Bush gagnrýnir valið á Edwards 7. júlí 2004 00:01
George Bush Bandaríkjaforseti gagnrýnir John Kerry fyrir að velja John Edwards sem varaforsetaefni demókrata og segir að hann sé óhæfur til að gegna embætti forseta. Fréttaskýrendur telja valið eðlilegt þar sem Edwards vegi upp flesta galla Kerrys. John Kerry og John Edwards komu í fyrsta skipti fram saman opinberlega í dag eftir að Kerry tilkynnti val sitt á varaforsetaefni í gær. Einsog venja er við aðstæður sem þessar fór vel á með þeim og fjölskyldum þeirra. John Edwards sóttist eftir því að verða forsetaefni demókrata en tapaði þeim slag fyrir Kerry. Nú standa þeir saman að því að skipta um stjórn í Hvíta húsinu. Edwards segir kosningabaráttuna sem framundan er snúast um framtíðina og að endurheimta vonina. Hann segir fólk þrá að trúa því aftur að hlutirnir fari batnandi. Fréttaskýrendur telja Edwards eðlilegt mótvægi við Kerry þar sem hann hafi yfir sér yngra og fersklegra yfirbragð en Kerry hefur helst verið gagnrýndur fyrir að vera stífur og þunglamalegur kerfiskarl. Edwards er því líklegur til að ná til ólíkra kjósenda, auk þess sem hann er frá Suðurríkjunum, en Kerry frá Massachussets. Hjá því verður samt ekki litið að Edwards hefur minni stjórnmálareynslu en nokkurt annað varaforsetaefni síðustu 20 árin. Bush forseti segir hann óhæfan til að verða forseti, öfugt við Dick Chaney, núverandi varaforseta. Bush lýsti því jafnframt yfir að hann hyggðist vinna sigur í heimafylki Edwards, Norður-Karolínu.
Erlent Fréttir Stj.mál Mest lesið Ekki lengur hægt að breiða yfir sannleikann Innlent Segir Reiner hafa verið myrtan vegna andúðar í sinn garð Erlent „Ég var kölluð „hryðjuverkamaður““ Innlent Þau eru tilnefnd sem maður ársins Innlent Spjótin beinast að syni Reiners Erlent Talið að Rob Reiner og eiginkona hans hafi verið myrt Erlent Skotinn tvisvar eftir að hafa tæklað annan skotmanninn Erlent Umferðarslys á Breiðholtsbraut Innlent Árásarfeðgarnir nafngreindir Erlent Hafi hnakkrifist í teiti hjá Conan stuttu fyrir morðið Erlent Fleiri fréttir Hafi hnakkrifist í teiti hjá Conan stuttu fyrir morðið Lögðu á ráðin um sprengjuárásir í Kaliforníu Grönduðu kafbát í fyrsta sinn með neðansjávardróna Segir Reiner hafa verið myrtan vegna andúðar í sinn garð Krefjast þess enn að Úkraínumenn hörfi frá Donbas Spjótin beinast að syni Reiners Ætla að herða lög um byssur enn frekar eftir árásina Starfsmenn Louvre mótmæla slæmum aðstæðum Hálfíslensk hljómsveit skilgreind öfgasamtök í Rússlandi Morðinginn í Brown gengur enn laus Heyrði byssuhvellina: Skotvopnalöggjöfin rædd á kaffistofunni Sílebúar tóku Kast Árásarfeðgarnir nafngreindir Úkraínumenn reiðubúnir til að falla frá aðild að Nató Talið að Rob Reiner og eiginkona hans hafi verið myrt Skotmennirnir feðgar Skotinn tvisvar eftir að hafa tæklað annan skotmanninn Einn í haldi í tengslum við skotárás í Brown-háskóla Rabbíni drepinn í árásinni Grunaðir um að skipuleggja hryðjuverk á jólamarkaði Tíu drepnir í skotárás á gyðingahátíð Tveir látnir eftir skotárás í háskóla Tvinn-rafmagnsflugvél sem lækka á fargjöldin Rannsókn á meintri gagnaöflun um Giuffre felld niður Þingmenn bannaðir á krám vegna skattahækkana Föngum sleppt og viðskiptaþvingunum aflétt Vopnahlé Trumps hélt í nokkrar klukkustundir Witkoff fundar með Selenskí ESB frystir rússneskar eignir ótímabundið Trump, Clinton, Gates og fleiri á nýjum Epstein-myndum Sjá meira