Framburður Jónasar þótti ótrúlegur 9. nóvember 2004 00:01
Grétar Sigurðarson, Jónas Ingi Ragnarsson og Tomas Malakauskas, þremenningarnir í líkfundarmálinu, voru í Héraðsdómi Reykjavíkur dæmdir í tveggja og hálfs árs fangelsi. Þeir voru fundnir sekir um fíkniefnabrot, fyrir að koma manni í lífshættu ekki til hjálpar og fyrir illa meðferð á líki. Grétar var sakfelldur fyrir hluta af þeim brotum á vopnalögum sem hann var ákærður fyrir. Hann ætlar að áfrýja dómnum til Hæstaréttar. Þeir Jónas Ingi og Tomas voru ekki við dómsuppkvaðningu en lögmenn þeirra töldu allar líkur á að þeir myndu líka áfrýja dómnum. Til frádráttar dómnum kemur 32 daga gæsluvarðhald sem þremenningarnir sættu við rannsókn málsins. Hverjum um sig er gert að greiða verjanda sínum 500 þúsund krónur í réttargæslu- og málsvarnarlaun. Saman eiga þeir að greiða annan sakarkostnað í málinu. Ragnheiður Harðardóttir saksóknari sagði eftir dómsuppkvaðningu að ákæruvaldið gæti vel við unað. Í málflutningi sínum krafðist hún þess að refsing hvers þremenninganna yrði ekki lægri en tveggja ára fangelsi. Jafnframt sagði hún tveggja og hálfs árs fangelsisdóm hæfilegan. Segir samstarfsvilja ekki metinn Grétar sagði í samtali við Fréttablaðið að honum þætti dómurinn þungur en hann hefði í rauninni búist við hverju sem væri. "Mér finnst dómurinn senda röng skilaboð. Samstarfsvilji og það að hjálpa til við að upplýsa málið virðist ekki breyta neinu," segir Grétar. Aðspurður um hvort hann sé vongóður um að Hæstiréttur mildi dóminn segist Grétar ekki vera farinn að hugsa svo langt en segist í það minnsta ekki hafa neinu að tapa með því að áfrýja. Grétar segist hafa lært að lifa með því sem gerðist og því sem hann gerðist sekur um í febrúar en auðvitað hafi tekið hann tíma að vinna úr því. Ef niðurstaða Hæstaréttar verður sú sama og Héraðsdóms þýðir það að þremenningarnir þurfa að sitja í fangelsi í tuttugu mánuði eða tæp tvö ár. Grétar segist ekki hræðast sérstaklega að sitja í fangelsi þann tíma. "Maður tekur því sem að höndum ber hverju sinni. Ég spjara mig í þeim aðstæðum sem ég þarf að spjara mig í," segir Grétar. Framburður Jónasar fráleitur Dómnum þykir framburður Jónasar Inga í meira lagi ótrúverðugur. Allt frá því að þremenningarnir voru handteknir hefur Jónas Ingi harðneitað að eiga nokkurn þátt í málinu. "Staðhæfing hans að hann hafi ekki vitað um dauða mannsins eða líkflutninginn, svo og skýringar hans á atburðarásinni, eftir að komið var aftur með Vaidas á Furugrund að morgni föstudagsins, og einstökum atriðum í henni eru svo fráleitar að engu tali tekur," segir í dómi héraðsdóms. Framburði hans er því hafnað alfarið og þykir sannað með vitnisburði Grétars og Tomasar að honum hafi ekki bara verið fullkunnugt um dauða Vaidasar og að lík hans hafi verið með í jeppanum á leið til Neskaupstaðar heldur hafi hann líka undirbúið líkið til flutnings. Jónas átti þátt í smyglinu Jónas neitaði allri vitneskju um fíkniefnainnflutninginn eins og öðru í málinu. Dómurinn segir hins vegar,"Skýringar þær sem ákærði hefur gefið á öllu þykja fráleitar og að engu hafandi." Þykja skýringar Jónasar á peningafærslum og greiðslum til og frá Litháen tortryggilegar og þykir tal hans um viðskipti með sumarhús frá Litháen mjög ótrúverðugt. Þá tók Jónas að sér að athuga með gistingu fyrir Vaidas á Íslandi og gerði tilraun til þess að taka á móti honum í Leifsstöð. Sveinn Andri, verjandi Jónasar, segir dóminn sérstakan þar sem borðleggjandi sé að hlutur mannanna í málinu sé misjafn. Einna helst eigi það við í fíkniefnabrotinu þar sem hlutur Jónasar geti í mesta lagi talist hlutdeildarbrot. Átti að vera lífsháskinn ljós Grétari og Tomasi ber saman um að Vaidas hafi ekki viljað hætta á að leita læknis hér á landi, þar sem fullvíst væri að þá kæmist upp um fíkniefnainnflutninginn. Dómurinn segir ekkert hafa komið fram í málinu sem hnekki frásögn þeirra hvað það varðar en segir jafnframt að þeim hefði mátt vera ljóst þegar þeir ræddu um að koma honum til læknis að hann gæti ekki skilað af sér fíkniefnunum. "Hlaut þeim að vera ljóst að hann gæti á endanum dáið af þessum vandræðum ef ekki yrði gripið til aðgerða. Verður það bæði ráðið af frásögn Grétars og Tomasar og því að reynt var að fá brottför mannsins flýtt, miðvikudaginn 5. febrúar, að þann dag hafi þeim öllum orðið þetta ljóst," segir í dómnum. Sakfelldir óskipt fyrir meðferðina á líkinu Þegar kemur að þætti þremenninganna í illri meðferð á líki er framburði Jónasar hafnað alfarið. "Framburður ákærða um þessi atvik er með sama ótrúleikablæ og framburður hans um annað í málinu." Ósannað þykir að Grétar hafi stungið líkið oftar en þrisvar sinnum og því engu slegið föstu um hver hafi stungið á háls líksins en þá stungu segist Grétar ekki hafa stungið. "Það er álit dómsins að meðferðin á líkinu frá og með því að því var pakkað inn á Furugrund og til og með því að því var sökkt í höfnina á Neskaupstað teljist vera ósæmileg í skilningi 124. gr. almennra hegningarlaga og brot gegn þeirri grein. Ber að sakfella ákærðu óskipt fyrir meðferðina alla," segir í dómnum. Hættulaus skrautgripur Grétar var einn ákærður fyrir vopnalagabrot en fjöldi vopna fannst á heimili hans við rannsókn málsins. Hann var sýknaður af nokkrum hluta vopnalagabrotanna. Meðal annars áleit dómurinn skammbyssu, sem fannst á heimili hans, hættulausan skrautgrip og því ekki geta talist vopn. Það sama átti við um nokkra hnífa og einn lásboga. Grétar, sem ekki hefur skotvopnaleyfi, er sakfelldur fyrir að hafa í sinni vörslu tvær haglabyssur, riffil, lásboga, kylfu, sex fall- og fjaðurhnífa og kasthníf.
Dómsmál Fréttir Innlent Lög og regla Líkfundarmálið Mest lesið Farþegar muni ekki þurfa að taka allt úr töskunum í Keflavík Innlent „Nokkuð gott“ að fyrsta höggið hafi komið eftir sjö ára hjólahvísl Innlent Andstæðingar afvegaleiði kjósendur með „kjaftæði“ Innlent Sjö látnir eftir skotárás í grunnskóla Erlent Óvissa með sólmyrkvaveður Innlent „Evrópusambandið er ekki konfektkassi“ Innlent Einkunnir verða birtar í tölustöfum í stað bókstafa Innlent Ekki rétt að börn þurfi að bera gleraugun allan tímann Innlent Hvernig er myrkvinn þann 12. ágúst ólíkur þeim sem var árið 2015? Innlent Viðarplata eina útsýnið og hávaði frá morgni til kvölds Innlent Fleiri fréttir Einkunnir verða birtar í tölustöfum í stað bókstafa Tilkynningum um innbrot fjölgar á ný ESB vill „skapandi lausnir“ fyrir íslenskan sjávarútveg Óvissa með sólmyrkvaveður Götulokanir vegna Gleðigöngunnar taka gildi í dag Stækkunarstjórinn boðar „skapandi lausnir“ fyrir Íslendinga Hommar komi verst út þegar kemur að mismunun launa Hvernig er myrkvinn þann 12. ágúst ólíkur þeim sem var árið 2015? „Nokkuð gott“ að fyrsta höggið hafi komið eftir sjö ára hjólahvísl Fengu virkjunarleyfi í Strandabyggð Ekki rétt að börn þurfi að bera gleraugun allan tímann Andstæðingar afvegaleiði kjósendur með „kjaftæði“ Farþegar muni ekki þurfa að taka allt úr töskunum í Keflavík Skattgreiðendur eigi fullan rétt á svörum Belgíski flugherinn sinnir gæslu á Íslandi Stöðvaður tvö kvöld í röð Telja mikilvægt að fyrir liggi hvað felst í framsali yfirráða „Evrópusambandið er ekki konfektkassi“ Slökktu eld á Kársnesi Þjófar herja á fyrirtæki borgarinnar Metsumar hjá Landhelgisgæslunni: Þörf á að tvöfalda flotann Tíu sakborningar og minnst þrír brotaþolar í fjárkúgunarmáli Viðarplata eina útsýnið og hávaði frá morgni til kvölds Lokanir á Arnarnesvegi og við Sundagarða Varað við vindhviðum á Vestfjörðum Orð Jóns Sigurðssonar eigi við um baráttuna í dag Áhættumat byggir ekki lengur bara á vísindalegu mati Tíu sakborningar í fjárkúgunarmáli og íbúar ósáttir í Hamraborg „Það bara fannst ekki neitt“ Óttast valdaframsal til Evrópusambandsins Sjá meira