Hjólað án lífshættu 20. september 2004 00:01 "
Ég hjóla mikið og er búinn að gera það í mörg ár, en það er eitthvað sem maður vandist á í Danmörku, og ég hjóla nánast alltaf til og frá vinnu," segir Guðmundur Ólafsson leikari aðspurður hvernig hann haldi sér í formi. "Maður er ótrúlega fljótur að hjóla á milli staða og aðstæður hafa breyst mikið hér þannig að hægt er að hjóla um án þess að vera í mikilli lífshættu," segir Guðmundur sem alla tíð hefur verið mikið í íþróttum og er meðal annars menntaður íþróttakennari og var einnig keppnismaður á skíðum. Líkamsrækt og hreyfing er lífsstíll sem honum er eðlilegur. Ég hef spilað fótbolta frá því að ég var krakki og ætla að vera í fótbolta þar til ég hrekk upp af," segir Guðmundur hlæjandi, en á sumrin hittir hann hóp félaga sinna reglulega og spilar með þeim bolta á Klambratúni. "Jú, svo hleyp ég svona við og við en það hefur heldur dregið úr því svona síðustu árin," segir Guðmundur kankvís. Guðmundur þarf einnig að halda sér í formi vegna starfs síns og sækir hann söngtíma reglulega. "Ég er alltaf í söngtímum og það er hluti af því að halda sér almennt í formi," segir Guðmundur sem undirbýr sig nú sérstaklega fyrir sýningu sína Tenórinn í Iðnó.
Heilsa Mest lesið Gísli Marteinn syrgir þrjóskan Vesturbæing Lífið „Ætlarðu að lifa eða ætlarðu að deyja?“ Lífið Skúli Tómas, Herbert og Ragnar í hörkustuði á Kjarval Menning Hvað veistu um… London? Lífið Af TikTok á skjáinn Bíó og sjónvarp Hættir með stefnumótaþættina vinsælu Lífið Survivor-keppandi missti fót og krefst 100 milljóna dala í skaðabætur Lífið Fylltu Egilshöllina á forsýningu Hvar er draumurinn? Bíó og sjónvarp Skipti máli að börn með krabbamein eigi sinn dag Lífið Fastagestur lumaði á áttatíu ára gömlum grip Lífið Fleiri fréttir Skúli Tómas, Herbert og Ragnar í hörkustuði á Kjarval „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Þórdís Zoëga sló í gegn í Kaupmannahöfn Svandís í ritstjórastól Kjánalegustu augnablikin í umræðunni um aðildarviðræður Rigningin stoppaði ekki stuðið hjá Yeoman Orgel Grensáskirkju fékk nýtt líf í Saurbæ Eitt myndband selji upp heilu lagerana Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Sjá meira