Fréttir
26 27 28 29 30 31 32 33 34 … 334 ›
Tveir særðir eftir að rússneskur dróni lendir á fjölbýlishúsi í Rúmeníu Tveir særðust þegar dróni sem var þáttur af árás Rússa á Úkraínu var flogið á fjölbýlishús í Galati í austurhluta Rúmeníu. Tvær F-16 þotur og þyrla voru sendar á loft og skilaboð send til íbúa á svæðinu. Erlent 29.5.2026 06:48
Séra Friðrik fær ekki að rísa strax Tillaga um að reisa á ný styttu af séra Friðriki Friðrikssyni í sumar var í kvöld felld á aðalfundi knattspyrnufélagsins Vals. Á sama fundi var Arnar Þór Sævarsson kjörinn formaður félagsins en hann er framkvæmdastjóri Sambands íslenskra sveitarfélaga. Innlent 28.5.2026 23:53
Samningsdrög samþykkt en beðið eftir grænu ljósi forsetans Samningamenn Bandaríkjanna og Írans eru sagðir hafa samþykkt frumdrög að samkomulagi sem myndi framlengja vopnahlé þeirra á milli um sextíu daga og hefja samningaviðræður um framtíð kjarnorkuáætlunar Írans. Donald Trump Bandaríkjaforseti á enn eftir að samþykkja samkomulagið en hann er sagður deila samningsdrögum með bandamönnum sínum. Erlent 28.5.2026 23:02
Hvalbátarnir komnir úr klössun fyrir vertíðina Hvalveiðibátnum Hval 8 var núna undir kvöld rennt úr slippnum í Reykjavíkurhöfn eftir klössun en áður var búið að yfirfara Hval 9. Þetta þykja ótvíræð merki um að Hvalur hf. stefni á stórhvalaveiðar í sumar. Innlent 28.5.2026 22:40
Safna fyrir fjölskyldu Steinunnar sem lést við barnsburð Hin þrítuga Steinunn Lóa Hafþórsdóttir lést við fæðingu sonar síns á fæðingardeild Landspítalans hinn 19. maí. Vinkonur hennar greina frá andlátinu í færslu á Facebook og hafa hrundið af stað söfnun fyrir fjölskylduna. Innlent 28.5.2026 22:35
Hleyptu málinu í gegn eftir að hafa fengið „leynigögnin“ Það að fá „leynigögn“ afhent var lykilþáttur í því að Miðflokkurinn hleypti þingsályktunartillögu um ESB-þjóðaratkvæðagreiðslu í gegn um þingið í dag, að sögn þingmanns flokksins. Innlent 28.5.2026 22:06
Tímasetning Canvas-árásarinnar engin tilviljun Sviðsstjóri kennslusviðs Háskóla Íslands segir háskólann mjög meðvitaðan um að tryggja þurfi gögn nemenda. Búið sé að yfirfara kerfi og tengingar í kjölfar alþjóðlegrar netárásar netþrjóta á Canvas í upphafi maímánaðar. Innlent 28.5.2026 21:02
„Búinn að vera í löngu atvinnuviðtali hér í bæ“ Oddvitar nýs bæjarstjórnarmeirihluta í Mosfellsbæ boða hóflegar álögur á íbúa og skilvirka þjónustu og lofa að gera gott fyrir Mosfellinga. Þeir segja viðræður hafa gengið vel. Innlent 28.5.2026 20:12
„Þýðir ekki að það sé algjört töfralyf við öllum sjúkdómum“ Formaður Lyfjafræðingafélags Íslands segir engar rannsóknir sýna fram á það að ormalyfið Ivermectin gagnist við krabbameinsmeðferð hjá fólki. Lyfið sé ekki bannað á Íslandi, og öllu síður vegna þess að „Big pharma“ vilji græða á fólki. Innlent 28.5.2026 19:37
Þjóðaratkvæðagreiðsla í sumar og hvalveiðibátur á sjó Alþingi samþykkti undir lok dags þingsályktunartillögu um að ganga til þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu. Innlent 28.5.2026 18:27
Handsala samstarfið og gera Hilmar að bæjarstjóra Hilmar Gunnarsson úr Sjálfstæðisflokknum verður bæjarstjóri Mosfellsbæjar í meirihlutasamstarfi sem flokkurinn handsalaði í kvöld við Viðreisn. Innlent 28.5.2026 18:22
Íslendingar segja já eða nei 29. ágúst Íslendingar ganga að kjörborðinu þann 29. ágúst næstkomandi þar sem spurt verður hvort hefja eigi á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið. Innlent 28.5.2026 17:36
Réðst á dóttur sína eftir að hún rak honum löðrung Karlmaður hlaut í gær skilorðsbundinn fangelsisdóm í Héraðsdómi Norðurlands eystra fyrir að ráðast á dóttur sína á heimili þeirra í febrúar 2024. Innlent 28.5.2026 16:48
Hjalti Þór verður bæjarstjóri í Hornafirði Hjalti Þór Vignisson oddviti Framsóknar í Hornafirði verður bæjarstjóri í Sveitarfélaginu Hornafirði. Fulltrúar Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks hafa undirritað málefnasamning um samstarf á komandi kjörtímabili 2026–2030. Innlent 28.5.2026 16:38
Enginn meirihluti í Grindavík Enginn meirihluti verður myndaður í bæjarstjórn Grindavíkur. Allir bæjarfulltrúar vilja vinna saman að áframhaldandi uppbyggingu samfélagsins í bænum. Innlent 28.5.2026 15:59
Ingimar verður bæjarstjóri í Hveragerði Nýr meirihluti hefur verið myndaður í Hveragerði þar sem D-listinn og S-listinn hafa náð samkomulagi um meirihlutasamstarf á komandi kjörtímabili. Ingimar Guðmundsson, oddviti og bæjarstjóraefni D-listans, verður næsti bæjarstjóri Hveragerðisbæjar. Þá mun Birgitta Ragnarsdóttir, oddviti S-listans, verða formaður bæjarráðs og María Rún Þorsteinsdóttir, 2. sæti D-listans, verða forseti bæjarstjórnar. Innlent 28.5.2026 15:48
Segir sig hafa mátt þola þöggun og ógnarstjórnun í Eyjum „Ég er atvinnulaus núna. Ég var að vinna hjá Eflu en missti starfið þar,“ segir Linda Rós Sigurðardóttir tækniteiknari í Vestmannaeyjum. Innlent 28.5.2026 14:45
Stefán Carlsson er látinn Stefán Carlsson bæklunarskurðlæknir er látinn, 77 ára að aldri. Hann lést síðastliðinn laugardag. Innlent 28.5.2026 14:24
Bein útsending: Tekist á um þjóðaratkvæðagreiðsluna Þingmenn takast á um boðaða þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður Íslands við Evrópusambandið á aukaþingfundi í dag. Fylgjast má með fundinum í beinni á Vísi. Innlent 28.5.2026 13:30
Gert ráð fyrir atkvæðagreiðslu um aðildarviðræður í dag Samkvæmt upplýsingum fréttastofu hefur samkomulag náðst um að þingheimur greiði síðar í dag atkvæði um fyrirhugaða þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður að ESB. Málið er nú til umræðu á aukaþingfundi. Innlent 28.5.2026 12:02
Gular viðvaranir og snjókoma næsta sólarhringinn Sumarhret gengur yfir norðaustanvert landið í dag með snjókomu og strekkingsvindi. Líf- og fuglafræðingur við Mývatn segir um áhyggjuefni að ræða fyrir fuglalíf og sauðfé á svæðinu. Innlent 28.5.2026 11:55
Enn tekist á um ESB í þingsal og verðbólgan hjaðnar lítið Í hádegisfréttum fjöllum við um afgreiðslu þingsályktunar um hvort fara skuli í þjóðaratkvæðagreiðslu um áframhald viðræðna við ESB. Innlent 28.5.2026 11:39
Gylfi verður bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar Framsókn og óháðir hafa myndað meirihluta í bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar með Viðreisn. Framsókn og óháðir unnu stórsigur í kosningunum og fengu fjóra menn kjörna og Viðreisn einn. Innlent 28.5.2026 11:28
„Stattu vörð um fjallkonuna fríðu, láttu ekki nauðga henni“ Guðni Ágústsson, fyrrverandi landbúnaðarráðherra, ritar hálfgerða heimsósómagrein í Morgunblaðið. Greinin birtist í morgun en þar getur hann vart tekið nógu djúpt í árinni; hann talar eindregið fyrir því að fólk segi „nei“ í komandi þjóðaratkvæðagreiðslu – sem verður á höfuðdeginum sjálfum. Innlent 28.5.2026 11:03
Ungum ökuþórum bannað að keyra á nóttunni og þurfa að merkja sig Sautján ára ökumenn þurfa að merkja bíla sína og þeim verður bannað að aka á nóttunni samkvæmt nýjum reglum sem taka gildi í Finnlandi um helgina. Markmiðið er sagt að fækka umferðarslysum ungra ökumanna. Erlent 28.5.2026 10:43
Sendiráðsstarfsmaður fluttur heim öryggisins vegna Utanríkisráðuneytið ákvað í vikunni að flytja einn starfsmann sendiskrifstofu Íslands í Freetown í Síerra Leóne heim vegna öryggissjónarmiða. Innlent 28.5.2026 10:29
Fækkar lögregluembættum Lögregluembættum verður fækkað en þess í stað verða mynduð stærri og öflugri embætti um allt land. Þetta er meðal þess sem Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra kynnti í vikunni. Ráðherra segir breytingarnar fela í sér styrkingu lögreglu á landsvísu, eflingu löggæslu og bætta skilvirkni. Innlent 28.5.2026 10:17
Húsleit gerð hjá spænskum sósíalistum Spænska lögreglan gerði húsleit í höfuðsstöðvum Sósíalistaflokksins, flokks Pedro Sánchez forsætisráðherra, í gær. Leitin er sögð tengjast rannsókn á meintu fjármálamisferli fyrrverandi flokksmanna. Erlent 28.5.2026 09:34
Saksóknarar rannsaka konu sem Trump braut á Kona sem Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, var árið 2023 dæmdur fyrir að brjóta á kynferðislega er nú til rannsóknar hjá dómsmálaráðuneyti Bandaríkjanna. E Jean Carroll höfðaði mál gegn Trump og sakaði hann um nauðgun og ærumeiðingar en það mál endaði á því að honum var gert að greiða henni fimm milljónir dala. Honum var í öðru máli gert að greiða henni 83 milljónir dala. Erlent 28.5.2026 09:25
Hart sótt að Sánchez: Réttarhöld yfir litla bróður hefjast í dag Hart er sótt að Pedro Sánchez, forsætisráðherra Spánar, þessa dagana en auk þess að vera þyrnir í síðu Donald Trump Bandaríkjaforseta og hafa sætt hótunum frá stjórnvöldum vestanhafs, stendur hann nú frammi fyrir fjölda dómsmála á hendur eiginkonu hans, bróður og öðrum bandamönnum. Erlent 28.5.2026 08:33