„Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Elísabet Inga Sigurðardóttir skrifar 30. október 2026 13:50 Fjármálaráðherra segir áform ÁTVR eðlileg vegna þróunar samfélagsins. vísir Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra segir eðlilegt að þjónusta vínbúðanna þróist í takt við samfélagið þegar hann er spurður um áform ríkisins um heimsendingu á áfengi. Hans skoðanir á því hvort gera eigi verslun með áfengi frjálsa skipti litlu máli þar sem skiptar skoðanir eru á málinu í ríkisstjórninni.
Í vikunni greindi forstjóri Áfengis- og tóbaksverslunar ríkisins frá því að til skoðunar væri að bjóða upp á heimsendingarþjónustu á áfengi. Einn eigenda netverslunar með áfengi sagði áformin merkileg í ljósi þess að ÁTVR hefði í sex ár kallað heimsendingarþjónustu ógn við lýðheilsu. „En þegar ríkið vill gera það þá heitir það þjónusta og það er auðvitað þannig að vínflaskan veit ekkert hver keyrir bílinn og það skiptir auðvitað engu máli. Þannig að ÁTVR verður bara eiginlega að velja, hún getur ekki bæði verið einhvers konar lýðheilsustofnun sem skreytir sig með fjöðrum fyrir að sinna lýðheilsu þjóðarinnar og verslun sem keppir um viðskiptavini. Hún verður bara að velja þarna á milli,“ sagði Elías Blöndal Guðjónsson, einn eigenda Sante, í samtali við fréttastofu í vikunni. Eðlilegt að þjónustan þróist Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra fer með málefni ÁTVR. Hann segir áform vínbúðanna skiljanlegt skref. „Ég held það sé eðlilegt að þessi þjónusta ríkisins þróist í takt við samfélagið. Það hefur verið að breytast mjög hratt með hvaða hætti fólk stundar sín viðskipti. Það er alveg ljóst að við getum ekki veitt þjónustu vínbúðanna alls staðar og ekki gagnvart öllum með þeim hætti sem kannski væri eðlilegt að gera kröfu um og þess vegna finnst mér raunverulega eðlilegt að við þróum þessi viðskipti með sama hætti og samfélagið þróast.“ En er það eðlilegt skref þegar lögin kveða á um að vínbúðirnar eigi að takmarka aðgengi að áfengi? „Þetta er alltaf deiluefni því að á sama tíma og þau segja þetta þá erum við með þessa þjónustu mjög víða. Og raunar mjög víða á markaðssvæðum sem tæplega standa undir slíkum rekstri. Þannig að þarna takast á annars vegar eðlilegar kröfur samfélagsins um þjónustu og hins vegar hlutverk ríkisins við að takmarka. Það hefur þá meira verið túlkað þannig að það snúist um auglýsingabann, framsetningu á vöruúrvali og það að ríkið fari eitt með þessa sölu og að þetta sé ekki í boði utan venjulegs verslunartíma.“ En það að bjóða upp á heimsendingu, finnst þér það til þess fallið að takmarka aðgengi að áfengi? „Þarna takast á sömu sjónarmið og takast á þegar við ræðum hvort það eigi að vera vínbúð á þessum stað eða hinum.“ Þessar flöskur verða mögulega fluttar með heimsendingu til landans.vísir/vilhelm Samfélagið vilji þjónustu og rekstur vínbúðanna snúist um þjónustu þó að markmiðið sé að takmarka aðgengi að áfengi. Málið snúist um það hvernig hægt sé að reka þessi tvö hlutverk með sem bestum hætti. En þarf þá ekki bara að breyta þessum lögum? „Það getur vel verið.“ Aðspurður hvernig honum finnist að umhverfið ætti að vera segir Daði skipta mestu máli að starfað sé innan ramma laganna. Núverandi deila fyrir dómstólum snúi að því hvort að netverslanirnar rúmist innan þeirra eða ekki. Alþingi þurfi svo að ákveða hvernig sá rammi eigi að vera. En nú getur þú lagt fram frumvarp. Munt þú leggja til að þessi verslun verði gerð frjáls? „Við þurfum að ráðast í endurskoðun. Þetta er málaflokkur sem er umdeildur og við þurfum þess vegna að vinna þetta í samráði innan ríkisstjórnarinnar þannig að mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu máli.“ Af því að aðrir flokkar innan ríkisstjórnarinnar eru kannski ósammála þér? „Það eru skiptar skoðanir um þennan málaflokk.“ Daði segir að meta þurfi málin þegar hann er spurður að því hvort líkur séu á að hann muni leggja fram frumvarp í þessum efnum. Það fari líka eftir því hvernig niðurstaða verður af málum í dómkerfinu.
Áfengi Netverslun með áfengi Viðreisn Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Tengdar fréttir Heimsending sögð ógn við lýðheilsu en þjónusta þegar ríkið á í hlut Einn eigenda netverslunarinnar Sante segir áform ríkisins um að hefja heimsendingu á áfengi merkileg í ljósi þess að áfengislögin kveði á um að ÁTVR eigi að takmarka aðgengi að áfengi. Sama stofnun og ætli nú að hefja heimsendingar hafi í sex ár kallað heimsendingar ógn við lýðheilsu. Nú þurfi forsvarsmenn vínbúðanna að fara að ákveða hvort ÁTVR sé lýðheilsustofnun eða verslun sem keppir um viðskiptavini. 28. október 2026 12:02 Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Þorgerður Kristín Þráinsdóttir forstjóri ÁTVR segir til skoðunar að hefja heimsendingu á vörum Vínbúðarinnar. Það væri aðallega til að auka þjónustu og aðgengi að vöruúrvali sem er meira í netverslun þeirra en í verslunum þeirra. 28. október 2026 07:58 Minni áfengisneysla í takt við markmið ríkisins Sala áfengis í Vínbúðunum dróst saman um 7,5 prósent í lítrum talið fyrstu níu mánuði ársins, að sögn forstjóra ÁTVR. Hún hefur ekki gögn sem skýra hversu mikið samdrátturinn tengist minni áfengisneyslu og hversu mikið því að viðskiptin hafi færst annað. 26. október 2026 15:35 Mest lesið „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Innlent „Burt með bölvað ofstækið“ Innlent Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Innlent Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Innlent „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Innlent Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Innlent „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Innlent Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Innlent Ætla að brenna rusl og skapa orku Innlent Fleiri fréttir Wolt kærir hótanir sendlanna til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Kjarasamningar kennara í uppnámi Bein útsending: Peptíð, töfralausn eða heilsufarsleg áhætta? „Burt með bölvað ofstækið“ Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Óttast að þjónusta við íbúa verði lakari og dýrari í kjölfar uppsagna Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Héldu námskeið um heiðursofbeldi Árekstur á Vesturlandsvegi tefur umferð „Kisur eru að missa fæturna“ Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl ChatGPT trónir á toppnum Hafi reynt að myrða kærustu sína í sumar Fengu ráðgjafa til að greina fjárhagsstöðuna fyrir uppsagnirnar „Svolítið sárt í hjartanu að hafa enga söngvakeppni“ Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Sonur þingmannsins ákærður Á þriðja tug sagt upp hjá Hafnarfjarðarbæ „Akkilesarhæll á vinnu gagnvart þessum hópum“ Sjá meira
Heimsending sögð ógn við lýðheilsu en þjónusta þegar ríkið á í hlut Einn eigenda netverslunarinnar Sante segir áform ríkisins um að hefja heimsendingu á áfengi merkileg í ljósi þess að áfengislögin kveði á um að ÁTVR eigi að takmarka aðgengi að áfengi. Sama stofnun og ætli nú að hefja heimsendingar hafi í sex ár kallað heimsendingar ógn við lýðheilsu. Nú þurfi forsvarsmenn vínbúðanna að fara að ákveða hvort ÁTVR sé lýðheilsustofnun eða verslun sem keppir um viðskiptavini. 28. október 2026 12:02
Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Þorgerður Kristín Þráinsdóttir forstjóri ÁTVR segir til skoðunar að hefja heimsendingu á vörum Vínbúðarinnar. Það væri aðallega til að auka þjónustu og aðgengi að vöruúrvali sem er meira í netverslun þeirra en í verslunum þeirra. 28. október 2026 07:58
Minni áfengisneysla í takt við markmið ríkisins Sala áfengis í Vínbúðunum dróst saman um 7,5 prósent í lítrum talið fyrstu níu mánuði ársins, að sögn forstjóra ÁTVR. Hún hefur ekki gögn sem skýra hversu mikið samdrátturinn tengist minni áfengisneyslu og hversu mikið því að viðskiptin hafi færst annað. 26. október 2026 15:35