Fréttir
144 145 146 147 148 149 150 151 152 … 334 ›
Kuldaboli bítur Bandaríkjamenn Mikið vetrarveður gengur nú yfir Bandaríkin og hefur áhrif á um sextíu milljónir manna í rúmlega þrátíu ríkjum. Erlent 6.1.2025 06:56
Vildi aðstoð lögreglu við að fá vinninginn afhentan Einstaklingur óskaði eftir aðstoð lögreglu í gær eftir að hafa verið „hent út af bar sökum ölvunar“. Sagði maðurinn farir sínar ekki sléttar en honum hefði verið meinað um að leysa út vinning í spilakassa áður en honum var vísað út. Innlent 6.1.2025 06:31
Musk reynir að hafa áhrif víða: „Ekki fóðra tröllið“ Auðjöfurinn Elon Musk, hægri hönd Donald Trump í forsetakosningunum, reynir nú að beita áhrifum sínum til að styðja við þýska fjarhægriflokkinn AfD og hvetja Bretakonung til að leysa upp breska þingið. Kanslari Þýskalands varar fólk við því að fóðra tröllið. Erlent 6.1.2025 00:03
Þrír Kínverjar gripnir í Kongó með tólf gullstangir og gríðarlegar fjárhæðir Þrír kínverskir ríkisborgar voru handteknir með tólf gullstangir og 800 þúsund Bandaríkjadali (um 113 milljónir íslenskra króna) í seðlum í Austur-Kongó. Erlent 5.1.2025 22:01
Grautarmessa sló í gegn í Hrepphólakirkju Grjónagrautur og slátur sló í gegn eftir Nýársmessu í Hrepphólakirkju í Hrunamannahreppi í dag en það voru karlarnir í kór kirkjunnar, sem sáu um veitingarnar fyrir kirkjugesti, sem mikil ánægja var með. Messan er kölluð Grautarmessa. Innlent 5.1.2025 21:05
Heitir því að verða betri eiginmaður og finna sér nýja vinnu Á ári hverju strengir drjúgur hluti landsmanna áramótaheit. En hver eru vinsælustu áramótaheitin í ár og hvernig gengur fólki að standa við þau? Innlent 5.1.2025 20:58
Mikið álag vegna inflúensu Inflúensusmit valda miklu álagi í heilbrigðiskerfinu þessa dagana. Fagstjóri hjá heilsugæslunni hvetur fólk til að halda sig heima til að smita ekki aðra og valda frekara álagi. Innlent 5.1.2025 20:00
The Vivienne er látin James Lee Williams, betur þekkt sem The Vivienne, er látin 32 ára að aldri. Williams vann það sér til frægðar að sigra fyrstu seríuna af dragkeppninni RuPaul's Drag Race UK árið 2019. Erlent 5.1.2025 19:56
Hringi viðvörunarbjöllum þegar of auðvelt sé að taka lán Eftirlit með neytendalánum er á herðum of margra og hafa stjórnvöld því ekki hugmynd um umfang markaðarins. Þetta segir formaður Neytendasamtakanna sem hvetur fólk til að gjalda varhug við slíkum lánum. Aðgengi að þeim sé mun betra en í ríkjunum í kringum okkur og starfsemin auglýst grimmt. Innlent 5.1.2025 19:13
Íslensku þjóðinni ofbjóði ástandið Ísland mun greiða framlög til Palestínuflóttamannaaðstoðar Sameinuðu þjóðanna fyrr en áætlað var og segir utanríkisráðherra öruggt að alvarleg brot á alþjóðalögum hafi verið framin í Gaza. Ekki sé hægt að skera úr um hvort um þjóðarmorð sé að ræða nema fyrir alþjóðadómstólum. Innlent 5.1.2025 18:02
Óvænt gagnsókn Úkraínumanna og lánamál í ólestri Eftirlit með neytendalánum er á herðum of margra og hafa stjórnvöld því ekki hugmynd um umfang markaðarins. Þetta segir formaður Neytendasamtakanna sem hvetur fólk til að gjalda varhug við slíkum lánum. Aðgengi að þeim sé mun betra en í ríkjunum í kringum okkur og starfsemin auglýst grimmt. Við fjöllum um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2 klukkan 18:30. Innlent 5.1.2025 18:00
Trump ósáttur að flaggað verði í hálfa við innsetninguna Donald Trump, nýkjörin forseti Bandaríkjanna, kvartaði yfir því á föstudaginn að enn þá verði flaggað í hálfa stöng við Hvíta húsið til heiðurs Jimmy Carter, fyrrverandi forseta, daginn sem innsetningarathöfn Trumps í embætti fer fram 20. janúar. Erlent 5.1.2025 16:54
Alvarlegt að horfa framhjá birtuleysi við þéttingu byggðar Íbúi í Hlíðarendahverfi í Reykjavík hefur áhyggjur af því að fyrirhugað fimm hæða hús í hverfinu verði til þess að aðrar íbúðir verði í skugga allan ársins hring. Umhverfissálfræðingur segir birtuleysi hafa gríðarleg áhrif á fólk. Innlent 5.1.2025 15:53
Skyndileg árás Úkraínu hafi komið Rússum í opna skjöldu Úkraínski herinn hóf í dag skyndilega gagnsókn enn lengra inn í Kúrskhérað í Rússlandi sem kom rússneskum yfirvöldum í opna skjöldu samkvæmt talsmönnum stjórnvalda í Úkraínu og rússneskum stríðsbloggurum. Erlent 5.1.2025 15:10
1166 ára gömul systkini frá Kjóastöðum og öll á lífi Elstu núlifandi systkini landsins eru systkinin sextán frá Kjóastöðum í Biskupstungum í Bláskógabyggð en þau eru samtals 1166 ára gömul. Elsta systkinið er 83 ára og það yngsta 58 ára. Innlent 5.1.2025 14:04
Tveir fluttir með sjúkrabíl eftir árekstur við Sprengisand Tveir voru fluttir með sjúkrabíl á slysadeild eftir tveggja bíla árekstur við gatnamót Bústaðarvegar og Reykjanesbrautar í Reykjavík. Innlent 5.1.2025 13:59
„Var lifandi og skemmtilegur en ömurlegt hvernig fór“ Jónas Björn Sigurgeirsson, bókaútgefandi og eiginmaður Rósu Guðbjartsdóttur þingmanns Sjálfstæðisflokksins, segir Edward Pettifer sem lést í hryðjuverkaárásinni í New Orleans á nýársdag hafa verið einstaklega skemmtilegan mann með frábært skopskyn. Innlent 5.1.2025 13:32
Vill efla vöktun og innviði vegna kerfisins sem er að vakna Sveitarstjóri í Borgarbyggð segir nauðsynlegt að efla þar vöktun og tryggja innviði í ljósi jarðhræringa í Ljósufjallakerfi síðustu daga. Borgarbyggð sé víðfemt og fjölfarið sveitarfélag, þar sem fjarskiptasambandi sé til að mynda víða ábótavant. Nýjar þrívíddarmyndir veita innsýn í dýpt og dreifingu jarðskjálfta á svæðinu síðasta árið. Innlent 5.1.2025 13:31
Skapa eigi skattalegar ívilnanir fyrir fólk og verktakafyrirtæki Prófessor í hagfræði leggur til fyrir nýja ríkisstjórn að veita fólki sem vill hafa vaðið fyrir neðan sig og vertakafyrirtækjum í byggingargeiranum skattalegar ívilnanir til að ná enn frekari tökum á verðbólgunni og vöxtum. Innlent 5.1.2025 12:00
Jarðhræringar í Borgarbyggð og elsti systkinahópur landsins Sveitarstjóri í Borgarbyggð segir nauðsynlegt að efla þar vöktun og tryggja innviði í ljósi jarðhræringa í Ljósufallakerfi síðustu daga. Borgarbyggð sé víðfemt og fjölfarið sveitarfélag, þar sem fjarskiptasambandi sé til að mynda víða ábótavant. Nýjar þrívíddarmyndir veita innsýn í dýpt og dreifingu jarðskjálfta á svæðinu síðasta árið. Innlent 5.1.2025 11:48
Aðstoðar Ingu eftir viðkomu í Sjálfstæðisflokknum, Viðreisn og JP Morgan Sigurjón Arnórsson og Hreiðar Ingi Eðvarðsson verða aðstoðarmenn Ingu Sæland sem tók nýverið við sem félags- og húsnæðismálaráðherra. Inga leitaði ekki langt eftir aðstoð en báðir hafa starfað náið með henni í Flokki fólksins um nokkurt skeið. Innlent 5.1.2025 11:42
Glitský prýddu himin höfuðborgarbúa í morgunsárið Stærðarinnar glitský blöstu við borgarbúum á himni er þeir nudduðu stýrurnar úr augunum í morgunsárið. Ljósmyndari Vísis lét ekki spyrja sig tvisvar heldur nældi sér í nokkrar frábærar myndir af þessari fögru sjón. Innlent 5.1.2025 11:40
Keyptu risa túnfisk á 1,3 milljónir dala fyrir sushi-gerð Risavaxinn túnfiskur seldist til hæst bjóðanda á uppboði í Japan fyrir 207 milljón jen sem jafngildir um 183 milljónum íslenskra króna. Fiskurinn vó 276 kíló. Innlent 5.1.2025 10:06
Efnahagsáform nýrrar stjórnar, gjaldtaka í ferðaþjónustu og tekist á um strandveiðar Margt verður til umfjöllunar í Sprengisandi á Bylgjunni í dag og meðal annars snert á áformum nýrrar ríkisstjórnar í efnahagsmálum, gjaldtöku á ferðaþjónustuna og strandveiðum. Hefst þátturinn klukkan 10. Innlent 5.1.2025 09:30
Vindstrengir ná mögulega stormstyrk í kvöld Í dag gengur í norðan 8 til 15 metra á sekúndu og búast má við hvassari vindi í vindstrengjum á Suðausturlandi og Austfjörðum undir kvöld. Ná strengirnir jafnvel stormstyrk á þessum slóðum þegar líða fer á kvöldið. Veður 5.1.2025 07:30
Austurríkiskanslari segir af sér eftir árangurslausar viðræður Karl Nehammer, kanslari Austurríkis, hefur ákveðið að segja af sér embætti. Hann tók ákvörðun um það eftir að ljóst varð að stjórnarmyndunarviðræður flokks hans, Þjóðarflokksins, og Sósíaldemókrata myndu ekki bera árangur. Erlent 4.1.2025 23:31
Í fangelsi fyrir að sofa hjá ári yngri stúlku Ungur maður frá Bretlandi hefur verið fangelsaður í Dúbaí, fyrir að eiga samræði við 17 ára stúlku. Bresk stjórnvöld eru með málið á sínu borði. Erlent 4.1.2025 22:45
Gott sparnaðarráð fyrir ríkisstjórnina að leggja niður ÁTVR Netverslun með áfengi hefur tekið stakkaskiptum með sérstöku „sýningarrými“ sem opnað var um helgina. Þingmaður Miðflokksins segir gott sparnaðarráð til ríkisstjórnarinnar vera að leggja niður ÁTVR. Enginn grundvöllur sé fyrir einkasölu ríkisins á áfengi. Innlent 4.1.2025 22:31
Höfnuðu skopmynd sem sýndi eigandann í vondu ljósi Verðlaunaskopmyndateiknari hefur sagt stöðu sinni hjá bandaríska fjölmiðlinum Washington Post lausri, eftir að mynd sem sýndi eiganda blaðsins krjúpa fyrir verðandi forseta Bandaríkjanna, ásamt fleiri auðjöfrum, var hafnað af ritstjórn blaðsins. Erlent 4.1.2025 22:16
Styttist í lokun flugvallar sem tengist flugsögu Íslendinga Flugvöllurinn í Narsarsuaq, sem lengi þjónaði sem helsta tenging milli Grænlands og Íslands, heyrir brátt sögunni til. Íslendingur sem starfar við flugvöllinn býst við að þorpið við völlinn muni að mestu leggjast í eyði. Innlent 4.1.2025 22:11