Erlent

Skoða hvort konum hafi verið smyglað í sumar­búðir kóngafólksins

Smári Jökull Jónsson skrifar
Heimsóknir Jeffrey Epstein og Ghislaine Maxwell í Balmoral kastala eru til skoðunar hjá lögreglu í Skotlandi.
Heimsóknir Jeffrey Epstein og Ghislaine Maxwell í Balmoral kastala eru til skoðunar hjá lögreglu í Skotlandi. Vísir/Getty

Lögreglan í Skotlandi hefur hafið athugun á ferðum Andrew Mountbatten-Windsor, Jeffrey Epstein og Ghislaine Maxwell til Balmoral-kastala. Konungsfjölskyldan hefur um áratugaskeið notað kastalann sem sumardvalarstað sinn en rannsókn lögreglu snýr meðal annars að hvort konum hafi verið smyglað í kastalann.

Epstein og Maxwell eru talin hafa heimsótt kastalann ásamt Mountbatten-Windsor sem áður var þekktur sem Andrés prins. Epstein lést 66 ára gamall í fangelsi árið 2019 en Maxwell var dæmd í tuttugu ára fangelsi árið 2022 fyrir mansal. Var hún meðal annars sakfelld fyrir að útvega Epstein stúlkur.

Lögregla segir rannsókn málsins vera á byrjunarstigi og fyrir utan að staðfesta að henni hafi borist upplýsingar um málið hafa talsmenn lögreglunnar lítið tjáð sig. 

Samkvæmt umfjöllun götublaðsins Daily Express er til rannsóknar hvort konum hafi verið smyglað í kastalann en lögregla segir rannsóknina byggða á sönnunargögnum og að hagsmunir þolenda séu hafðir í fyrirrúmi.

Lýst sem sumarbúðum

Í febrúar var óskað eftir upplýsingum frá almenningi um flug einkaþotu Epsteins til Edinborgarflugvallar. Flugskrár sýna að Mountbatten-Windsor og Maxwell flugu með þotunni frá Luton til Edinborgar þann 1. september 2006 ásamt tveimur öðrum farþegum.

Þá lögðu bandarískir saksóknarar fram ljósmynd við réttarhöldin yfir Maxwell sem talin er sýna hana og Jeffrey Epstein í Balmoral. Er myndin sögð hafa verið tekin árið 1999 þegar Mountbatten-Windsor á að hafa boðið þeim í kastalann.

Epstein og Maxwell eru reyndar sögð hafa verið tíðir gestir á heimilum konungsfjölskyldunnar undir lok tíunda áratugarins og í byrjun þess næsta. Í Epstein-skjölunum svokölluðu, sem bandaríska dómsmálaráðuneytið birti í fyrra, er tölvupóstur frá aðila sem skrifar undir nafninu „A“.

Var hann stendur til Maxwell þann 16. ágúst 2001 frá Balmoral þar sem sendandinn lýsir dvölinni sem sumarbúðum konungsfjölskyldunnar og biður Maxwell um að finna fyrir sig nýja óviðeigandi vini.

Mountbatten-Windsor hefur ítrekað neitað allri sök í tengslum við samskipti sín við Epstein en hann var sviptur prinstitli í október í fyrra og í kjölfarið handtekinn, grunaður um misferli í opinberu starfi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×