Tap hjá Israel Martin á gamla heimavellinum Anton Ingi Leifsson skrifar 13. nóvember 2019 20:55 Israel Martin í leik gegn Grindavík á dögunum. vísir/bára
Israel Martin mætti á sinn gamla heimavöll er lærisveinar hans í Haukum töpuðu fyrir Tindasstól, 89-77, í Síkinu í kvöld. Leikurinn var liður í 7. umferð Domnos-deildar karla. Það var kraftur í Stólunum í kvöld og enginn þreytumerki á þeim eftir góðan sigur á sexföldum Íslandsmeisturum KR á útivelli í DHL-höllinni á föstudagskvöldið. Tindastóll var 25-17 yfir eftir fyrsta leikhlutann og leiddi svo með sex stigum, 49-43, þegar liðin gengu til búningsherbergja. Mikill kraftur var í Stólunum í þriðja leikhlutanum. Haukarnir hittu illa og skoruðu einungis þrettán stig í þriðja leikhlutanum. Sigurinn aldrei í hættu og lokatölur 89-77. Eftir sigurinn er Tindastóll í 2. sæti deildarinnar með tíu stig en Haukarnir eru í 4. sætinu með átta stig. Þau voru bæði með átta stig fyrir leik kvöldsins. Pétur Rúnar Birgisson átti flottan leik fyrir Stólanna. Hann skoraði 21 stig, tók sex fráköst og gaf fjórar stoðsendingar. Sinisa Bilic bætti við 19 stigum og fimm fráköstum. Flenard Whitfield var öflugur í Haukaliðinu. Hann skoraði 24 stig og tók sextán fráköst. Það var lengra í næstu menn en Kári Jónsson gerði fimmtán stig, tók fjögur fráköst og gaf sjö stoðsendingar.
Dominos-deild karla Mest lesið Brjóta lög fótboltans með sýningunni í hálfleik Fótbolti Segir að þarna hafi Haaland skorað sjálfsmark Fótbolti England - Argentína | Messi mætir ensku ljónunum í fyrsta sinn Fótbolti „Dapurlegt tímabil í sögu ríkis okkar“ Fótbolti Bónorð strax eftir leik í Garðabæ Íslenski boltinn „Er dómarinn á því getustigi sem þarf í undanúrslitum HM?“ Fótbolti „Hann var farinn að spyrja hvenær við ætluðum að flytja til Íslands“ Íslenski boltinn Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Enski boltinn Tvenna Daníels tryggði Víkingi meira en hundrað milljónir Fótbolti „Dramatískasta viðureignin í alþjóðafótboltanum“ Fótbolti Fleiri fréttir Stjörnur Sixers reyna að freista LeBron Fjölnir þiggur sæti Aþenu Gary Payton þjálfar Jeremy Pargo í BIG3-deildinni Íslensku strákarnir héldu sigurgöngunni áfram Minnist Kinu Rochford: „Einn af þeim eftirminnilegri sem maður hefur verið með í liði“ „Verið að þreyta okkur þangað til við gefumst upp“ Kastaði skó í mótherja í miðjum leik Sveinn Búi snýr heim og semur við Hött Móðir Kinu Rochford syrgir: „Á röngum stað“ Tólfta sæti niðurstaðan eftir tap fyrir Lettum Dregur Aþenu úr keppni og sakar borgina um valdníðslu Tap fyrir Þjóðverjum í skrautlegum leik Kinu Rochford sagður myrtur Annar stórsigur strákanna á EM Grindvíkingar halda sænsku landsliðskonunni Stelpurnar skelltu Svíum og tilheyra áfram elítunni Hélt hann yrði frá í sex mánuði en byrjar strax í fyrsta leik Liðin senda LeBron James raddskilaboð og reyna að selja sig Bara risaleikir milli jóla og nýárs Frank Aron Booker yfirgefur Val og semur við Álftanes Þungt tap gegn Tyrkjum og Svíar bíða Berglind næststigahæst á EM 16 ára Berglind mögnuð er Ísland náði sögulegum árangri Elvar snýr aftur til Litháens Jón Axel spilar á Kanaríeyjum Patrick Ewing fékk aftur starf á gólfinu í NBA-deildinni Valsmenn fá til sín stigakóng síðasta tímabils „Maður hefur spilað körfubolta lengi“ „Komið með þessa NBA karla, við erum klárir“ Uppgjör: Bretland – Ísland 86-88 | Enn einn dramatískur sigur Íslands og HM draumurinn lifir Sjá meira