Kjarnorkuvopn

Fréttamynd

Segir Írani ekki lengur geta auðgað úran

Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels, heldur því fram að Íranir geti ekki lengur auðgað úran, sem þarf til þess að búa til kjarnorkuvopn, eða framleitt frekari skotflaugar. Hann neitar því að Ísraelsmenn hafi dregið Bandaríkjamenn í stríðið og segir Ísraelsmenn ætla að hætta að ráðast á olíuinnviði Írans.

Erlent
Fréttamynd

Fríska upp á kjarn­orku­mann­virki í laumi

Djúpt inni í fjallagörðum Sesúan-dals í vesturhluta Kína, langt frá helstu byggðakjörnum, hafa nokkur gömul kjarnorkumannvirki á síðustu árum fengið endurnýjun lífdaga í nánast algjörri leynd. Loftmyndir af leynilegum kjarnorkustöðvum varpa ljósi á það hvernig stjórnvöld í Peking hafa reynt að stækka vopnabúr sitt.

Erlent
Fréttamynd

Í­hugar að senda annað flugmóðurskip til Mið-Austurlanda

Bandaríkjamenn leggja nú línurnar að því að senda annað flugmóðurskip og fylgiflota þess til Mið-Austurlanda. Donald Trump, forseti, sagðist fyrr í vikunni vera að íhuga að senda annað flugmóðurskip í undirbúningi fyrir mögulegar árásir á Íran, ef viðræður við klerkastjórnina þar skila engum árangri.

Erlent
Fréttamynd

Nýtt sam­komu­lag eða nýtt vopnakapphlaup?

Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, og meðlimir ríkisstjórnar hans eru að skoða hvort virkja eigi fleiri kjarnorkuvopn og íhuga mögulega tilraunasprengingu. Þetta hafa embættismenn Trumps gert ljóst á undanförnum dögum, síðan síðasti kjarnorkuvopnasamningurinn milli Bandaríkjanna og Rússlands rann sitt skeið í síðustu viku.

Erlent
Fréttamynd

Banda­ríkja­menn og Rússar taka upp form­leg sam­skipti á ný

Stjórnvöld í Bandaríkjunum og Rússlandi hafa komist að samkomulagi um að koma aftur á formlegum og stöðugum samskiptum milli hernaðaryfirvalda ríkjanna. Tilkynnt var um þetta í kjölfar funda fulltrúa Bandaríkjanna og Rússlands á hliðarlínum viðræðna um Úkraínu í Abu Dhabi.

Erlent
Fréttamynd

Dómsdagsklukkan færð fram

Hin svokallaða dómsdagsklukka hefur verið færð fram og stendur nú í 85 sekúndum frá miðnætti, sem er met. Í fyrra var hún í 89 og færðist því fjórum sekúndum nær endalokunum milli ára. Dómsdagsklukkan er tæki vísindamanna til að sýna fram á það hve nálægt mannkynið er heimsendi.

Erlent
Fréttamynd

Svíar líta til kjarn­orku­vopna

Ulf Kristersson, forsætisráðherra Svíþjóðar, segir að ríkisstjórn hans hafi átt í grunnviðræðum við yfirvöld Í Bretlandi og í Frakklandi um mögulegt samstarf á sviði kjarnorkuvopna. Ummælin þykja benda til þess að ráðamenn í Evrópu telji sig geta mögulega ekki reitt sig á vernd Bandaríkjanna.

Erlent
Fréttamynd

Kim á­nægður með nýjar stýri­flaugar

Yfirvöld í Norður-Kóreu sögðu frá því í morgun að gerð hefði verið tilraun með langdræga stýriflaug sem á að geta borið kjarnorkuvopn. Tveimur slíkum var skotið á loft í gær, nokkrum dögum eftir að Kim Jong Un, einræðisherra Norður-Kóreu, skoðaði kjarnorkuknúinn kafbát sem verið er að smíða þar.

Erlent
Fréttamynd

Prófuðu annað kjarnorkuknúið vopn

Vladimír Pútín, forseti Rússlands, opinberaði í morgun að Rússar hefðu gert aðra tilraun með kjarnorkuknúið vopn. Það gerði hann í heimsókn til særðra hermanna á sjúkrahúsi í Moskvu í morgun en umrætt vopn er eins konar tundurskeyti sem á að geta siglt endalaust og borið kjarnorkuvopn að ströndum óvinveittra ríkja.

Erlent
Fréttamynd

Segja „fljúgandi Chernobyl“ hafa flogið í fimm­tán klukku­stundir

Ráðamenn í Rússlandi segjast hafa lokið tilraunum með kjarnorkuknúna eldflaug sem getur einnig borið kjarnorkuvopn. Stýriflaugin á að hafa verið á loft í fimmtán klukkustundir og flogið um fjórtán þúsund kílómetra en Vladimír Pútín, forseti, segir vopnið vera einstakt. Ekkert annað ríki búi yfir sambærilegu vopni.

Erlent