Els frá í 4 mánuði 2. ágúst 2005 00:01
Suður-afríski kylfingurinn, Ernie Els, verður frá keppni í allt að 4-5 mánuði en hann slasaðist illa á hné fyrir hálfum mánuði þegar hann var í siglingu með fjölskyldu sinni. Els sem er þriðji efsti kylfingurinn á heimslistanum gekkst undir aðgerð á fimmtudaginn sl. en hann sleit fremri hnjálið í vinstra hné. Els missir því af síðasta stórmóti ársins, USPGA-meistaramótinu sem og keppninni um Forsetabikarinn og í heimsmótinu í holukeppni, þar sem hann á titil að verja. Skurðlæknir kylfingsins segir að hann þurfi að gangast undir aðra aðgerð þegar bólgan hjaðnar en ekki er hægt að segja nákvæmlega hvenær það verður. Eftir það munu líða 8-10 vikur þar til hann getur farið að sveifla kylfunni aftur en aldrei minna en 16-18 vikur munu líða þar til hann getur hafið keppni að nýju. Vonast bjartsýnir menn nú til að kylfingurinn snúi aftur áður en árið er úti. En Els er jarðbundinn maður og er alls ekkert að kveinka sér meira en efni standa til. "Augljóslega er tímasetningin á þessu óheppileg en við skulum bara horfast í augu við eitt. Það er ekki til neitt sem heitir góð tímasetning þegar maður meiðist." sagði Els.
Golf Mest lesið Brand miðlar málum eftir föst skot Alfreðs Handbolti Fékk nóg og strunsaði út úr viðtali Sport Skoraði nær helming marka ÍR í tapi gegn KA Handbolti Dagur tók upp gítarinn og söng í bronsgleði Króatanna Handbolti Orri hetjan er Sociedad tryggði sæti í undanúrslitum Fótbolti Manchester City mætir Arsenal í úrslitaleik Enski boltinn Eyjamenn skoruðu fjörutíu mörk gegn Selfyssingum Handbolti Enginn Ásgeir í öflugri einkadeild Seðlabankans Enski boltinn „Spiluðum virkilega vel í tuttugu mínútur“ Körfubolti Kom í einkaflugvél á Ólympíuleikana Sport Fleiri fréttir Fékk nóg og strunsaði út úr viðtali „Spiluðum virkilega vel í tuttugu mínútur“ „Þá er þetta munurinn á liðunum“ Orri hetjan er Sociedad tryggði sæti í undanúrslitum Manchester City mætir Arsenal í úrslitaleik Uppgjörið: Tindastóll - Grindavík 74-99 | Grindavík eltir Keflavík í úrslit Valur áfram í undanúrslit bikarsins Martin með ellefu stig í magnaðri endurkomu Alba Berlin Sjö íslensk mörk í mikilvægum sigri Skoraði nær helming marka ÍR í tapi gegn KA Uppgjörið: Keflavík - Hamar/Þór 82-77 | Keflvíkingar í bikarúrslit Eyjamenn skoruðu fjörutíu mörk gegn Selfyssingum Hörður Axel: Ætlum að gera allt til þess að vinna bikarinn Sigvaldi sneri aftur eftir stutt stopp á EM Verkfalli Ronaldo lokið Mikil óvissa uppi varðandi Guardiola Fjórar með nóró daginn fyrir fyrsta leik á ÓL Fær að mæta KR í úrslitum þrátt fyrir hnefahöggið Brand miðlar málum eftir föst skot Alfreðs Enginn Ásgeir í öflugri einkadeild Seðlabankans Böðvar kominn til ÍA frá FH „Við þekkjum umhverfið allavega betur“ Verjast fótboltabullum með andlitsgreiningu á völlunum Á Man. City séns? „Þetta rokkar allt of mikið hjá þeim“ Chelsea reyndi nýstárlega aðferð til að stoppa hornin hjá Arsenal Sjáðu Eir Chang setja Íslandsmetið Kom í einkaflugvél á Ólympíuleikana LIV fær heimslistastig þótt mótaröðin uppfylli ekki skilyrði James Harden skipt til Cleveland og titillíkur Cavaliers aukast „Það mun allt skýrast á næstu tveimur vikum“ Sjá meira