Þáðu mútur frá Saddam? 16. maí 2005 00:01
Tveir fyrrverandi aðstoðarmenn Pútíns Rússlandsforseta og þjóðernisöfgamaðurinn Zhirinovsky eru sakaðir um að hafa þegið mútur frá Saddam Hussein. Í staðinn áttu þeir að tala máli Íraksstjórnar, bæði í Moskvu og á alþjóðavettvangi. Þetta eru nýjustu upplýsingar úr skýrslu sem bandarísk þingnefnd er að taka saman um spillinguna sem þreifst í tengslum við olíusöluáætlun Sameinuðu þjóðanna í Írak. Nefndin byggir þessar ásakanir á upplýsingum frá fyrrverandi samstarfsmönnum Saddams í Írak, aðallega tveimur mönnum; Ramadan, fyrrverandi varaforseta landsins, og Tariq Aziz sem var utanríkisráðherra og aðstoðarforseti Saddams. Það leikur enginn vafi á því að olíusöluáætlunin var hriplek og olíu var smyglað í stórum stíl fram hjá viðskiptabanni Sameinuðu þjóðanna. Spurningin er bara hverjir bera á þessu ábyrgð og hvernig verða þeir látnir sæta þeirri ábyrgð. Innanhúsrannsókn fer fram hjá Sameinuðu þjóðunum og er búist við skýrslu í sumar. Bandaríska þingnefndin sem einnig kannar þetta mál hefur þegar valdið nokkru fjaðrafoki því í síðustu viku voru sömu sakir og nú eru bornar á rússnesku stjórnmálamennina bornar á Charles Pasqua, fyrrverandi innanríkisráðherra Frakka, og breska þingmanninn George Galloway. Pasqua sagðist í dag vera fórnarlamb ófrægingarherferðar bandarískra þingmanna á hendur frönskum stjórnvöldum og Frakklandi almennt. Galloway hefur líka harðneitað þessum sökum og mun á morgun sitja fyrir svörum hjá þingnefndinni í Washington.
Erlent Fréttir Stj.mál Mest lesið Icelandair hættir rekstri stærstu flugvéla sinna Innlent Handtekinn fyrir að vara við gyðingahatri á samfélagsmiðlum Erlent Íslenskur morðingi í Bandaríkjunum: „Gerðu það pabbi, ekki gleyma mér“ Innlent „Vandræðalegt“ að stjórnin hafi ekki mannað eigin þingfund Innlent Nýtt íslenskt hundaleikfang slær í gegn Innlent Skammvinnu vopnahléi virðist lokið Erlent Veittu eftirför í Árbæ Innlent Pirraður yfir því hvað friður er langt utan seilingar Erlent Starfsmaður verslunar sleginn Innlent Einn fluttur á sjúkrahús vegna reykeitrunar Innlent Fleiri fréttir Handtekinn fyrir að vara við gyðingahatri á samfélagsmiðlum Skammvinnu vopnahléi virðist lokið Pirraður yfir því hvað friður er langt utan seilingar Sovéskt geimfar hrapaði til jarðar eftir misheppnað ferðalag til Venus Fundu mögulega eitt af 67 fórnarlömbum hálfri öld síðar Kínverskir verktakar fá ekki að bora skipagöng í Noregi Vopnahlé í höfn milli Indlands og Pakistans Kim lofar hermenn sína sem börðust í Kúrsk sem hetjur Átökin ná nýjum hæðum Borgarstjóri í Bandaríkjunum handtekinn vegna mótmæla Yfirvöld Mexíkó kæra Google Gamlar nektarmyndir felldu glænýjan þjóðaröryggisráðgjafa Svíþjóðar Gerir Pirro að ríkissaksóknara í DC Bein útsending: Fyrsta messa nýs páfa Býst við að bróðir sinn Leó feti í fótspor Frans Stigmögnunin heldur áfram Hvað vitum við um Leó páfa? Norðmenn undirbúi sig undir möguleg stríðsátök „Þvílík spenna og þvílíkur heiður fyrir landið okkar“ Bíða með að stimpla AfD sem öfgasamtök Margrét Þórhildur lögð inn á sjúkrahús Samþykktu Trump-samninginn einróma Takmörkuð eftirspurn eftir ríkisstjórn með flokki Farage Gera enn árásir með drónum og eldflaugum Reyndi til hins síðasta að koma skikki á fjármál Vatíkansins Einhliða vopnahlé Rússa hafið Vesturlönd þurfa að borga milljarðatjón af árás Rússa á Tsjernobyl Heimila hernum að hefna fyrir árásirnar í gær Vaktin: Robert Francis Prevost er nýr páfi Herþota hrapaði til jarðar í Finnlandi Sjá meira