Lífið

Bob Mackie er látinn

Fata-og búningahönnuðurinn Bob Mackie lést í gærkvöldi, 87 ára að aldri. Hann á að baki sér glæstan feril sem spannar um fimmtíu ár og hannaði flíkur sem eru skrifaðar í tískusöguna um ókomna tíð.

Lífið

Frið­rik Þór og Jóna Vig­dís ást­fangin

Leikstjórinn Friðrik Þór Friðriksson og Jóna Vigdís Kristinsdóttir, verkefnastjóri á skrifstofu bæjarstjóra í Kópavogsbæ, eru nýtt par. Parið ferðaðist saman um Frakkland í sumar og hafa látið vel hvort að öðru á samfélagsmiðlum.

Lífið

Macklemore tjáir sig: „Fólk er drepið í dag og fólk verður drepið á morgun“

Macklemore segir Ed Sheeran hafa verið beittan þrýstingi af Roberti Kraft og öðrum bandarískum leikvangaeigendum sem varð til þess að Sheeran sparkaði rapparanum af tónleikaferðalagi sínu. Pólitísku hlutleysi Sheerans hefði loksins verið ögrað og hann ekki þorað að velja sér hlið. Þegar kæmi að Palestínu væri hlutleysi afstaða og Sheeran væri þar með að taka afstöðu gegn hinum undirokuðu.

Lífið

Æstir í nektar­myndir Mörthu Stewart

Athafnakonan og kokkurinn Martha Stewart var nálægt því að brjóta Internetið í gær með sjálfsmynd á Instagram. Þar setti Martha upp stút og skrifaði undir myndina: „Ég hef verið að velta því fyrir mér að birta nektarmyndirnar mínar.“ 

Lífið

Vakna við Star Wars-lagið alla morgna

„Ég elska lífið hérna og er ekkert að flýta mér heim,“ segir hin 24 ára gamla Thelma Tómasdóttir sem fluttist til Osló með kærastanum sínum Sverri Hauki Gíslasyni. Thelmu dreymdi um að fara í meistaranám erlendis og komst inn í skólann sem henni leist best á. Hún segir flutningana hafa verið auðveldara og nýtur þeirra áskorana sem lífið býður upp á úti.

Lífið

Hvað veistu um… Titanic?

Titanic var breskt farþegaskip sem talið var eitt það stærsta og glæsilegasta á sínum tíma. Skipið lagði af stað í sína jómfrúarsiglingu árið 1912 og eins og endaði á því að sökkva á Norður-Atlantshafi.

Lífið

Húðdrottning bauð í gellugusu

Húðdrottningin Helga Sigrún Hermannsdóttir, eigandi húðvörumerkisins Dóttir Skin, bauð vel völdum gellum í gusu á laugardaginn til að fagna nýrri vöru. Þar komu saman áhrifavaldar, athafnakonur, fyrirsætur og fleiri skvísur og svitnuðu vel saman í sólinni. 

Lífið

Ed Sheeran sparkar Macklemore

Bandaríski rapparinn Macklemore fær ekki að hita upp fyrir fleiri tónleika hjá breska söngvaranum Ed Sheeran eftir ummæli um frjálsa Palestínu á tónleikum fyrr í þessum mánuði. Ummælin fóru fyrir brjóstið á eigendum leikvanga sem vildu ekki leyfa rapparanum að stíga á svið.

Lífið

Hið al­ræmda „Epstein drap sig ekki“-samsæri

Fá mál hafa sameinað Bandaríkjamenn betur þvert á pólitískar skoðanir en sú afstaða að ekki séu öll kurl komin til grafar varðandi líf og dauða Jeffrey Epstein. Skömmu eftir að hann fannst látinn í fangaklefa í New York árið 2019 fæddist setningin „Epstein drap sig ekki“. Hún ferðaðist hratt frá netheimum inn í bandarísk stjórnmál og sprakk loks af fullum þunga í Hvíta húsinu.

Lífið

Ein pilla dró Panettiere til dauða

Hayden Panettiere leikkona er sögð hafa tekið eina töflu af oxycodone-pillu sem búið var að menga með fentanýl áður en hún lést. Lögregla vinnur nú að því að hafa uppi á manninum sem grunaður er um að hafa selt henni pilluna.  

Lífið

Heldur sig til hlés og lifir skír­lífi

Raunveruleikastjarnan og mormóna-mamman Taylor Frankie Paul hefur verið mikið á milli tannanna hjá fólki undanfarin ár. Eftir ásakanir um heimilsofbeldi og framhjáhald samhliða mikilli athygli á skjánum segist hún nú reyna að halda sig til hlés og að hún sé einhleyp og lifi skírlífi.

Lífið

Stjörnulífið: Í fyrsta skipti í bikiníi í út­löndum

Haustið fer vel af stað hjá stjörnum landsins og liðin vika einkenndist af tímamótum og gellustælum. Poppstjarnan Bríet er á leið til Danmerkur, áhrifavaldurinn Fanney Dóra hannaði sitt eigið bikiní og tók stórt skref erlendis, Binni Glee segist aldrei hafa litið betur út og bakarinn Linda Ben fór í sjóðheita skvísuferð. 

Lífið

„Ég byrjaði að lesa kaflann og fór bara að gráta“

Ný skáldsaga Þorgríms Þráinssonar, Ég kom til að gráta, á rætur í banaslysi sem hann heyrði um sem ellefu ára drengur í Ólafsvík. Slysið sat í honum frá barnsaldri en 37 ár liðu frá því að hann fór fyrst að punkta hjá sér hugmyndir að sögunni þar til hún varð að bók.

Lífið

Skúli Jón og Jennifer gengin í hnapp­helduna

Skúli Jón Friðgeirsson fyrrverandi knattspyrnumaður og Jennifer Berg fyrirsæta giftu sig í gær í Stokkhólmi í Svíþjóð. Þau hafa verið saman í um þrettán ár en þau kynntust þegar Skúli var á mála hjá sænska knattspyrnuliðinu Elfsborg árin 2012 til 2014.

Lífið

Tekur á­rásum á samfélagsmiðlum fagnandi

Gísli Marteinn Baldursson sjónvarpsmaður og vert þarfnast engrar kynningar. Hann er „stórasta“ sjónvarpsstjarna landsins og nú að fara af stað með Vikuna, sem hefur verið flaggskip Ríkissjónvarpsins um árabil. Engan bilbug er að finna á Gísla Marteini, hvorki hvað varðar Vikuna né Café Vest.

Lífið

Lady Gaga orðin mamma

Bandaríska stórstjarnan og söngkonan Lady Gaga er orðin móðir. Barnið eignaðist hún með unnusta sínum, frumkvöðlinum Michael Polansky.

Lífið

Presturinn sem hataði kristin­fræði

Dagur Fannar Magnússon, prestur í Fríkirkjunni í Reykjavík, hefur áhyggjur af því að ungir karlar leiti í auknum mæli í kristna trú samhliða mjög íhaldssömum og útilokandi hugmyndum. Hann segist hafa hitt unga menn sem séu mjög trúaðir en jafnframt fullir af fordómum og telur mikilvægt að prestar bregðist við þeirri þróun með því að leggja áherslu á kærleiksboðskap kristninnar. Dagur hefur sjálfur farið óhefðbundnar leiðir í sinni trúarlegu leit. Samhliða kristinni trú hefur hann kynnt sér hugleiðslu og sjamanisma.

Lífið

Sökuð um að siga fylgj­endum á móður fyrr­verandi

Rapparanum Sexyy Red hefur verið stefnt af móður barnsföður síns eftir að hún sigaði fylgjendum sínum á konuna, bað þá um að sparka niður hurð hennar og hvatti þá til ofbeldis. Sexyy Red, sem heitir réttu nafni Janae Nierah Wherry, mætti ekki í þingfestingu málsins og hefur stefnandi því krafist útivistardóms í málinu og fimm milljónum dala í miskabætur.

Lífið

TikTok-stjörnur fjölga mann­kyninu

Áhrifavaldaparið Ólafur Jóhann Steinsson og Sigurlaug Birna Garðarsdóttir eiga von á sínu fyrsta barni saman. Parið hefur verið saman í sex ár og verða að þriggja manna fjölskyldu á næsta ári.

Lífið

Pétur og Birgitta nýtt par

Leikkonan Birgitta Birgisdóttir og Pétur Krogh Ólafsson, forstöðu­maður sjálf­bærni og öryggis innviða hjá Veitum, eru nýtt par. Þau sáust saman á frumsýningu leikritsins Breadcrumbs í Tjarnarbíói í síðustu viku en Birgitta fer með annað aðalhlutverkanna í sýningunni.

Lífið

Sig­rún Ósk mætt á RÚV

Sigrún Ósk Kristjánsdóttir, upplýsingafulltrúi Akraneskaupstaðar, snýr aftur í sjónvarpið eftir að hafa tekið sér pásu frá fjölmiðlum og snúið sér að upplýsingagjöf í heimabæ sínum. Hún verður stjórnandi nýs spurningaþáttar í Ríkisútvarpinu.

Lífið

Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga

Saga sem hefur farið eins og eldur í sinu síðustu daga og vikur reyndist vera flökkusaga sem hefur tekið stakkaskiptum í meðferð almennings líkt og um stærðarinnar hvísluleik væri að ræða. Sagan minnir því nánast á þjóðsögu.

Lífið

Hvað veistu um... göngu­leiðir?

Líklegt má telja að fjöldi fólks hafi lagt land undir fót í sumar og notið íslenskrar náttúru á einni af þeim fallegu, merktu gönguleiðum sem er að finna víða um land. Gönguferðir eru enda vinsæl leið til að upplifa landið, fá frí frá amstri dagsins, hvort sem það er í einveru eða góðum félagsskap.

Lífið

„Ég þurfti að segja heiminum að þú værir með krabba­mein“

Mæðgurnar Una Torfadóttir og Svandís Svavarsdóttir rifjuðu upp saman þegar Una greindist með heilaæxli árið 2020, í miðjum kórónuveirufaraldri og Svandís þurfti að greina frá því opinberlega vegna stöðu sinnar sem heilbrigðisráðherra. Atburðarásin hafi verið galin og Una þurft að slíta sig frá krabbameininu þegar hún hóf tónlistarferil sinn.

Lífið