Skotmennirnir feðgar Lovísa Arnardóttir skrifar 14. desember 2025 20:07 Tugir eru særðir og 16 látnir. Vísir/AP Lögregla greinir frá því að mennirnir sem skutu tugi á Bondi-strönd í Ástralíu í gær eru feðgar. Faðirinn, 50 ára, er látinn, og sonur hans, 24 ára, í lífshættu á spítala. Faðirinn hét Naveed Akram og sonurinn Sajid. Alls eru sextán látin ef faðirinn er talinn með. Fórnarlömbin eru á aldrinum 10 til 87 ára.
Mennirnir hófu skotárás á gyðingahátíð á Bondi-strönd á útjaðri Sydney-borgar í Ástralíu fyrr í dag. Greint var frá því á blaðamannafundi í dag að tveir væru grunaðir og að þeir væru feðgar. „Annar er látinn, hinn er í lífshættulegu en stöðugu ástandi á sjúkrahúsi,“ er haft eftir Mal Lanyon, aðstoðaryfirlögregluþjóni, í frétt ástralska miðilsins 7 News. Lanyon sagði að í tengslum við rannsóknina hefði lögreglan í Nýja Suður-Wales framkvæmt tvær húsleitir í gærkvöldi, aðra í Bonnie Rigg og hina í Campsie. Hann sagði faðirinn með gilt skotvopnaleyfi. Hann hafi átt sex skotvopn og að lögregla hafi fundið sex skotvopn á vettvangi. Á vettvangi fundust einnig tvö óþekkt tæki sem lögregla hefur síðan sagt örugg. Tólf ára meðal látinna Í Ástralíu er nú morgun og í erlendum miðlum kemur fram að Ryan Park, heilbrigðisráðherra New South Wales, hafi greint frá því að eftir nóttina hafi látnum fjölgað úr 12 í 16. Meðal látinna sé tólf ára gamalt barn. Þá hefur særðum einnig fjölgað úr 29 í 38. Samkvæmt Park eru þrjú börn meðal særðra á spítalanum. Frétt AP. Fjöldi hafði komið sér fyrir á ströndinni. Hér má sjá jólalautarferð sem skilin var eftir í kjölfar skotárásarinnar. Vísir/AP Árásin átti sér stað á einni vinsælustu strönd Ástralíu, Bondi-strönd, við lok dags. Í Ástralíu er nú sumar og var mikill fjöldi á ströndinni bæði til að njóta veðurs en einnig til að fagna ljósahátíð Gyðinga sem hefst í dag. Í myndböndum sem eru í dreifingu á samfélagsmiðlum sjást minnst tveir svartklæddir menn skjóta ítrekað að ströndinni frá bílastæði, en sögur fara af því að hleypt hafi verið af í kringum 50 skotum. Fjallað er um það í erlendum miðlum að lögreglan hafi farið í húsleit heima hjá öðrum skotmanninum, á heimili hans í Sidney. Anthony Albanese forsætisráðherra Ástralíu sagði í gær að árásin væri hryðjuverk og gyðingahatur. Ekki hafa fleiri látið lífið í skotárás í Ástralíu í þrjá áratugi. Albanese sagði blaðamönnum í höfuðborginni Canberra í gær að hann væri harmi sleginn yfir þessum fjöldamorðum. „Þetta er markviss árás á ástralska gyðinga á fyrsta degi ljósahátíðar gyðinga, sem ætti að vera gleðidagur, hátíð trúarinnar. Illverk, gyðingahatur og hryðjuverk sem hafa lent beint í hjarta þjóðar okkar,“ sagði Albanese. Mikill viðbúnaður er víða í Sidney og nærri Bondi-ströndinni. Í Ástralíu er nú mánudagsmorgun og er myndin tekin snemma morguns þar. Vísir/AP Hann hét því að ofbeldinu yrði mætt með samstöðu. Fleiri leiðtogar hafa tjáð sig um árásina. Karl Bretakonungur sagði að hann og Kamilla drottning væru „skelfingu lostin og harmi slegin yfir þessari hræðilegu hryðjuverkaárás, sem byggði á gyðingahatri“. Aðalritari Sameinuðu þjóðanna, António Guterres, sagði á X að hann hefði fyllst hryllingi og að hann stæði með gyðingasamfélaginu um allan heim. Meiri viðbúnaður lögreglu Utanríkisráðherra Bandaríkjanna, Marco Rubio, skrifaði í færslu á X: „Bandaríkin fordæma harðlega hryðjuverkaárásina í Ástralíu sem beindist að gyðinglegri hátíð. Gyðingahatur á engan stað í þessum heimi.“ Lögregla í borgum víðs vegar um heiminn, þar á meðal í London, sagðist ætla að auka öryggisgæslu við gyðinglegar stofnanir og samkomustaði. Fréttin hefur verið uppfærð eftir að greint var frá því að skotmennirnir væru feðgar. Uppfærð klukkan 20.51 þann 14.12.2025.
Ástralía Skotvopn Hryðjuverkaárás á Bondi-strönd í Sydney Tengdar fréttir Tíu drepnir í skotárás á gyðingahátíð Tíu voru skotnir til bana í skotárás á gyðingahátíð á Bondi strönd í Ástralíu í dag. Annar árásarmannanna er látinn og hinn hefur verið handtekinn. Minnst tólf eru slasaðir. 14. desember 2025 09:00 Mest lesið „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Innlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk Innlent Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Innlent „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Innlent „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Innlent Hafnað með afgerandi hætti Erlent Játar að hafa logið til um nauðgun Innlent Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Erlent Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Segir af sér vegna lestarslysa Reynslumikill flugmaður við stjórnina Sjö flugvélum lent vegna sprengjuhótana Trúnaðarbrestur á Grænlandi og samþykkt Bandaríkjasamnings sett á ís Hafnað með afgerandi hætti Íslendingur dæmdur fyrir dreifingu barnaníðsefnis í Kanada Rússar gerðu árás á sjúkrahús í Kharkív Framtíð Trump í húfi á kjördegi í Bandaríkjunum Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Nauðlenti vegna sprengjuhótunar „Tíminn er á þrotum“ Sprengjum varpað á skóla meðan fólk beið eftir brauði Kælar matvöruverslana hakkaðir á ný Ríkin sem barist er um: Blá flóðbylgja eða smáskvetta? „Svívirðileg svik“ Netárásir á almannavarnarkerfi Úkraínumanna og Rússa Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Yfirhalning hafi verið nauðsynleg „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Stjórnlagadómstóll Póllands sakar stjórnvöld um valdarán Búa sig undir þriðju helgi mótmæla Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Skoða hvort konum hafi verið smyglað í sumarbúðir kóngafólksins „Ég hafði ekki séð fyrir mér líf eftir þessa nótt“ Sjá meira
Tíu drepnir í skotárás á gyðingahátíð Tíu voru skotnir til bana í skotárás á gyðingahátíð á Bondi strönd í Ástralíu í dag. Annar árásarmannanna er látinn og hinn hefur verið handtekinn. Minnst tólf eru slasaðir. 14. desember 2025 09:00