Getur ekki sinnt lögbundnum verkum 6. desember 2004 00:01
Ríkisendurskoðun hefur greint þrjár meginástæður rekstrar- og fjárhagsvanda Náttúrufræðistofnunar undanfarin þrjú ár. Þar kemur fram að helstu ástæður fjárhagsvanda stofnunarinnar séu að framlög ríkisins til hennar hafi ekki fylgt verðþróun, sértekjur hennar hafi lækkað verulega. Einnig hafi laun og húsaleiga hækkað. Því nægja árlegar fjárveitingar ekki fyrir rekstri, auk þess sem stofnunin hefur safnað upp skuldum vegna rekstrarhalla. Því leggur Ríkisendurskoðun til að stjórnvöld lagi starfsemi Náttúrufræðistofnunar að fjárhagsramma með verulegum niðurskurði eða auki fjárveitingar til hennar. Jón Gunnar Ottósson, forstjóri Náttúrufræðistofnunar, segir stofnunina hafa mjög umfangsmikið verksvið og að kröfur um upplýsingar um náttúruna séu alltaf að aukast. Sem dæmi um lögbundin verkefni sem ekki hafi verið hægt að sinna með fullnægjandi hætti sé að kortleggja náttúru Íslands. Einnig hafi ekki verið hægt að fylgjast með stofnum refa og minka á Íslandi. Hvað varðar lækkun sértekna segir Jón að stór hluti þeirra komi frá öðrum ríkisstofnunum og ráðuneytum og því sé erfitt að hafa stjórn á slíkum tekjum . Sigríður Anna Þórðardóttir umhverfisráðherra segist ekki hafa séð skýrslu Ríkisendurskoðunar og vill því ekki tjá sig um hana.
Fréttir Innlent Stj.mál Mest lesið Kona réðst á pizzasendil sem vildi fá símann sinn aftur Innlent Ófremdarsástand og íbúum haldið í heljargreipum Innlent Hvorki Pútín né Trump ætla á fund Selenskí Erlent Telur líkur á að starfslok Úlfars tengist útlendingapólitík Innlent Flugleiðir á barmi gjaldþrots gátu ekki haldið Cargolux Innlent Sváfu úti á palli með barnið en fá húsið ekki bætt Innlent Leitar stolins bíls: „Eins og hann sé bara á rúntinum“ Innlent „Dýrlegt veður eins langt og séð verður“ Veður Enn einn skjálftinn austan við Grímsey Innlent Loftárásir héldu áfram og segja enn harðari árásir framundan Erlent Fleiri fréttir Kona réðst á pizzasendil sem vildi fá símann sinn aftur Enn einn skjálftinn austan við Grímsey Vara við bikblæðingum á Bröttubrekku Flugleiðir á barmi gjaldþrots gátu ekki haldið Cargolux Verðhækkanir varpa skugga á grillsumarið mikla Isavia fær áheyrn um hvort reka hafi mátt mann vegna aldurs Laupur vekur mikla athygli sundlaugagesta í Árbæjarlaug Fórnuðu gömlu húsi fyrir slökkviliðsæfingu Telur líkur á að starfslok Úlfars tengist útlendingapólitík Ófremdarsástand og íbúum haldið í heljargreipum Leitar stolins bíls: „Eins og hann sé bara á rúntinum“ Sváfu úti á palli með barnið en fá húsið ekki bætt Ófremdarástand á Hverfisgötu og verðhækkanir á grillmat „Hann breytir börnunum okkar í nikótínþræla“ Þingmenn vilja vita meira um hvers vegna Úlfar hætti störfum Ferðamannarúta kyrrsett í aðgerðum lögreglu Bíll fullur af bensínbrúsum lekur Fjórtán hvíldartímabrot á 28 dögum Skiptar skoðanir á vistaskiptum Úlfars sem hætti á miðnætti Bílar Íslendinga ekki tryggðir sé þeim stolið erlendis „Maður heyrir svona drunur áður en bylgjan kemur“ Helsti valdamaður flugsins var oftast utan sviðsljóssins Fljótandi ruslsuga fjarlægir rusl úr sjónum við gömlu höfnina Segir löngu kominn tíma á almennilegt eftirlit Ökumenn í tékki á Suðurlandsvegi og Grímsey skelfur „Jómfrúarræður“ séu barn síns tíma Rassía lögreglu á Suðurlandsvegi Ekki á dagskrá að flýta atkvæðagreiðslu um ESB-viðræður Sigldu fram á lík milli Engeyjar og Viðeyjar Þorsteinn Vilhjálmsson er látinn Sjá meira