Tónlist

Fréttamynd

Segist skilin út undan vegna MAGA-tengingar sinnar

Jessica Sutta, einn af upprunalegum meðlimum Pussycat Dolls, telur sig hafa verið skilda út undan í nýjustu endurkomu sveitarinnar vegna skoðana hennar á bóluefnum og stuðnings við Robert F. Kennedy yngri, heilbrigðisráðherra Bandaríkjanna.

Tónlist

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Óvæntustu deilur ársins: „Ég hata ekki börn“

Poppstjörnuna Chappell Roan óraði sennilega ekki fyrir því þegar hún fékk sér morgunmat á hóteli í Sao Paulo í gærmorgun að hún myndi reita bæði fótboltamanninn Jorginho og borgarstjóra Rio de Janeiro til reiði. Stjúpdóttir Jorginho hafði gengið framhjá borði Roan og fengið skammir í hattinn frá öryggisverði í kjölfarið. Roan segir öryggisvörðinn hafa verið á vegum hótelsins og hún hati ekki börn.

Tónlist
Fréttamynd

„Takk fyrir mig Ís­land, mitt drauma­land“

Stórstjarnan Laufey Lín Jónsdóttir fyllti Kórinn tvívegis með stórkostlegum tónleikum um helgina á síðasta stoppinu á tónleikaferðalagi sínu um Evrópu. Hún segir það sannan heiður að fá að spila á Íslandi, draumalandi sínu og vildi óska þess að hún gæti sagt yngri Laufeyju frá helginni.

Tónlist
Fréttamynd

Boy George keppir fyrir San Marínó

Tónlistarmaðurinn Boy George, best þekktur sem söngvari Culture Club, mun koma fram með ítölsku söngkonunni Senhit fyrir hönd San Marínó í Eurovision í maí og syngja þar lagið „Superstar“.

Tónlist
Fréttamynd

Hollt að sinna hús­verkum og fá engin hrós

„Ég upplifi stundum að ég sé að reyna að halda á tímanum en hann lekur bara úr höndunum á mér,“ segir tónlistarmaðurinn Gauti Þeyr, betur þekktur sem Emmsjé Gauti. Síðastliðin tíu ár hefur hann verið gríðarlega vinsæll hérlendis og troðið upp á hinum ýmsu skemmtunum. Hann stendur á tímamótum og ræddi við blaðamann um þau, lífið og listina.

Tónlist
Fréttamynd

Opna Laufeyjarverslun fyrir tón­leikana

Á þriðjudaginn mun Sena opna sérstaka Laufeyjarverslun í Smáralindinni í tilefni af stórtónleikum Laufeyjar í Kórnum 14. og 15. mars. Þar verður boðið upp á lifandi tónlist, gjafaleiki og Laufeyjarvarning vikuna fyrir tónleikana.

Tónlist
Fréttamynd

„Þú ert stærsta súperstjarnan á plánetunni jörð“

Hollywood-leikarinn Jeff Goldblum var óvæntur gestur á tónleikum Laufeyjar Línar í Manchester í gærkvöldi. Laufey söng djazzklassíkina „Misty“ meðan Goldblum spilaði undir og að því loknu lýsti Goldblum henni sem stærstu súperstjörnu jarðarinnar.

Tónlist
Fréttamynd

Þekktasta söngleikjalag allra tíma í nýjum búning

Nýtt tónlistarmyndband við „Bak við regnbogabrúna“ í flutningi Þóreyjar Birgisdóttur í hlutverki Dóróteu er frumsýnt núna á Vísi. Lagið er íslensk útgáfa af „Somewhere Over the Rainbow“, einu þekktasta söngleikjalagi allra tíma, og var útsett fyrir uppsetningu Borgarleikhússins á Galdrakarlinum í Oz.

Tónlist
Fréttamynd

Ástin það besta í heiminum

„Eins mikil klisja og það er þá fjallar lagið um ástina og allar þær sterku tilfinningar sem fylgja með,“ segir tónlistarmaðurinn Haukur Páll sem var að gefa út tónlistarmyndband við lagið sitt Ástin sem hann frumsýnir hér í pistlinum.

Tónlist
Fréttamynd

Lagið minnti á sig í sambandsslitunum

„Lífið er of stutt til að sleppa því óþægilega,“ segir tónlistarkonan og Eurovision-farinn Diljá Pétursdóttir sem er mætt með endurkomu inn í tónlistarsenuna. Hún ræddi við blaðamann um árin eftir Eurovision, tónlistina, sköpunargleðina, ástina og lífið og frumsýnir hér tónlistarmyndband.

Tónlist
Fréttamynd

Sturluð vika hjá Krist­mundi Axel

„Okei, fallega fólk. Förum aðeins yfir þetta, stóra vikan! „Kominn heim“ er mest streymda íslenska lagið í dag,“ skrifar tónlistarmaðurinn Kristmundur Axel á Instagram sitt en ellefu dagar eru liðnir frá því hann og Bubbi Morthens sendu frá sér lagið „Kominn heim“.

Tónlist
Fréttamynd

Úr barnaskemmtunum á klúbbinn

Tónlistarkonan Anna Bíbi ákvað að gera „klúbbaremix“ af Latabæjarslagaranum „Bing Bang“ og fékk með sér Unni Eggertsdóttur, sem lék Sollu stirðu um árabil. Unnur söng lagið mörg hundruð sinnum á barnaskemmtunum á sínum tíma og segir að nú sé komið að klúbbnum.

Tónlist
Fréttamynd

Í fyrsta sinn á föstu á Valentínusar­daginn 52 ára

„Ég rankaði við mér fyrsta árið okkar saman og áttaði mig á því að ég hafði aldrei áður verið á föstu á Valentínusardaginn,“ segir popp-prinsinn Páll Óskar sem ætlar að eiga rómantískan dag á laugardag með hans heittelskaða Antonio en fyrst kemur hann fram á tónleikunum Allskonar ást í Laugarneskirkju.

Tónlist
Fréttamynd

Sjóðandi hiti hjá stjörnum rappsins

Rappsenan tók yfir Gamla Bíó á dögunum þegar rapparinn Izleifur blés til alls herjar tónlistarveislu í tilefni af plötuútgáfu. Frítt var inn og ásamt Izleifi kom þotulið tónlistarfólks fram.

Tónlist
Fréttamynd

„Ég er að heiðra litla Aron“

„Ég var klárlega búinn að fá einhver merki um að ég þyrfti aðeins að hægja á mér. Þessi pása lét mig einfaldlega elska þetta meira og ég saknaði tónlistarinnar,“ segir tónlistarmaðurinn og stjarnan Aron Can. 

Tónlist
Fréttamynd

„Hún er komin til að vera“

Doktor í tónlistafræðum og gangrýnandi telur alveg ljóst að Laufey Lín sé ekki „einhver einsmellungur“ eftir að íslenska söngkonan hlaut í gær sín önnur Grammy-verðlaun. Það hafi verið frábært af hennar hálfu að lofa listnám sitt í þakkarræðunni.

Tónlist
Fréttamynd

Byrjaði allt í blokkinni í Breið­holti

Steindór Gestur Guðmundarson, einnig þekktur sem Sdóri, og Helgi Albert Reinharðsson eða Helgi A hafa skapað tónlist saman í rúman áratug en þeir hófu tónlistarferil sinn í rappgrúbbunni Landaboi$. Þeir bjuggu í sömu blokk sem unglingar og hafa allar götur síðan verið óaðskiljanlegir en þetta tvíeyki var að senda frá sér lag og brakandi ferskt tónlistarmyndband.

Tónlist
Fréttamynd

Stjórinn mót­mælir ICE með lagi um Minneapolis

Tónlistarmaðurinn Bruce Springsteen, betur þekktur sem Stjórinn, hefur gefið út lagið „Streets of Minneapolis“ þar sem hann heiðrar minningu Alex Pretti og Renee Good sem létust í aðgerðum ICE í Minneapolis og mótmælir stjórn Donalds Trump. 

Tónlist