Fréttir

Vara við hvössum vindum í nótt

Ökumenn eru varaðir við hvössum vindum á Kjalarnesi, við Hafnarfjall, á norðanverðu Snæfellsnesi og við Eyjafjöll í nótt. Von er á 35 m/s vindhviðum fram til hádegis á morgun. 

Veður

Tíma­bært sé að skoða vaxtarmörk borgarinnar

Nýr meirihluti vill gera úrbætur á aðgengi og upplýsingagjöf um bílastæðahúsin í borginni. Þau séu vannýtt. Umhverfis- og skipulagsráð samþykkti nýlega að minnka gjaldskyldu í miðbæ um klukkutíma. Þá segir formaður umhverfis- og skipulagsráðs tímabært að ræða vaxtarmörk borgarinnar og aukna uppbyggingu í austurhluta borgarinnar. 

Innlent

Lýsti yfir sam­komu­lagi sem lá ekki fyrir

Bæði Rússar og Úkraínumenn gerðu í nótt árásir á innviði hvor annars. Er það eftir að Donald Trump staðhæfði að ráðamenn í báðum ríkjum hefðu samþykkt að hætta árásum á orkuinnviði. Ekkert samkomulag virðist hafa verið í höfn þegar Bandaríkjaforseti lýsti þessu yfir.

Erlent

Í for­gangi sé að ræða við starfs­fólk SÁÁ og tryggja vinnu­frið

Aðalstjórn SÁÁ segir í forgangi að funda með starfsfólki og tryggja „vinnufrið, öryggi og traust“ innan samtakanna. Aðalstjórn lýsir í ályktun yfir stuðningi við framkvæmdastjórn SÁÁ í þeirri vinnu framkvæmdastjórnar sem miðar að því að tryggja að heilbrigðisþjónusta samtakanna haldi áfram. Stjórn ætlar ekki að ræða við fjölmiðla um málið samkvæmt tilkynningu.

Innlent

Út­lendingum fækkað það sem af er ári

Erlendum ríkisborgurum sem eru skráðir með búsetu á Íslandi hefur fækkað um 519 eða 0,6 prósent frá því í desember. Á sama tíma fjölgaði íslenskum ríkisborgurum um 2.405 eða um 0,7 prósent.

Innlent

Hafna við­ræðum til hægri

Á morgun verður lokaniðurstaða þingkosningana í Svíþjóð ljós en óformlegar þreifingar formanna flokka eru þó þegar hafnar. Miðflokkurinn hafnaði í gær viðræðum við flokk núverandi forsætisráðherra og sagði hann hafa tapað kosningunum.

Erlent

Úr­skurður Hæsta­réttar bak­slag fyrir Trump

Nýr úrskurður Hæstaréttar Bandaríkjanna um póstatkvæði í þingkosningunum í nóvember er vonbrigði fyrir Donald Trump forseta. Trump undirritaði forsetatilskipun í mars þar sem innleiða átti nýjar kröfur með það að markmiði að takmarka slík atkvæði.

Erlent

Fimm mínútna við­bót við að­gerð geti dregið úr á­hættu á krabba­meini

Yfirlæknir kvenlækningateymis á kvennadeild Landspítalans segir hægt draga verulega úr áhættu á eggjastokkakrabbameini hjá konum með því að fjarlægja eggjaleiðara. Hún segir aðgerðina oft framkvæmda á sama tíma og legnám en hún vilji tala fyrir því að aðgerðin sé framkvæmd líka þegar aðrar kviðarholsaðgerðir eru gerðar á konum.

Innlent

Mun Tækni­skólinn rísa í Úlfarsárdal?

Borgarstjóri vill finna Tækniskólanum lóð í Reykjavík eftir að samkomulag skólans og Hafnarfjarðarbæjar fór út um þúfur. Skólinn gæti risið í Úlfarsárdal og segir borgarstjóri að það yrði lyftistöng fyrir efri byggðir Reykjavíkur að fá skólann þangað.

Innlent

Snúist um dóm­greind frekar en gervi­greind

Snæbjörn Ragnarsson, tónlistarmaður og sköpunarstjóri á auglýsingastofunni Pipar TBWA, segir gervigreind vera gagnlegt tól í hönnunarvinnu en hún eigi ekki að koma að lokaafurð hönnunarinnar. Umræðan sé strembin en enn eigi almenningur eftir að átta sig á því hvað gervigreind raunverulega sé.

Innlent

Rúss­neskur auðjöfur borgaði fyrir draumabrúðkaup Trumps

Draumabrúðkaup Donalds Trump yngri og Bettinu Anderson, nú Trump, á tveimur einkaeyjum í Bahamaeyjum í vor var að stórum hluta fjármagnað af rússneskum auðjöfri, sem hefur tengingar til Kremlar og Vladimírs Pútín. Umar Kremlev var einn nokkurra rússneskumælandi manna sem sóttu brúðkaupið, sem var að öðru leyti eingöngu fyrir nánustu vini og ættingja.

Erlent

Eldur í Elliða­ár­dal

Eldur kviknaði í Toppstöðinni í Elliðaárdal í Reykjavík á sjöunda tímanum í kvöld. Allt tiltækt slökkvilið á höfuðborgarsvæðinu var kallað út vegna eldsins.

Innlent

Unnið að upp­færslu um­ferðar­ljósa

Á næstu dögum verður unnið að uppfærslu á umferðarljósastýringu á gatnamótum Miklubrautar og Klambratúns annars vegar og Miklubraut og Stakkahlíðar hins vegar. Slökkt verður á ljósunum hluta miðvikudagsins og fimmtudagsins næstkomandi. 

Innlent

Trump segir að á­rásum á orkuinnviði verði hætt

Donald Trump segir að ráðamenn í bæði Kænugarði og í Moskvu hafi samþykkt að ráðast ekki á orkuinnviði hvors annars. Þá heldur hann því fram að hærra olíuverð sé vegna Úkraínustríðsins en ekki vegna stríðs Bandaríkjanna gegn Íran. Rússar hafa ekki staðfest að samkomulag hafi náðst en Úkraínumenn hafa boðið Rússum slíkt um nokkuð skeið.

Erlent

Grafalvarlegt að banna heila at­vinnu­grein

Formaður Verkalýðsfélags Akraness gagnrýnir harðlega áform atvinnuvegaráðherra um að banna hvalvalveiðar. Hann segir grafalvarlegt að banna heila atvinnugrein sem hafi skapað bæði störf og útflutningstekjur.

Innlent

Vill stórminnka Rúv og hafnar tengingu Gísla við fjarhægri

Tillögur Sjálfstæðisflokksins um að taka Rúv af auglýsingamarkaði og takmarka starfsemina við rekstur Rásar 1 og menningarlegt hlutverk byggjast á borgaralegum hægrisjónarmiðum, segir Jens Garðar Helgason, varaformaður flokksins. Flokkurinn vilji afnema útvarpsgjaldið og veita Rúv einn milljarð króna á ári af fjárlögum.

Innlent

Greip um eistu lög­reglu­manns

Kona á sextugsaldri hefur verið dæmd til tveggja mánaða skilorðsbundinnar fangelsisvistar fyrir brot gegn valdstjórninni og kynferðislega áreitni. Konan greip um kynfæri lögreglumanns þegar hann var að færa hana í fangaklefa.

Innlent

„Tak­mörkuð sólmyrkvaáhrif“

Fjöldi ferðamanna hér á landi í sumar dróst lítilega saman milli ára og sólmyrkvinn dró ekki eins marga til landsins og menn vonuðu að sögn ferðamálastjóra. Ferðaþjónustan sé þó nokkuð sátt við sumarið miðað við óvissu í heimsmálunum.

Innlent

Vilja verða jafningjar Eng­lendinga

Tími Westminster er að líða undir lok. Þetta segja leiðtogar Skotlands, Wales og Norður-Írlands sem hafa skrifað undir sameiginlega yfirlýsingu um að yfirvöld í Bretlandi hefji undirbúning fyrir sundurliðun Stóra-Bretlands. Allir vilja þeir sjálfstæði frá Lundúnum og fá að ákvarða eigin framtíð.

Erlent