Stjórnarskrá ESB samþykkt 12. maí 2005 00:01
Stjórnarskrá Evrópusambandsins var samþykkt með yfirgnæfandi meirihluta í neðri deild þýska þingsins í morgun. Ekki er búist við að Frakkar fari eins mjúkum höndum um málið í þjóðaratkvæðagreiðslu í lok mánaðarins. Stjórnarskráin á að einfalda stjórnsýslu innan Evrópusambandsins. Hún kveður meðal annars á um sameiginlega utanríkisstefnu að hluta og meiri völd til Evrópuþingsins. Þá verður neitunarvald aðildarríkja fellt niður í mörgum málaflokkum. Þetta er hins vegar afar umdeilt plagg og það öðlast ekki gildi nema öll 25 aðildaríki ESB samþykki það. Þegar hafa sex ríki fullklárað það ferli og fjögur önnur eru komin langleiðina með að gera það, þar á meðal fjölmennasta Evrópusambandsríkið, Þýskaland. Gerhard Schröder, kanslari landsins, sagði í dag að þeir sem vilji meira lýðræði í Evrópu verði að greiða atkvæði með stjórnarskránni. Ólíkt Þýskalandi þar sem samþykki þingsins nægir þá þarf að leggja stjórnarskrána fyrir í þjóðaratkvæðagreiðslu í mörgum löndum, þar á meðal Frakklandi þar sem gengið verður til kosninga um málið 29. maí og í Hollandi þar sem kosið verður 1. júní. Afar mjótt er á mununum í Frakklandi, þar sem strípalingur ruddist inn á þingpalla í dag til að lýsa persónulegu frati á stjórnarskrána, og nýjustu kannanir benda til þess að Hollendingar segi „Nei, takk“. Fari svo má búast við búast við upplausn í Brussel og allsherjar naflaskoðun á framhaldi Evrópusamstarfsins.
Erlent Fréttir Stj.mál Mest lesið Ekki lengur hægt að breiða yfir sannleikann Innlent Þau eru tilnefnd sem maður ársins Innlent Segir Reiner hafa verið myrtan vegna andúðar í sinn garð Erlent „Ég var kölluð „hryðjuverkamaður““ Innlent Hafi hnakkrifist í teiti hjá Conan stuttu fyrir morðið Erlent Spjótin beinast að syni Reiners Erlent Talið að Rob Reiner og eiginkona hans hafi verið myrt Erlent Umferðarslys á Breiðholtsbraut Innlent Skotinn tvisvar eftir að hafa tæklað annan skotmanninn Erlent Skýrslan ekki til neins ef ekki verði brugðist við Innlent Fleiri fréttir Hafi hnakkrifist í teiti hjá Conan stuttu fyrir morðið Lögðu á ráðin um sprengjuárásir í Kaliforníu Grönduðu kafbát í fyrsta sinn með neðansjávardróna Segir Reiner hafa verið myrtan vegna andúðar í sinn garð Krefjast þess enn að Úkraínumenn hörfi frá Donbas Spjótin beinast að syni Reiners Ætla að herða lög um byssur enn frekar eftir árásina Starfsmenn Louvre mótmæla slæmum aðstæðum Hálfíslensk hljómsveit skilgreind öfgasamtök í Rússlandi Morðinginn í Brown gengur enn laus Heyrði byssuhvellina: Skotvopnalöggjöfin rædd á kaffistofunni Sílebúar tóku Kast Árásarfeðgarnir nafngreindir Úkraínumenn reiðubúnir til að falla frá aðild að Nató Talið að Rob Reiner og eiginkona hans hafi verið myrt Skotmennirnir feðgar Skotinn tvisvar eftir að hafa tæklað annan skotmanninn Einn í haldi í tengslum við skotárás í Brown-háskóla Rabbíni drepinn í árásinni Grunaðir um að skipuleggja hryðjuverk á jólamarkaði Tíu drepnir í skotárás á gyðingahátíð Tveir látnir eftir skotárás í háskóla Tvinn-rafmagnsflugvél sem lækka á fargjöldin Rannsókn á meintri gagnaöflun um Giuffre felld niður Þingmenn bannaðir á krám vegna skattahækkana Föngum sleppt og viðskiptaþvingunum aflétt Vopnahlé Trumps hélt í nokkrar klukkustundir Witkoff fundar með Selenskí ESB frystir rússneskar eignir ótímabundið Trump, Clinton, Gates og fleiri á nýjum Epstein-myndum Sjá meira