Pétur Marteinsson

Fréttamynd

Reykja­vík sem gerir okkur stolt

Ég er stoltur af Reykjavík. Hér eru öflug hverfi. Sterk íþróttafélög. Hér er gott skólakerfi og mikið aðgengi að fjölbreyttum tómstundum fyrir börn. Hér eru sundlaugar sem eru gersemar sem aðrar þjóðir öfunda okkur af. Græn svæði og borgarrými fyrir íbúa til að koma saman. 

Skoðun
Fréttamynd

Það kemur ekki til greina að rífa upp samgöngusáttmálann

Umræðan fyrir komandi kosningar hefur færst frá bílastæðum yfir í að endurskoða samgöngusáttmálann frá grunni. Þegar samgöngusáttmálinn var undirritaður árið 2019 markaði það tímamót í samgöngumálum á höfuðborgarsvæðinu. Þar sameinuðust öll sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu, leidd af ýmsum flokkum, um forgangsröðun framkvæmda enda höfuðborgarsvæðið eitt atvinnu- og búsetusvæði.

Skoðun
Fréttamynd

Fjár­festum í börnum

Á síðustu tíu árum hefur börnum af erlendum uppruna fjölgað hratt í skólum landsins. Hlutfall þeirra hefur víða meira en tvöfaldast síðan 2015 og er nú á bilinu 15–20% í grunnskólum, hærra í sumum hverfum Reykjavíkur. Þessi börn eru flest komin hingað til að vera, fjölskyldur þeirra eru að byggja sér líf á Íslandi og það er á okkar ábyrgð að tryggja þeim jöfn tækifæri til þátttöku í samfélaginu.

Skoðun
Fréttamynd

Rúllum út rauða dreglinum

„Kerfið er of þungt.“ Þessi setning hefur fylgt mér úr mörgum samtölum sem ég hef átt við borgarbúa, fólk í atvinnulífinu og starfsfólk í framlínunni síðustu vikur.

Skoðun
Fréttamynd

Öxlum á­byrgð og segjum satt

Ég hef í prófkjörsbaráttunni gert takmarkað traust borgarbúa til borgarstjórnar að umræðuefni og það er ein ástæða þess að ég gef kost á mér í oddvitasæti Samfylkingarinnar fyrir borgarstjórnarkosningarnar í vor. Ég tel einfaldlega að hægt sé að gera mun betur og að borgarbúar verðskuldi að geta treyst borgarfulltrúum sínum.

Skoðun
Fréttamynd

Manst þú eftir hverfinu þínu?

Breiðholtið í kringum 1980 var algjör draumastaður til að búa á. Að minnsta kosti ef maður var sjö ára með grasgrænu á buxunum og mamma kallaði af svölunum í Suðurhólunum að það væri kominn kvöldmatur. Ég held það hafi verið gaman hjá fullorðna fólkinu líka.

Skoðun
Fréttamynd

Sækjum til sigurs í Reykja­vík

Ég ákvað fyrir skemmstu að gefa kost á mér sem oddviti Samfylkingar í Reykjavík. Prófkjör flokksins fyrir komandi borgarstjórnarkosningar fer fram með rafrænum hætti laugardaginn 24. janúar og er opið öllum skráðum flokksfélögum.

Skoðun