Þingkosningar í Bandaríkjunum
1 2 3 4 5 6 … 13 ›
Trump hafi nú engu að tapa Prófessor í stjórnmálafræði segir niðurstöður þingkosninganna í Bandaríkjunum frekar afhroð Repúblikana í stað sigurs Demókrata. Ákveðið frost gæti verið fram undan á þinginu. Bandaríkjaforseti hafi nú engu að tapa. Erlent 4.11.2026 09:25
Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Demókratinn Abdul El-Sayed sigraði Repúblikanan Mike Rogers í baráttunni um annað öldungadeildarsæti Michigan í þingkosningunum í gær. Hann vakti mikla athygli í kosningabaráttunni og er talinn einn af kyndilberum nýrrar kynslóðar Demókrata og vinstri arms flokksins sem sá framboð hans sem prófraun í einu mikilvægasta sveifluríki landsins. Erlent 4.11.2026 08:56
Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Donald Trump Bandaríkjaforseti lét gamminn geisa á samfélagsmiðli sínum um það leyti sem kosninganiðurstöður og spár fóru að birtast í gær. Ríkisstjórn hans hefur verið sökuð um að reyna að grafa undan trúverðugleika kosninganna en forsetinn segist nú ætla að viðurkenna niðurstöðuna sem hefur verið lýst sem algerum ósigri. Erlent 4.11.2026 07:40
Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Keisha Lance Bottoms verður fyrsta svarta konan til að gegna ríkisstjóraembætti í Bandaríkjunum eftir nýafstaðnar kosningar í Georgíu. Hún verður um leið fyrsti Demókratinn til að sitja í ríkisstjórabústað þessa mikilvæga barátturíkis í yfir 25 ár. Erlent 4.11.2026 06:20
Draumur Demókrata að rætast Demókrataflokkurinn er sagður hafa tryggt sér meirihluta í báðum deildum bandaríska þingsins eftir kosningar sem margir álíta dóm á störf Donalds Trump forseta. Dæmi eru um að fulltrúar Demókrata hafi náð markverðum árangri í mörgum höfuðvígum Repúblikanaflokksins. Erlent 4.11.2026 04:48
Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Milljónir Bandaríkjamanna hafa greitt atkvæði í þingkosningum í dag, sem munu hafa mikil áhrif á síðustu tvö ár Donalds Trump í embætti forseta. Líklegt er að Demókratar nái meirihluta í fulltrúadeildinni, ef marka má kannanir. Einnig eru líkur á því að þeir nái meirihluta í öldungadeildinni, fari allt á besta veg fyrir Demókrata. Erlent 3.11.2026 22:45
Bandaríkin kjósa – en hver hefur eftirlit með forsetanum? Bandaríkjamenn ganga að kjörborðinu í dag, 3. nóvember. Þeir kjósa ekki forseta, heldur alla fulltrúadeild Bandaríkjaþings, 35 öldungadeildarþingmenn og þúsundir fulltrúa til embætta í fylkjunum. Skoðun 3.11.2026 10:42
Framtíð Trump í húfi á kjördegi í Bandaríkjunum Bandaríkjamenn ganga að kjörborðinu í dag í kosningum sem gætu haft mikil áhrif á seinni tvö ár kjörtímabils Donalds Trump. Samkvæmt könnunum hafa kjósendur mestar áhyggjur af auknum kostnaði í samfélaginu en kosningarnar koma á erfiðum tíma fyrir Repúblikanaflokkinn. Erlent 3.11.2026 07:34
Ríkin sem barist er um: Blá flóðbylgja eða smáskvetta? Bandarískir kjósendur ganga að kjörborðinu á morgun, þriðjudag, í kosningum sem bera þess merki að geta markað svokallaða bláa flóðbylgju. Demókratar eru með byr undir báðum vængjum fyrir kosningarnar, ef marka má kannanir, og má meðal annars rekja þennan meðbyr til sögulegra óvinsælda Donalds Trump. Erlent 2.11.2026 08:33
„Svívirðileg svik“ Þingkona demókrata í Michigan-ríki í Bandaríkjunum hefur lýst yfir stuðningi við frambjóðanda Repúblikana í öldungadeildarkosningunum í ríkinu. Ákvörðunin kemur í kjölfar harðvítugra deilna við frambjóðanda eigin flokks en spennan fyrir þingkosningarnar í Bandaríkjunum á morgun nálgast nú suðupunkt. Erlent 2.11.2026 06:34
„Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Mjög miklar líkur eru á að Demókratar vinni sigur í báðum þingdeildum í Bandaríkjunum í kosningum á þriðjudag að sögn sérfræðings um bandarísk stjórnmál. Fari svo þá blasi við að stofnaðar verði rannsóknanefndir sem muni skoða embættisaðgerðir Trump Bandaríkjaforseta og ríkisstjórnar hans. Erlent 1.11.2026 14:32
„Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Donald Trump hætti í gær við að fara á tvo kosningafundi í Iowa og Kansas um helgina. Kannanir benda til þess að jafnt sé á milli frambjóðenda í báðum ríkjum og er stjórn Repúblikanaflokksins á öldungadeildinni í óvissu. Þrátt fyrir það sögðu leiðtogar Repúblikanaflokksins að hætt hefði verið við kosningafundina vegna þess að frambjóðendum flokksins vegnaði svo vel þar og að Trump þyrfti því ekki að heimsækja ríkin. Erlent 30.10.2026 10:44
Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Tveir kaþólskir biskupar harma heimsókn sína í Hvíta húsið til Bandaríkjaforseta eftir að myndband af bænastund þeirra fór í dreifingu. Heimsóknin hafi ekki verið til stuðnings forsetanum né hans stefnu og saka þeir stjórn hans um að nýta sér heimsóknina í pólitískum tilgangi í aðdraganda þingkosninga. Erlent 26.10.2026 19:59
Nóg sé komið af Trump Barack Obama, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, gagnrýndi núverandi Bandaríkjaforseta harðlega á kosningafundi í Ohio í gær í aðdraganda þingkosninga. Donald Trump gæti engum kennt nema sjálfum sér um hátt verðlag og nú væri nóg komið. Erlent 25.10.2026 07:53
Styður Repúblikana með tugum milljarða Forsvarsmenn tveggja pólitískra aðgerðanefnda (super PAC) vestanhafs eru að draga úr aðstoð sinni við að minnsta kosti tvo frambjóðendur Repúblikanaflokksins. Repúblikanar hafa mikið forskot á Demókrata þegar kemur að peningum, þótt staða þeirra þyki ekki góð. Elon Musk, auðugasti maður heims, er sagður hafa gefið Repúblikönum um 44,7 milljarða króna fyrir kosningarnar í næsta mánuði. Erlent 13.10.2026 22:56
Vance biðlar til ungra reiðra manna Af þeim hópum kjósenda sem skiptu hvað mestu máli við að koma Donald Trump aftur til valda voru ungir menn meðal þeirra áhrifamestu. Margir þeirra segjast hins vegar hafa snúið baki við Trump og hafa lýst yfir reiði í garð ríkisstjórnar hans vegna stríðsins gegn Íran, hækkandi verðlags og annarra atriða. Repúblikanar telja þó að hægt sé að ná til þeirra og að gífurlega mikilvægt sé að ná þeim aftur á kjörstað í þingkosningunum í næsta mánuði. Erlent 9.10.2026 19:42
Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Donald Trump ætlar ekki að endurgreiða bandaríska ríkinu fyrir umdeildar auglýsingar sem hafa verið birtar í sjónvarpi vestanhafs. Í gær sagði forsetinn að pólitísk aðgerðanefnd hans, MAGA Inc, myndi greiða fyrir auglýsingarnar sem hafa verið harðlega gagnrýndar, þar sem þær hafa verið fjármagnaðar með skattfé og þykja mjög pólitískar. Erlent 6.10.2026 23:00
Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Donald Trump segir að hann muni láta eigin pólitíska aðgerðanefnd, svokallaða Super PAC, greiða fyrir umdeildar auglýsingar sem hafa verið birtar í bandarískum fjölmiðlum á undanförnum vikum. Auglýsingarnar, sem þykja mjög pólitískar í aðdraganda þingkosninga, hafa verið fjármagnaðar af heimavarnaráðuneyti Bandaríkjanna en stofnunum ætti að vera óheimilt að gera slíkar auglýsingar. Erlent 6.10.2026 00:00
Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Hundruð þúsunda Bandaríkjamanna hafa nú þegar greitt atkvæði í þingkosningum þar í landi þótt mánuður sé til kosninga. Kannanir benda til þess að kjósendur Demókrata séu duglegri að kjósa snemma en í síðustu forsetakosningum. Erlent 1.10.2026 16:01
Baráttan harðnar í Texas: Dæla milljónum í baráttuna um öldungadeildina Bæði Repúblikanar og Demókratar eru að dæla milljörðum í kosningabaráttuna um annað öldungadeildarsæti Texasríkis. Repúblikanar hafa áhyggjur af því að missa sætið, sem hefur verið í höndum þeirra um árabil, og Demókratar sjá tækifæri til að ná mögulega meirihluta í öldungadeildinni. Erlent 25.9.2026 22:46
Beita buddunni til að vega á móti óvinsældum Trumps Repúblikanar eru byrjaðir að verja fúlgum fjár í auglýsingar í aðdraganda kosninganna í nóvember. Þeir sitja á mun digrari sjóðum en Demókratar. Forsetinn sjálfur situr á rúmum fjögur hundruð milljónum dala í pólitískri aðgerðanefnd sinni og er byrjaður að beita honum til að styðja frambjóðendur Repúblikanaflokksins. Erlent 22.9.2026 08:50
Úrskurður Hæstaréttar bakslag fyrir Trump Nýr úrskurður Hæstaréttar Bandaríkjanna um póstatkvæði í þingkosningunum í nóvember er vonbrigði fyrir Donald Trump forseta. Trump undirritaði forsetatilskipun í mars þar sem innleiða átti nýjar kröfur með það að markmiði að takmarka slík atkvæði. Erlent 15.9.2026 07:08
Ætli að gefa öllum þúsundir dollara ef repúblikanar sigra Donald Trump Bandaríkjaforseti sagðist ætla að gefa öllum fullorðnum Bandaríkjamönnum fimm þúsund dollara ef repúblikanar bera sigur úr býtum í báðum deildum þingsins. Kosningarnar fara fram í nóvember. Erlent 10.9.2026 07:30
Segir Repúblikönum að tala meira um afrek hans Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, hvatti Repúblikana í erfiðri stöðu fyrir þingkosningarnar í nóvember til að byggja kosningabaráttuna á afrekum hans í embætti. Það er þrátt fyrir mjög svo litlar vinsældir forsetans, en hann hefur einnig heitið því að ferðast víðsvegar um Bandaríkin og berjast fyrir frambjóðendur í um 35 kjördæmum sem gætu ráðið úrslitum hvað varðar stjórn fulltrúadeildarinnar næstu tvö ár. Erlent 3.9.2026 23:00
Dómur Hæstaréttar í kosningamáli góðar fréttir fyrir Trump Hæstiréttur Bandaríkjanna féllst ekki á kröfu fjölda ríkja um að stöðva framgang forsetatilskipunar Donalds Trumps sem er ætlað að takmarka utankjörfundaratkvæðagreiðslu. Erlent 25.8.2026 00:00
Þingkosningar í Bandaríkjunum: Meira en helmingslíkur á að Demókratar nái öldungadeildinni Einn helsti skoðanakannanasérfræðingur Bandaríkjanna telur 84 prósent líkur á því að Demókratar nái meirihluta í fulltrúadeild bandaríska þingsins í nóvember og 56,8 prósent líkur á því að þeir nái einnig yfirráðum í öldungadeildinni. Erlent 22.8.2026 07:30
Trump sáir efasemdafræjum í aðdraganda þingkosninga Áhyggjur fara nú vaxandi af því að Donald Trump Bandaríkjaforseti og stofnanir undir honum muni freista þess að hafa áhrif á úrslit þingkosninganna í haust, ef þau verða óhagstæð. Trump fór mikinn í ræðu í nótt, þar sem hann reyndi enn og aftur að færa rök fyrir því að forsetakosningunum 2020 hefði verið „stolið“. Erlent 17.7.2026 06:54
Gerir Repúblikönum á þingi enn lífið leitt Donald Trump tilnefndi í gær formlega Todd Blanche til embættis dómsmálaráðherra. Blanche hefur um nokkuð skeið starfað sem starfandi ráðherra, síðan Trump rak Pam Bondi, en á þeim tíma hefur hann þótt umdeildur í starfi og verið sakaður um að hegða sér eins og hann sé ennþá einkalögmaður forsetans. Erlent 9.6.2026 23:12
Repúblikanar unnu kjördæmastríðið Útlit er fyrir að Repúblikanar geti grætt um tíu þingsæti í fulltrúadeildinni vegna breytinga á kjördæmum fyrir þingkosningarnar vestanhafs í nóvember. Það er að segja, ef allt fer eftir væntingum þeirra. Demókratar þurfa einungis nokkur sæti til að ná meirihluta í fulltrúadeildinni og bæði kannanir og sagan gefa Demókrötum byr undir báða vængi. Erlent 5.6.2026 07:03
Bannar ráðuneytinu að stofna skaðabótasjóðinn Bandarískur dómari meinaði í dag ríkisstjórn Donalds Trump að stofna og greiða peninga úr skaðabótasjóði. Bannið er tímabundið á meðan dómstólar eiga að segja til um lögmæti sjóðsins umdeilda. Umræddur sjóður inniheldur 1.776 milljónir dala eða um tvö hundruð milljarða króna og á honum að vera ætlað að greiða skaðabætur til fólks sem telur sig fórnarlömb vopnvæðingar réttarkerfis Bandaríkjanna skaðabætur. Erlent 29.5.2026 16:58