Þingið á suðupunkti á tímabili 5. mars 2005 00:01
Magnús Þór Hafsteinsson var endurkjörinn varaformaður Frjálslynda flokksins með tæplega 70 prósentum atkvæða á landsþingi flokksins í dag. Landsþingið var á suðupunkti síðdegis áður en niðurstaðan fékkst en svo féll allt í ljúfa löð. Magnús Þór Hafsteinsson og Gunnar Örn Örlygsson tókust hart á um varaformannsembættið og á tímabili var mikil ólga á landsþinginu. Um tíma leit út fyrir að Margrét Sverrisdóttir, framkvæmdastjóri Frjálslynda flokksins, myndi bjóða sig fram til að bera klæði á vopnin. Konur á landsþinginu fylktu sér að baki Margréti og hvöttu hana til að gefa kost á sér. Margrét ákvað hins vegar að verða ekki við þeirri áskorun. Hún sagðist ætla að halda friðinn á þinginu og hvatti þá sem voru í framboði að gera slíkt hið sama svo ekki yrðu eftirmál af slagnum. Hún minnti frambjóðendur á það að ekkert embætti væri stærra en sá gegndi því. Magnús Þór Hafsteinsson var endurkjörinn með rúmlega 69 prósentum atkvæða. Eftir að úrslit kosninganna lágu fyrir féllust keppinautarnir í faðma. Magnús ávarpaði þingið í kjölfarið og lofaði því að starfa áfram af fullri einurð og festu og standa heiðarlega að málefnum flokksins í framtíðinni og vinna með forystu flokksins að því að tryggja honum góð úrslit í sveitastjórnarkosningum 2006 og í þingkosningum árið eftir. Tæplega 200 manns sóttu landsþing Frjálslynda flokksins og var formaðurinn Guðjón Arnar Kristjánsson ánægður með þingið og sagði það hafa gengið vel. Aðspurður taldi hann ekki að harður varaformannsslagur myndi skaða flokkinn heldur kæmi hann sterkari út úr honum.
Fréttir Innlent Stj.mál Mest lesið Háttsettur sænskur diplómati handtekinn fyrir njósnir Erlent Fá engar bætur fyrir stolin bíl Innlent Hjörtur Torfason er látinn Innlent „Þetta er mikil áskorun en á sama tíma tek ég henni bara vel“ Innlent „Þetta var ekki rétt, alveg klárlega“ Innlent Gjörunnin matvæli tæpur helmingur af orkuinntöku landsmanna Innlent Tilkynnti um stolið hjól og réðst svo á þjófinn Innlent Geyma fjöldann allan af fullum bensínkútum í bíl í Hlíðunum Innlent Breyttar forsendur og pólitískar áherslur á bak við ákvörðunina Innlent Máttu skikka nemanda í tvö sjúkrapróf samdægurs Innlent Fleiri fréttir Hjörtur Torfason er látinn Fá engar bætur fyrir stolin bíl „Þetta er mikil áskorun en á sama tíma tek ég henni bara vel“ Syndir 1.600 kílómetra í kringum landið: Borðar tíu þúsund kalóríur á dag fyrir svaðilförina Ekkert fundist af báti sem sagður er hafa hvolft Gjörunnin matvæli tæpur helmingur af orkuinntöku landsmanna Tilkynnti um stolið hjól og réðst svo á þjófinn „Þetta var ekki rétt, alveg klárlega“ Máttu skikka nemanda í tvö sjúkrapróf samdægurs Njósnari sér að sér og synt í kring um Ísland Vill deila þekkingu á jarðvarma með Úkraínu Bað forseta að taka „stjórnarliða á skólabekk og tukta þá til“ Sjö ára fangelsi fyrir tvær tilraunir til manndráps Blindir vilja Hljóðbókasafnið heim Stjórnarandstaða kvartar undan starfi í velferðarnefnd Breyttar forsendur og pólitískar áherslur á bak við ákvörðunina Úlfar hættir sem lögreglustjóri Ráðherra hafnaði loftslagsrannsókn vegna ófullnægjandi lagaramma Hafnar því alfarið að hafa lekið gögnunum Nú má heita Gúníta Ljósynja Dawn Fólk varað við aukinni hættu á gróðureld Sala á Íslandsbankabréfum hafin og Jón Óttar sakar Ólaf Þór um leka Rannsóknarleyfi Rastar hafnað Telur víst að gögnin hafi komið frá sérstökum sjálfum Miðhúsabraut lokuð eftir að ekið var á vegfaranda á hlaupahjóli Yfir þrjú hunduð eftirskjálftar Mál Oscars sé barnaverndarmál en ekki útlendingamál Bein útsending: Framtíð matvælaframleiðslu á Íslandi Vara við aukinni hættu á gróðureldum á Austurlandi Stór skjálfti rétt hjá Grímsey Sjá meira