Erlent

Þriggja daga þjóðar­sorg hafin á Spáni

Telma Tómasson skrifar
Mikill viðbúnaður var við slysið og er enn.
Mikill viðbúnaður var við slysið og er enn. Vísir/EPA

Þriggja daga þjóðarsorg hefur verið lýst yfir á Spáni í kjölfar þess að minnst 68 létu lífið og tugir slösuðust í alvarlegu lestarslysi í gær. Viðbragðsaðilar unnu á vettvangi slyssins í alla nótt í leit að fleiri fórnarlömbum, en svæðið var lýst upp með sterkum flóðljósum til að auðvelda vinnuna.

Að sögn spænska innanríkisráðuneytisins hefur hundruðum manna verið stefnt á vettvang til að aðstoða við björgunar- og hreinsunarstarf. Notaðir eru drónar og þyrlur til að finna hugsanleg fórnarlömb og fjarlægja brak, eftir því sem fram kemur á vef breska ríkismiðilsins BBC. 

Svæðið var lýst upp svo viðbragðsaðilar gætu haldið áfram að vinna um kvöldið. Vísir/EPA

Yfirvöld rannsaka nú tildrög slyssins, sem varð í gærmorgun þegar lest á leið frá Madríd til Sevilla skall á annarri lest sem var kyrrstæð. Rúmlega 500 manns voru um borð í lestunum tveimur, 147 í þeirri kyrrstæðu sem hafði stöðvast á teinunum vegna tölvubilunar, að sögn Óscars Puente, samgönguráðherra Spánar. 

Samgönguráðherra Spánar hefur greint frá því að tvennt hafi leitt til slyssins, fyrst kerfisvilla og því næst ákvörðun um að önnur lestin mætti keyra áfram þrátt fyrir að vera á rauðu.

Forsætisráðherra Spánar Pedro Sanchez með forseta Castilla-La Mancha Emiliano Garcia-Page ræddu við fjölmiðla í gær. Vísir/EPA

Pedro Sánchez, forsætisráðherra Spánar, sagði þjóðina alla syrgja hina látnu og kvað sársauka aðstandenda mikinn.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×