Rannsókn á andláti í Hraunbúðum í Eyjum
Rannsókn hófst eftir tilkynningu starfsmanns Héraðsdómur Suðurlands hafnaði nú síðdegis kröfu lögreglunnar um gæsluvarðhald yfir tveimur starfsmönnum hjúkrunarheimilisins Hraunbúða í Vestamannaeyjum, sem hafa verið í haldi lögreglu frá því í gær í tengslum við andlát konu á tíræðisaldri. Samkvæmt heimildum fréttastofu hóf lögreglan rannsókn á andlátinu eftir tilkynningu frá öðrum starfsmanni hjúkrunarheimilisins í kjölfar lyfjagjafar. Innlent 3.2.2026 18:32
Kröfunni hafnað og starfsmönnunum sleppt Héraðsdómur Suðurlands hefur hafnað kröfu Lögreglunnar á Suðurlandi um gæsluvarðhald yfir tveimur starfsmönnum hjúkrunarheimilisins Hraunbúða í Vestmannaeyjum í tengslum við rannsókn á andláti konu á tíræðisaldri. Lögreglan á Suðurlandi ætlar að kæra niðurstöðuna til Landsréttar. Innlent 3.2.2026 16:31
Fjölskyldu konunnar grunaði ekkert Fjölskyldu konu á tíræðisaldri, sem lést á hjúkrunarheimilinu Hraunbúðum í Vestmannaeyjum í síðustu viku, grunaði ekki að andlátið gæti hafa borið að með saknæmum hætti fyrr en Lögreglan á Suðurlandi hafði samband við hana um helgina. Lögreglan í Vestmannaeyjum sagði sig frá rannsókn málsins vegna fjölskyldutengsla starfsmanns hennar við konuna. Innlent 3.2.2026 15:33
Fara fram á gæsluvarðhald yfir starfsmönnum Hraunbúða Lögreglan á Suðurlandi hefur farið fram á gæsluvarðhald yfir tveimur starfsmönnum sjúkrastofnunar í Vestmannaeyjum í tengslum við andlát á stofnuninni í síðustu viku. Gæsluvarðhaldskrafan verður tekin fyrir í hádeginu en lögregla vill halda sakborningunum fram á föstudag. Innlent 3.2.2026 11:45
Öðru embætti falið að rannsaka andlátið Rannsókn Lögreglunnar á Suðurlandi á andláti á sjúkrastofnun í Vestmannaeyjum hófst um helgina en andlátið bar að í síðustu viku. Ríkissaksóknari fól embættinu að sinna rannsókninni þrátt fyrir að hún ætti að heyra undir Lögregluna í Vestmannaeyjum. Innlent 3.2.2026 09:41
Tveir handteknir í tengslum við andlát í Vestmannaeyjum Tveir eru í haldi lögreglu í tengslum við andlát á sjúkrastofnun í Vestmannaeyjum. Innlent 2.2.2026 20:20