir þeirra segjast hins vegar hafa snúið baki við Trump og hafa lýst yfir reiði í garð ríkisstjórnar hans vegna stríðsins gegn Íran, hækkandi verðlags og annarra atriða. Repúblikanar telja þó að hægt sé að ná til þeirra og að gífurlega mikilvægt sé að ná þeim aftur á kjörstað í þingkosningunum í næsta mánuði.

Erlent
Fréttamynd

Endur­greiðir ekki ríkinu fyrir aug­lýsingarnar um­deildu

Donald Trump ætlar ekki að endurgreiða bandaríska ríkinu fyrir umdeildar auglýsingar sem hafa verið birtar í sjónvarpi vestanhafs. Í gær sagði forsetinn að pólitísk aðgerðanefnd hans, MAGA Inc, myndi greiða fyrir auglýsingarnar sem hafa verið harðlega gagnrýndar, þar sem þær hafa verið fjármagnaðar með skattfé og þykja mjög pólitískar.

Erlent
Fréttamynd

Ætlar að borga fyrir um­deildar aug­lýsingar úr eigin sjóðum

Donald Trump segir að hann muni láta eigin pólitíska aðgerðanefnd, svokallaða Super PAC, greiða fyrir umdeildar auglýsingar sem hafa verið birtar í bandarískum fjölmiðlum á undanförnum vikum. Auglýsingarnar, sem þykja mjög pólitískar í aðdraganda þingkosninga, hafa verið fjármagnaðar af heimavarnaráðuneyti Bandaríkjanna en stofnunum ætti að vera óheimilt að gera slíkar auglýsingar.

Erlent
Fréttamynd

Upp­ör­vandi fréttir fyrir Demó­krata

Hundruð þúsunda Bandaríkjamanna hafa nú þegar greitt atkvæði í þingkosningum þar í landi þótt mánuður sé til kosninga. Kannanir benda til þess að kjósendur Demókrata séu duglegri að kjósa snemma en í síðustu forsetakosningum.

Erlent
Fréttamynd

Beita buddunni til að vega á móti ó­vin­sældum Trumps

Repúblikanar eru byrjaðir að verja fúlgum fjár í auglýsingar í aðdraganda kosninganna í nóvember. Þeir sitja á mun digrari sjóðum en Demókratar. Forsetinn sjálfur situr á rúmum fjögur hundruð milljónum dala í pólitískri aðgerðanefnd sinni og er byrjaður að beita honum til að styðja frambjóðendur Repúblikanaflokksins.

Erlent
Fréttamynd

Úr­skurður Hæsta­réttar bak­slag fyrir Trump

Nýr úrskurður Hæstaréttar Bandaríkjanna um póstatkvæði í þingkosningunum í nóvember er vonbrigði fyrir Donald Trump forseta. Trump undirritaði forsetatilskipun í mars þar sem innleiða átti nýjar kröfur með það að markmiði að takmarka slík atkvæði.

Erlent
Fréttamynd

Segir Repúblikönum að tala meira um af­rek hans

Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, hvatti Repúblikana í erfiðri stöðu fyrir þingkosningarnar í nóvember til að byggja kosningabaráttuna á afrekum hans í embætti. Það er þrátt fyrir mjög svo litlar vinsældir forsetans, en hann hefur einnig heitið því að ferðast víðsvegar um Bandaríkin og berjast fyrir frambjóðendur í um 35 kjördæmum sem gætu ráðið úrslitum hvað varðar stjórn fulltrúadeildarinnar næstu tvö ár.

Erlent
Fréttamynd

Trump sáir efasemdafræjum í að­draganda þing­kosninga

Áhyggjur fara nú vaxandi af því að Donald Trump Bandaríkjaforseti og stofnanir undir honum muni freista þess að hafa áhrif á úrslit þingkosninganna í haust, ef þau verða óhagstæð. Trump fór mikinn í ræðu í nótt, þar sem hann reyndi enn og aftur að færa rök fyrir því að forsetakosningunum 2020 hefði verið „stolið“.

Erlent
Fréttamynd

Gerir Repúblikönum á þingi enn lífið leitt

Donald Trump tilnefndi í gær formlega Todd Blanche til embættis dómsmálaráðherra. Blanche hefur um nokkuð skeið starfað sem starfandi ráðherra, síðan Trump rak Pam Bondi, en á þeim tíma hefur hann þótt umdeildur í starfi og verið sakaður um að hegða sér eins og hann sé ennþá einkalögmaður forsetans.

Erlent
Fréttamynd

Repúblikanar unnu kjör­dæma­stríðið

Útlit er fyrir að Repúblikanar geti grætt um tíu þingsæti í fulltrúadeildinni vegna breytinga á kjördæmum fyrir þingkosningarnar vestanhafs í nóvember. Það er að segja, ef allt fer eftir væntingum þeirra. Demókratar þurfa einungis nokkur sæti til að ná meirihluta í fulltrúadeildinni og bæði kannanir og sagan gefa Demókrötum byr undir báða vængi.

Erlent
Fréttamynd

Bannar ráðu­neytinu að stofna skaðabótasjóðinn

Bandarískur dómari meinaði í dag ríkisstjórn Donalds Trump að stofna og greiða peninga úr skaðabótasjóði. Bannið er tímabundið á meðan dómstólar eiga að segja til um lögmæti sjóðsins umdeilda. Umræddur sjóður inniheldur 1.776 milljónir dala eða um tvö hundruð milljarða króna og á honum að vera ætlað að greiða skaðabætur til fólks sem telur sig fórnarlömb vopnvæðingar réttarkerfis Bandaríkjanna skaðabætur.

Erlent