Græddi á ótta við hjónabönd homma 4. nóvember 2004 00:01
Kosningar um stjórnarskrárbann við hjónaböndum samkynhneigðra sem fóru fram samhliða forsetakosningunum í Bandaríkjunum hjálpaði George W. Bush að tryggja sér endurkjör. Ástæðan er sú að fjöldi íhaldssamra kjósenda sem ella er óvíst hvort hefðu farið á kjörstað mætti til að greiða atkvæði með banninu. "Ég væri einfeldningur ef ég segði að það hefði ekki hjálpað," sagði Robert T. Bennett, formaður Repúblikanaflokksins í Ohio, í viðtali við bandaríska dagblaðið New York Times. "Það hjálpaði mest í því sem við köllum Biblíubeltinu í suðaustanverðu og suðvestanverðu Ohio, þar sem stuðningur við forsetann jókst mest. Forsetakosningarnar þetta árið réðust í Ohio. Þar hafði Bush betur með 136 þúsund atkvæða mun, hann fékk 51 prósent atkvæða en John Kerry 49 prósent. Stjórnmálafræðingurinn John Green við Akron-háskóla, sem hefur kannað áhrif trúarbragða á stjórnmál, sagði í viðtali við New York Times að mikill stuðningur við stjórnarskrárbann við hjónaböndum samkynhneigðra kunni að hafa aukið kjörsókn á íhaldssömum svæðum um þrjú til fjögur prósent og að það kunni að hafa ráðið úrslitum í ríkinu.
Erlent Forsetakosningar í Bandaríkjunum Fréttir Mest lesið Veggur af fólki mætti svöngum tónleikagestum Innlent Hafði fé af mótsgesti Innlent Sól úti um allt og hátt í sautján gráður Innlent „Gekk kannski ekkert endilega hratt alltaf“ Innlent Níu í lífshættu og einn látinn eftir lestarslys í Englandi Erlent Slysið austan við Vík var alvarlegt Innlent Maður á rafskútu rassskellti hlaupakonur Innlent Rútum ekið í forgangsakstri fram fyrir bílaröðina Innlent Vance þreifar fyrir sér í Sviss Erlent HR útskrifaði rúmlega sjö hundruð í dag Innlent Fleiri fréttir Vance þreifar fyrir sér í Sviss Níu í lífshættu og einn látinn eftir lestarslys í Englandi Segjast hafa lokað Hormússundi á ný Meloni segir Trump skrökva upp á sig Witkoff stefnir til Sviss Þungt haldinn eftir að kýr réðst á tvo Ráðherrar krefja Starmer um afsögn Ísrael semur um vopnahlé við Hezbollah Konungur Norðursins sækir að Starmer Hættu skyndilega við viðræðurnar í Sviss Íranir segjast ætla að taka gjald af siglingum um sundið „Það verða engir konungar“ Telja dráp á rússneskum teiknara „pólitískt launmorð“ Ein stærsta drónaárásin á Rússland frá upphafi stríðsins Leghálskrabbameini nánast útrýmt í Bretlandi eftir bólusetningarátak Þetta er í samkomulagi Trumps við Írani Fuglaflensan stráfelldi kópa á suðurskautinu Trump undirritaði samkomulag við Írani Spá allt að fjörutíu stiga hita Rex Heuermann fær lífstíðardóm Eins árs gamalt barn skotið til bana af lögreglumanni Rex Heuermann leiddur fyrir dómara í dag Mette-Marit krónprinsessa fékk ný lungu í vel heppnaðri aðgerð Skopmyndateiknari skotinn til bana Rússnesk freigáta skaut varúðarskotum að skútu í Ermarsundi Rússar skipulögðu íkveikjur gegn forsætisráðherra Bretlands Segjast hafa sprengt olíuhreinsistöð nærri Moskvu Stefna á að hafa ný aðildarríki í styttri ól Öll áhöfnin talin af Samkomulag um samkomulag undirritað og klárt Sjá meira