Mannréttindum hrakar á heimsvísu 26. maí 2005 00:01
Mannréttindum hrakar á heimsvísu og þau eru brotin um allan heim. Bandaríkin og framferði stjórnvalda þar er ein meginorsök þessarar þróunar, samkvæmt ársskýrslu Amnesty International. Bandaríkjamenn sniðganga mannréttindi í nafni stríðsins gegn hryðjuverkum. Og þegar eina stórveldið brýtur mannréttindi eigin þegna og annarra þykir öðrum óhætt að fylgja í þau fótspor, segja sérfræðingar Amnesty International. Framkvæmdastjóri samtakanna, Irene Khan, segir Bandaríkin og bandamenn þeirra í hryðjuverkastríðinu í raun hafa aukið á óöryggið með þessu framferði. Guantanamo sé orðið gúlag okkar tíma og hafi fest þá tilfinningu í sessi hjá fólki að hægt sé að halda mönnum föngnum án dóms og laga. „Veki Guantanamo upp í huga manna myndir af sovéskri kúgun þá minna draugafangar, einangrunarfangar eða óskráðir fangar, óþægilega á þá aðferð að láta menn hverfa eins og tíðkaðist hjá einræðisherrum Suður-Ameríku,“ segir Khan. Hún gefur lítið fyrir mannréttindaást Bandaríkjanna og vill meina að gjörðirnar bendi til annars. En það er víða pottur brotinn í mannréttindamálum. Árið 2004 var frægasta dæmið um aðgerðaleysi í Darfur og er það jafnframt gagnrýnt í skýrslunni, og þá bæði stjórnvöld í Súdan og Sameinuðu þjóðirnar fyrir aðgerðaleysi og seinagang.
Erlent Fréttir Stj.mál Mest lesið Icelandair hættir rekstri stærstu flugvéla sinna Innlent Handtekinn fyrir að vara við gyðingahatri á samfélagsmiðlum Erlent Íslenskur morðingi í Bandaríkjunum: „Gerðu það pabbi, ekki gleyma mér“ Innlent „Vandræðalegt“ að stjórnin hafi ekki mannað eigin þingfund Innlent Skammvinnu vopnahléi virðist lokið Erlent Nýtt íslenskt hundaleikfang slær í gegn Innlent Veittu eftirför í Árbæ Innlent Pirraður yfir því hvað friður er langt utan seilingar Erlent Fundu, lögðu hald á og drápu snáka Innlent „Hreint og tært málþóf í sinni skýrustu mynd“ Innlent Fleiri fréttir Handtekinn fyrir að vara við gyðingahatri á samfélagsmiðlum Skammvinnu vopnahléi virðist lokið Pirraður yfir því hvað friður er langt utan seilingar Sovéskt geimfar hrapaði til jarðar eftir misheppnað ferðalag til Venus Fundu mögulega eitt af 67 fórnarlömbum hálfri öld síðar Kínverskir verktakar fá ekki að bora skipagöng í Noregi Vopnahlé í höfn milli Indlands og Pakistans Kim lofar hermenn sína sem börðust í Kúrsk sem hetjur Átökin ná nýjum hæðum Borgarstjóri í Bandaríkjunum handtekinn vegna mótmæla Yfirvöld Mexíkó kæra Google Gamlar nektarmyndir felldu glænýjan þjóðaröryggisráðgjafa Svíþjóðar Gerir Pirro að ríkissaksóknara í DC Bein útsending: Fyrsta messa nýs páfa Býst við að bróðir sinn Leó feti í fótspor Frans Stigmögnunin heldur áfram Hvað vitum við um Leó páfa? Norðmenn undirbúi sig undir möguleg stríðsátök „Þvílík spenna og þvílíkur heiður fyrir landið okkar“ Bíða með að stimpla AfD sem öfgasamtök Margrét Þórhildur lögð inn á sjúkrahús Samþykktu Trump-samninginn einróma Takmörkuð eftirspurn eftir ríkisstjórn með flokki Farage Gera enn árásir með drónum og eldflaugum Reyndi til hins síðasta að koma skikki á fjármál Vatíkansins Einhliða vopnahlé Rússa hafið Vesturlönd þurfa að borga milljarðatjón af árás Rússa á Tsjernobyl Heimila hernum að hefna fyrir árásirnar í gær Vaktin: Robert Francis Prevost er nýr páfi Herþota hrapaði til jarðar í Finnlandi Sjá meira