Leikjavísir

Fréttamynd

Fær nafn átta árum eftir opin­berun

Næsti leikurinn í hinni gífurlega vinsælu leikjaseríu Elder Scrolls hefur loksins fengið nafn. Tilvist leiksins var fyrst opinberuð með stuttri stiklu í júní 2018 en síðan þá hafa litlar sem engar upplýsingar um þennan sjötta leik seríunnar litið dagsins ljós. Þar til í dag.

Leikjavísir

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Notch setur glæsihúsið á sölu

Markus Persson, höfundur Minecraft, hefur sett stórhýsi sitt í Beverly Hills í Kaliforníu á sölu. Húsnæðið er verðsett á sjötíu milljónir bandaríkjadala, eða 8,5 milljarða króna.

Leikjavísir
Fréttamynd

Konungur retróleikja slekkur á straumum: „Ég vissi ekki að maður gæti fengið borgað fyrir þetta“

Leikjarinn, sem hefur verið kallaður konungur retróleikja, byrjaði árið 2011 að spila tölvuleiki í beinni útsendingu oft á viku en sunnudaginn 14. júní boðaði hann sinn seinasta straum. Á þessum ríflega fimmtán árum varð til hópur fólks sem hann þekkti ekki í sjón en talaði við oftar en sumir tala við fjölskylduna sína. Þá voru nokkur skipti þar sem hann hefði geta tekið stökkið, hætt að vinna og haft lífsviðurværi sitt af tölvuleikjastreyminu einu saman.

Leikjavísir
Fréttamynd

Lauf­ey fær eigin God of War leik

Sony og Santa Monica Studios hafa birt stiklu fyrir nýjan God of War leik, sem fjallar um Laufeyju, eiginkonu Kratorsar, stríðsguðsins gríska. Hún þarf að berjast við nýja stríðsguði og alls konar óvætti á þeirra vegum.

Leikjavísir
Fréttamynd

Geralt fær nýtt ævin­týri rúmum ára­tug eftir það síðasta

Forsvarsmenn pólska leikjafyrirtækisins CD Projekt RED hafa opinberað nýjan aukapakka fyrir leikinn Witcher 3: Wild Hunt, sem kom út árið 2015. Aukapakki þessi ber titilinn Songs of the Past og á að koma út á næsta ári, um tólf árum á eftir leiknum vinsæla, sem selst hefur í að minnsta kosti sextíu milljónum eintaka.

Leikjavísir
Fréttamynd

Lauf­ey lifnar við í Fortnite Festival

Spilarar tölvuleiksins Fortnite Festival geta frá og með morgundeginum brugðið sér í gervi tónlistarkonunnar Laufeyjar og sungið lög hennar. Laufey hefur áður birst í Fortnite þegar spilurum var gert kleift að stíga dansspor úr tónlistarmyndbandi hennar við lagið „From the Start“.

Leikjavísir
Fréttamynd

Fáum loks að feta í fót­spor Johns Wick

Sony opinberaði í gær að verið væri að gera hasarleik þar sem spilarar munu fá tækifæri til að upplifa hvernig það er að vera John Wick, hinn frægi launmorðingi. Leikurinn er unninn af starfsmönnum Saber Interactive og í samvinnu við leikstjórann Chad Stahelski, sem gerði kvikmyndirnar um Wick. Þá er virðist sem leikurinn sé talsettur af Keanu Reeves.

Leikjavísir
Fréttamynd

Leikirnir sem beðið er eftir

Jólin eru liðin og grámyglulegur hverdagsleikinn er tekinn aftur við. Við Íslendingar munum væntanlega ekki fá almennilegt veður aftur í allavega fjóra mánuði og ekkert nema fullar vinnuvikur framundan. Við höfum þó enn tölvuleiki, það er eitthvað.

Leikjavísir
Fréttamynd

Fresta GTA 6 aftur og um hálft ár

Útgáfu Grand Theft Auto 6 hefur verið frestað, aftur, og um hálft ár. Nú á leikurinn að koma út þann 19. nóvember á næsta ári en áður var útgáfudagurinn 26. maí. Upprunalega átti leikurinn, sem beðið hefur verið eftir með mikilli eftirvæntingu um árabil, að koma út á þessu ári.

Leikjavísir
Fréttamynd

Gefa út endur­bætta út­gáfu af ís­lenskum leik

Íslenska leikjafyrirtækið Myrkur Games gefur í dag út endurbætta útgáfu af leiknum Echoes of the end, einungis nokkrum mánuðum eftir að leikurinn kom fyrst út. Uppfærslan gerir umtalsverðar breytingar á leiknum sem taka mikið mið af uppástungum frá spilurum.

Leikjavísir
Fréttamynd

Battlefield 6: Gamli góði Battlefield er snúinn aftur

Þó ég hafi átt mjög mismunandi daga í Battlefield 6 er ég ánægður með leikinn og vongóður um að ég muni spila hann mikið. Starfsmenn EA hafa fangað vel það sem fékk mann til að elska þessa leiki í „gamla daga“. Svo hjálpar til að ég hef ekki einu sinni verið drepinn af Nicki Minaj eða einhverjum skoppandi Múmínálfi.

Leikjavísir
Fréttamynd

Borderlands 4: Læti og ó­reiða par excellence

Borderlandsleikirnir hafa um árabil notið góðs orðspors meðal fjölspilunarleikja fyrir að vera skemmtilegir skot og hasarleikir þar sem allt er á yfirsnúningi og fyndnir en misfyndnir þó. Fjórði leikurinn er þar engin undantekning 

Leikjavísir