Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran „
1 2 3 4 5 6 7 8 … 8 ›
„Við sniðgöngum Bandaríkin en ekki HM“ Íranska knattspyrnusambandið heldur sig við áætlanir um að taka þátt í úrslitakeppni heimsmeistaramótsins í Norður-Ameríku í sumar þrátt fyrir árásir Bandaríkjanna á landið. Fótbolti 19.3.2026 17:48
Vilja 25 billjónir: „Það þarf peninga til að drepa vonda kalla“ Forsvarsmenn varnarmálaráðuneytis Bandaríkjanna eru sagðir hafa farið fram á við Hvíta húsið að fá tvö hundruð milljarða dala í aukafjárveitingu vegna stríðsins gegn Íran. Pete Hegseth, varnarmálaráðherra, segir þá tölu geta breyst en það þurfi „peninga til að drepa vonda kalla“. Erlent 19.3.2026 13:52
Árásum fjölgar og olíu- og gasverð rýkur upp Íranir hafa gert þó nokkrar árásir á olíu- og jarðgasvinnsluinnviði í Mið-Austurlöndum í morgun. Yfirvöld í Sádi-Arabíu segja drónaárás hafa verið gerða á olíuvinnslustöð við Rauða hafið og ráðamenn í Kúveit segja elda hafa kviknað eftir árásir á tvær olíuvinnslur þar í landi í morgun. Einnig var gerð árás á stærstu jarðgasvinnslu heims í Katar í gær. Viðskipti erlent 19.3.2026 09:48
Trump hótar umfangsmiklum árásum á olíuinnviði Íran Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur hótað umfangsmiklum árásum á Suður Pars-gasvinnslusvæðið ef Íranir gera frekari árásir á gasinnviði í Katar. Erlent 19.3.2026 06:51
Olíuvinnslur rýmdar eftir árásir á eitt stærsta gassvæði heims Árásir voru gerðar á eitt stærsta gassvæði heimsins í Íran í dag. Svæði þetta kallast Pars-gassvæðið og deila Íranir því með Katörum, hinum megin við Persaflóa. Ráðamenn í Katar hafa sakað Ísraela um árásirnar í dag en myndefni af vettvangi gefur til kynna að margir gaspallar standi í ljósum logum. Erlent 18.3.2026 15:08
Felldu enn einn ráðherrann: Reyna að ryðja leiðina fyrir Írani en gætu eflt herinn Ísraelar segjast hafa fellt enn einn ráðherrann í Íran. Að þessu sinni er um að ræða Esmaeil Khatib, ráðherra leyniþjónustumála í Íran, en fyrr í vikunni felldu þeir Ali Larijani, forseta þjóðaröryggisráðs Íran, sem var talinn vera raunverulegur stjórnandi landsins eftir að æðstiklerkurinn Ali Khamenei var ráðinn af dögum fyrir rúmum tveimur vikum. Erlent 18.3.2026 11:01
Hóta hefndum fyrir drápið á Larijani Að minnsta kosti tveir létust þegar Íranir skutu eldflaugum með klasasprengjum á Tel Aviv í nótt. Ríkismiðlar í Íran sögðu um að ræða hefndarárás vegna dráps Ísraelsmanna á Ali Larijani, yfirmanni öryggismála og einum helsta ráðgjafa Ali Khamenei. Erlent 18.3.2026 06:42
Staðfesta andlát Larijani og Soleimani Ali Larijani, yfirmaður þjóðaröryggisráðs Írans, lést í loftárás Ísraelshers í gærkvöldi ásamt yfirmanni Basij-hersveitanna í Teheran. Erlent 17.3.2026 22:32
Geti ekki starfað undir Bandaríkjaforseta með góðri samvisku Forstjóri bandarísku miðstöðvarinnar gegn hryðjuverkum hefur sagt af sér vegna stríðsins í Íran. Hann hvetur forsetann til að snúa við blaðinu. Erlent 17.3.2026 20:32
FIFA neitar að færa HM-leiki Írans til Mexíkó Alþjóðaknattspyrnusambandið, FIFA, virðist hafa útilokað að leikir Írans á heimsmeistaramótinu í sumar verði færðir frá Bandaríkjunum til Mexíkó. Fótbolti 17.3.2026 18:16
„Við þurfum ekki hjálp frá neinum!“ Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, segir ráðamenn í bandalagsríkjum Bandaríkjanna í Atlantshafsbandalaginu flesta hafa gert sér ljóst að þeir muni ekki taka þátt í hernaðaraðgerðum gegn klerkastjórninni í Íran. Forsetinn segir þetta ekki koma sér á óvart, þar sem hann hafi lengi talið NATO vera einstefnugötu. Þá segir hann að Bandaríkin hafi ekki þurft hjálp þeirra og þurfi ekki hjálp frá neinum. Erlent 17.3.2026 15:43
Íranar reyna að færa leikina til Mexíkó Enn ríkir óvissa um þátttöku landsliðs Írans á HM karla í fótbolta í sumar. Knattspyrnusamband landsins á í viðræðum við yfirvöld í Mexíkó um að spila leiki liðsins þar, fremur en í Bandaríkjunum. Fótbolti 17.3.2026 11:02
Segjast hafa sent tvo háttsetta Írani til „dýpstu kima helvítis“ Varnarmálaráðherra Ísrael segir að Ali Larijani, forseti þjóðaröryggisráðs Íran, hafi verið felldur í loftárás í nótt. Þá segjast Ísraelar einnig hafa banað yfirmanni Basij-sveitanna svokölluðu en það eru sveitir sjálfboðaliða sem heyra undir íranska byltingarvörðinn. Þessar sveitir hafa verið sakaðar um umfangsmikil ódæði gegn mótmælendum í Íran. Erlent 17.3.2026 09:53
Árás gerð á sendiráð Bandaríkjanna í Baghdad Árásir Írana á skotmörk í nágrannaríkjunum héldu áfram í nótt og í morgun og sömuleiðis árásir Ísraelsmanna á skotmörk í Líbanon. Drónaárás var gerð á sendiráð Bandaríkjanna í Baghdad í Írak og þá var gerð árás á lúxushótel í borginni sem er vinsælt meðal erlendra diplómata. Erlent 17.3.2026 06:52
Stórhækkun á verði áls jákvæð fyrir samfélagið Heimsmarkaðsverð á áli hefur ekki verið hærra í fjögur ár. Framkvæmdastjóri Samáls segir auknar tekjur íslensku álveranna skila sér út í samfélagið með einum eða öðrum hætti. Viðskipti innlent 16.3.2026 20:32
Vona að þeir leysi vandamálin og Íran verði með á HM Knattspyrnusamband Asíu hefur ekki fengið neinar vísbendingar um að Íran muni draga sig úr keppni á heimsmeistaramótinu í fótbolta í sumar. Á sama tíma fylgjast þeir spenntir með málinu. Fótbolti 16.3.2026 18:30
Vill að forsetar eins og Trump verði sendir sjálfir á víglínuna Knattspyrnugoðsögnin Eric Cantona hefur sett fram eldheita skoðun sína á ákvörðunum forseta að fara með þjóð sína út í stríð. Enski boltinn 16.3.2026 18:10
Besti dagur Wall Street frá því stríðið hófst Olíuverð hefur lækkað á mörkuðum í dag og verðbréfavísitölur vestanhafs hafa hækkað. Dagurinn á Wall Street ku vera sá besti frá því Bandaríkjamenn og Ísraelar hófu árásir á Íran. Viðskipti erlent 16.3.2026 17:48
Bandamenn taka fálega í aðstoðarkröfur Trumps Bandamenn Bandaríkjanna í Evrópu og Asíu hafa tekið kröfum Trumps um að þeir sendi herskip til Mið-Austurlanda og aðstoði Bandaríkjamenn við að halda Hermússundi opnu af varkárni og með efasemdum. Bandaríkjamenn sögðu bandamönnum sínum ekki frá ætlunum sínum varðandi Íran. Erlent 16.3.2026 15:49
Fjárhættuspilarar hóta blaðamanni lífláti Þriðjudaginn 10. mars birti ísraelskur blaðamaður færslu í vaktarfrétt miðilsins Times of Israel sem átti eftir að draga dilk á eftir sér. Þá hafði írönsk skotflaug lent í borginni Beit Shemesh, skammt frá Jerúsalem. Fljótt kom í ljós að skotflaugin hafði lent á óbyggðu svæði í um fimm hundruð metra fjarlægð frá íbúðarhúsum og sakaði engan. Erlent 16.3.2026 14:33
Vilja tækni og peninga fyrir aðstoð gegn írönskum drónum Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, segir Úkraínumenn þurfa peninga og tækni frá Mið-Austurlöndum í skiptum fyrir tæknilega aðstoð og þekkingu hvað varðar varnir gegn írönskum sjálfsprengidrónum. Þrjú teymi úkraínskra sérfræðinga hafa verið send til Mið-Austurlanda til að aðstoða hermenn og ráðleggja þeim varðandi hvernig best sé að verjast drónunum, sem Úkraínumenn hafa verið að verjast um árabil. Erlent 16.3.2026 11:51
Trump hefur í hótunum við bandamenn vegna Hormuz-sunds Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur varað við því að framtíð Atlantshafsbandalagsins sé í húfi komi bandamenn ekki til aðstoðar við að greiða fyrir opnun Hormuz-sunds. Erlent 16.3.2026 06:38
Hóta höfnum eftir árás á „krúnudjásnið“ Bandaríkin gerðu árás á aðalútflutningshöfn Írana í nótt og írönsk stjórnvöld hóta nú að ráðast á hafnir í Sameinuðu arabísku furstadæmunum, sem gæti valdið talsverðri stigmögnun á stríðinu í Mið-Austurlöndum. Bandaríkjaforseti heldur því fram að Bretar, Kínverjar og Frakkar ætli meðal annars að aðstoða við að tryggja örugga olíuflutninga um Hormússund en téð ríki eiga enn eftir að staðfesta það. Enn hefur ekkert sést til æðstaklerks Írans. Erlent 14.3.2026 20:41
Yfirlýsing íranska landsliðsins: „Enginn getur bannað okkur að fara á HM“ Leikmenn íranska karlalandsliðsins í fótbolta hafa sent frá sér yfirlýsingu þar sem þeir segja að enginn geti bannað þeim að keppa á HM 2026. Donald Trump Bandaríkjaforseti sagði að ef til vill væri betra að Íranir héldu sig heima þegar HM fer fram í Bandaríkjunum, Kanada og Mexíkó í sumar. Fótbolti 14.3.2026 11:00
Markmiðið enn að koma í veg fyrir að Íranir eignist kjarnavopn en hvernig? Pete Hegseth, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, var vígreifur á blaðamannafundi í Washington nú fyrir stundu og sagði öll spilin á höndum Donald Trump forseta. Erlent 13.3.2026 12:51
Allir sex látnir eftir að herflugvél brotlenti í Írak Allir sex í áhöfn bandarískrar eldsneytisflutningaflugvélar sem brotlenti í Írak í gær eru látnir. Ástæður slyssins eru enn til rannsóknar en svo virðist sem tvær flugvélar af gerðinni KC-135 hafi skollið saman við dælingu eldsneytis í háloftunum yfir Írak í gær. Önnur hafi þá hrapað til jarðar en flugmönnum hinnar tókst að lenda í Ísrael. Erlent 13.3.2026 10:44
Franskur hermaður féll í drónaárás í Írak Emmanuel Macron, forseti Frakklands, fordæmdi í nótt drónaárás í norðurhluta Íraks. Nokkrir franskir hermenn særðust og einn yfirmaður lét lífið í árásinni. Hermennirnir hafa verið að þjálfa írakska Kúrda í að berjast gegn vígahópum á svæðinu. Erlent 13.3.2026 08:04
Virðast ekki hafa gert ráð fyrir að sundið myndi lokast Stjórnvöld í Washington eru sögð hafa misreiknað sig verulega við skipulagningu aðgerðanna gegn Íran og ekki gert ráð fyrir því að þarlend yfirvöld myndu reynast viljug til að loka Hormuz-sundi. Erlent 13.3.2026 07:53
Ekkert lát á árásum Ísraela og hvatt til rýmingar á stóru svæði Ísraelsher hefur haldið árásum sínum á suðurhluta Líbanon áfram og hefur nú beint þeim tilmælum til íbúa á stóru svæði sem nær til nokkurra borga og fjölda þorpa að flýja heimili sín og halda norður. Erlent 13.3.2026 06:49
Bandarísk herflugvél fórst í Írak Björgunaraðgerðir eru hafnar eftir að bandarísk herflugvél sem ætlað var að flytja eldsneyti fórst í Írak. Þetta kemur fram í tilkynningu sem yfirstjórn herafla Bandaríkjanna í Miðausturlöndum sendi frá sér í dag. Þar greinir einnig frá því að tvær herflugvélar hafi átt hlut að máli en að önnur þeirra hafi lent heilu og höldnu á meðan hin fórst í vesturhluta Íraks. Erlent 12.3.2026 23:29